Tíminn - 15.03.1972, Qupperneq 1
* .......
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Vísindamenn skipuleggja rannsóknir á hlaupinu
»■ ÞÓ-Reykjavík.
Ji „Viö höfum verið að gera
vinnuáætlun, og i dag fer
■« fyrsti maðurinn austur til að
fylgjast með Skeiðará”, sagði
■■ Helgi Hallgrimsson, verk-
fræðingur hjá Vegagerðinni,
■J er við ræddum við hann.
Það er Sigurjón Rist, sem
!■ fer fyrstur manna austur og
■I mun hann fylgjast gaumgæfi-
3* lega með vatnavextinum,
■I sagði Helgi. Annars eru það
3* þrjár stofnanir, sem koma til
■■ með að rannsaka hlaupið. Eru
Ij það Vegagerðin, sem verður
■I með rannsóknir með tilliti til
■J fyrirhugaðra vegafram-
kvæmda, Orkustofnunin, sem
■■ verður með rennslismælingar
í og athuganir á framburði,
!■ þriðji aðilinn er svo Raun-
■■ visindastofnunin, sem verður
■J með jöklafræðilegar athug-
anir, munu menn hennar t.d.
■■ rannsaka Grimsvötn ef tök
■■ verða á, einnig mun Raunvis-
■■ indastofnunin verða með efna-
■■ greiningar á vatninu.
Helgi sagði, að 8-10 manns
myndu fara austur og myndu
■■ þeir halda til á Skaftafelli og á
Svinafelli. Grundvöllurinn
v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
Þegar Ijósmyndara Timans bar aö garði hjá Vegagerð ríkisins I gær, voru þessir menn að ræða um Skeiöarárhlaupiö, enda munu þeir allir "■
sinna rannsóknum viðkomandi hiaupinu. Vinstra megin borðsins sitja frá vinstri: Einar Hafliðason, Haukur Tómasson, Ilelgi Ilallgrimsson ■!
íipf Sifflirftlir bnrarinscnn /4 mnti hóim oru CnmklXen IXnaemn Ci.rnniAn Ricf í\cf llnlni Tl... a ...,.,.1 r'........
og Sigurður Þórarinsson. A móti þeim eru Snæbjörn Jónasson, Sigurjón Itist og Helgi Björnsson.
fyrir þessum umfangsmiklu
rannsóknum byggist á þvi, að
þyrla verði með i förinni, og er
nú ákveðið, að þyrla Andra
Heiðberg verði fyrir austan, á
meðan á hlaupinu stendur og
visindamenn eru við störf sin.
Ég býst við þvi, að hlaupið
nái hámarki um eða eftir helg-
ina sagði Helgi.
Við spurðum Helga að þvi,
hvað vatnsmagnið væri mikið
i Skeiðarárhlaupi t.d. miðað
við Amazon fljótið. Hann sagði
að i Skeiðarárhlaupum væri
vatnsmagnið um 10 þús. rúm-
metrar á sekúndu, en vatns-
magnið i Amazon fljótinu væri
um 100 þús. rúmmetrar á
sekúndu.
Ilægur vöxlur
Ragnar Stefánsson, bóndi i
Skaftafelli sagði i gær, að
vatnsmagnið ykist jafnt og
Timamynd Gunnár. «•
þétt, en þó væri vatnsmagnið
ekki orðið alveg eins mikið og
á sumartima. Stöðug fýla
kemur frá ánni. Ragnar var
sama sinnis og Helgi Hall-
grimsson. Hann sagði að hann
byggist við aðalhlaupinu um
eða eftir helgi.
I
Landhelgismólið:
flframhaldandi viðræður
við Breta og Þjóðverja
KJ-Reykjavik
—Ég tel vist að áframhaldandi
viðræður verði við Breta og Þjóð-
verja vegna útfærslu fiskveiði-
landhelginnar, sagði Einar
Agústsson utanrikisráðherra við
Timann i gær, en i gærmorgun
gengu sendiherrar Bretlands og
Sambandslýðveldisins Þýzka-
lands á fund ráðherra,sinn i
hvoru lagi, og afhentu honum
greinargerðir rikisstjórna sinna
um fiskveiðitakmörkin.
Utanrikisráðherra sagðist hafa
lagt efni greinargerðanna fyrir
rikisstjórnina og landhelgis-
nefndina, og væri málið þar til at-
hugunar. Ekki sagðist Einar
Agústsson,utanrikisráðherra,geta
sagt um stað né stund áframhald-
andi viðræðna, en i fréttatilkynn-
ingu utanrikisráðuneytisins um
mál þetta segir m.a. svo:
,,t greinargerð brezku rikis-
stjórnarinnar er endurtekin sú
skoðun hennar, að útfærsla fisk-
veiðitakmarkanna við ísland eigi
sér ekki stoð i alþjóðalögum, og
einnig, að hún telji samkomulagið
frá 1961 vera i fullu gildi. Jafn-
framt er formlega tilkynnt, að
innan skamms verði leitað til Al-
þjóðadómstólsins i samræmi við
orðsendingaskiptin frá 1961. Sið-
an segir,að brezka rikisstjórnin
sé fús til að halda áfram viðræð-
um við rikisstjórn tslands með
það fyrir augum að ákveða
hvernig skipa skuli málum á við-
unandi hátt meðan deilan er fyrir
Alþjóðadómstólnum.
Loks er tekið fram, að afrit af
greinargerð þessari séu send
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna og ritara Alþjóðadóm-
stólsins.
t greinargerð rikisstjórnar
Sambandslýöveldisins Þýzka-
lands felst að efni til hið sama og
er i greinargerð brezku rikis-
stjórnarinnar.”
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII'lllllilllllllllllllKÍIIIIIIIIII
j 10 fangar aftur austur
| Enginn fanganna segist vita um eldsupptök
OÖ-Reykjavik.
Enn er allt á huldu um,hver
valdur er að brunanum á
Litla-Hrauni s.l. sunnudags-
kvöld. Rannsóknarlögreglan i
Reykjavik yfirheyrði fangana
i gær og fyrradag. En enginn
þeirra, sem yfirheyrðir voru,
sögðust vita neitt um brennu-
varginn. 10 fanganna voru
fluttir austur I gærdag. Eins
og fram hefur komið er mjög
slæm aðstaða til að vista refsi-
fanga i fangageymslu lög-
reglunnar.
A Litla-Hrauni var hægt að
taka á móti mönnunum, þvi
þar var hraðað mjög fram-
kvæmdum við nýju við-
bygginguna en hún er nær til-
búin til notkunar Fangarnir,
sem sendir voru austur i gær
verða i klefum á neðri hæð
byggingarinnar.
Fangarnir, sem fóru austur,
voru teknir úr fangageymslu
lögreglunnar við Snorrabraut
og úr Hegningarhúsinu við
Skólavörðustig, en á báðum
þessum stöðum var fullsetinn
Framhald á bls. 15
Fangarnir tlu af Litla Hrauni
ganga i bilinn frá Guömundi
Jónassyni i fylgd fulltrúa yfir-
sakadómara og lögregluþjóna
(Timamynd Gunnar)
'N «c
Viðtöl við tvo fanga á Litla-Hrauni — Sjá bls. 3