Tíminn - 06.04.1972, Page 19
Fimmtudagur 6. april 1972.
TÍMINN
19
Sitt sýnist hverjum
Þegar þessi þáttur hóf
göngu sina gat ég þess að
æskilegt væri, að sem flestir
sendu þættinum eitthvað til
birtingar um hesta eða
málefni þeim viðvikjandi.
Umræðuefnið getur verið ó-
tæmandi vegna þess að menn
eru yfirleitt ekki sammála,
þegar rætt er um þennan eða
hinn hestinn. Það er misjafn
smekkur manna og einum
getur likað það vel, sem
öðrum finnst miður. Það er
afar eðlilegt að svo sé. Tökum
t.d. tvo mjög góða hesta og
látum einhverja tvo menn
segja álit sitt á þeim. Það er
eins liklegt, að þeir veldu sinn
hestinn hvor frekar en þann
sama. Þetta kemur til af þvi
að engir tveir hestar eru alveg
eins. Það er alltaf einhver
munur, og sá munur getur
ráðið úrslitum um valið hjá
viðkomandi mönnum. Einum
manni getur likað þetta betur,
en öðrum hitt, og svona hefur
það alltaf verið, og verður á-
fram. Það er ekki lakara til
árangurs að skiptar séu
skoðanir um viss málefni,
einmitt hið gagnstæða. Það
geta komið fram
i dagsljósið ýmis athyglisverð
sjónarmið, sem vert er að
taka til yfirvegunar. Við
höfum skiptar skoðanir
i ræktunarmálum, á þessum
eða hinum stóðhestinum. Við
höfum skiptar skoðanir um
tamningu hrossa, hvort það á
að fara fram i gerðum eða á
frjálsum velli. Við erum oft ó-
sammála dómurum á lands-
mótum, og það svo, að menn
fara ekki eftir þvi, sem þeir
leggja til eða ráðleggja. Við
getum deilt um hvort þessi eða
hinn maðurinn situr vel eða
rétt á hesti eða ekki. Tvær
hliðar eða fleiri eru á hverju
máli eða málefni, sem betur
fer. Annars væri ekki grund-
völlur til rökræðna. Skrif sem i
þessum þætti hafa birzt, eru
meðal annars til þess að skapa
umræður um hesta eða þau
málefni, sem þeim við kemur.
Það getur, ef vel tekst, yakið
áhuga á málefninu, og sá á-
hugi getur verið til góös, miklu
fremur en hitt. Stór orð eða
harðar deildur um menn eða
málefni hafa aldrei leitt til já-
kvæðar niðurstöðu, en róleg
yfirvegun hvort sem hún er
sett fram i ræðu eða riti, er vel
til þess fallin að bera árangur.
Fordómar geta á stundum
verið kaldar staðreyndir. Og
minnugir skulum við- vera
þess, að vissum
lögmálum móður náttúru
getum við ekki breytt, og á
það ekki sizt við hesta og
hestamennsku. Að endingu
þakka ég Sveinbirni Dagfinns-
syni fyrir sina góðu grein frá
23.marz s.l. og Sigurjóni
Gestssyni fyrir sina grein. Það
væri mjög æskilegt, ef fleiri
vildu láta til sin heyra i þát-
tum þessum, þvi fleiri sem
leggja orð i belg þvi betra,-
SMARI
Rogers kemur í næsta mánuði
SB—Reykjavik
William P. Rogers utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna, kemur
til tslands i næsta mánuði á ferð
sinni til sjö Evrópurikja. Hann
mun ræða við leiðtoga þessara
Kvikmyndavél
Framhald
af bls. 6.
inu, sem eftir var á syllunni,
nema þá helzt með aðstoð þyrlu.
Dótið er á syllu, sem er um 40
metrum undir yfirborðinu og þar
fyrir neðan hyldýpi, sem enginn
veit hve langt nær niður. Er það
talið glæfraverk að siga þar niður
nema þá helzt i þyrlu.
Þarna á syllunni er, fyrir utan
kvikmyndatökuvélina, allur út-
búnaður Magnúsar, skiði, bak-
poki, myndavél og fl. og má áætla
verðmæti þess milli 250 til 300
þús. krónur.
Rannsóknastofnun
Framhald af bls. 3.
og eldisstöðvunum, sem stofnunin
rekur, þó fyrst og fremst i rann-
sóknarskyni.
3) Tekjur af sölu veiðikorta, en
um þau skulu gilda eftirgreindar
reglur:
a) tslenzkur rikisborgari greið-
ir kr. 100.00 fyrir veiðikort, sem
veitir heimild til veiði á silungi,
en kr. 500.00 fyrir heimild til lax-
veiði.
b) Erlendur rikisborgari greið-
ir kr. 500 fyrir veiðikort, sem veit-
ir heimild til veiði á silungi, en kr.
5000.00 fyrir heimild til laxveiði.
rikja, áður en Nixon fer til Mosk-
vu.
Hér á landi dvelur Rogers að-
eins tæpan sólarhring, en þessi
heimsókn kemur i stað þeirrar,
sem aflýst var i desember sl.
Fóturinn varð undir bílnum
OÓ—Reykjavik.
Slys varð á Háaleitisbraut á
sjötta timanum i gær. Fjögurra
ára gamall drengur varð þar
fyrir bil og fór annað framhjól
bilsins yfir vinstri fót drengsins.
Hann fótbrotnaði, en meiðslin
eru ekki talin alvarlegs eölis.
H THE HEALTH
CULTIVATION
HEILSURÆKTIN
hefur flutt starfsemi
sina i
GLÆSIBÆ
Nýtt
námskeið
er að
hef jast
Ný botnvarpa
Framhald
af bls. 1.
Laxness Framhald af bls. 1.
\ “ / LlD
COMPANV
TERN
varpan verði reynd bráðlega um
borð i islenzkum togara.
Venju fremur gestkvæmt var i
leiðangrinum enda fóru 4 dagar i
að kynna skipið og tæki þess fyrir
stýrimannaefnum bæði frá Reyk-
javik og Vestmannaeyjum. Auk
þess voru um borð 3 skipstjórar, 8
netagerðarmenn og 2 tæknimenn,
flestir i stuttan tima.
Leiðangursstjóri var Guðni
Þorsteinsson og skipstjóri
Sæmundur Auðunsson. Sérstök
ástæða er til að taka fram, að
mjög reyndi á skipshöfn og
starfsmenn Hafrannsóknar-
stofnunarinnar i leiðangrinum,
þar sem mjög margt var fram-
kvæmt af fáum.
(Frá Hafrannsóknarstofnuninni.).
einróma. Prófessor Hreinn -
Benediktsson var ekki á fun-
dinum og raunar fleiri, og Baldur
Jónsson lektor gekk af fundi.
Háskólaráð hefur áður
samþykkt á fundi tillögur um
breytingar á lögum um Háskóla
íslands, og voru þær lagðar fyrir
rikisstjórnina i gær i þvi skyni að
samþykkt þeirra verði til þess að
doktorsmál Halldórs Laxness
endurtaki sig ekki siðar meir.
Ekki þarf þó að biða eftir laga-
breytingu til að Halldór Laxness
hljóti titilinn. „Það væri þjóðar-
skömm yrði honum ekki veittur
þessi heiður”, sagði háskóla-
rektor i gær.
Keflavíkurflugvöllur
Framhald af bls. 1.
Aflatap Framhaid af bls. 1.
Gissuri hvita, vegna óhapp-
sins á Akranesi?
— Gissur hviti var nokkru
stærri en Skinney, svo ég held
að það sé engin goðgá að segja
að tapast hafi afli að verð-
mæti brúttó 16 — 20 milljónir á
þessum tima, sem liðinn er.
— Hvernig hafa svo afla-
brögð verið hjá ykkur á ver-
tiðinni?
— I dag eru komin á land
rúmlega fjögur þúsund tonn,
og er það nokkru meira en á
sama tima i fyrra. Gæftir
hafa verið slæmar, og þá ser-
staklega fyrri hluta vertiðar-
innar þá ber að geta þess, að
héðan hafa róið tveim bátum
færra, vegna óhappsins á
Akranesi, svo meiri fiskur
virðist hafa verið i sjónum.
— Er loðnubræðslunni lokið
hjá ykkur?
— Já við lukum bræðslu
fyrir helgi, en alls bárust hér
á land 13.400 tonn en á loðnu-
vertiðinni i fyrra var landað
hér 7.500 tonnum. Við hefðum
væntanlega fengið enn meiri
loðnu, ef Gissur hviti og
Skinney hefðu getað stundað
veiðarnar, en nu er mest um
vert að koma Skinney sem
fyrst á veiðar, sagði Asgrimur
að lokum.
A siðasta ári komu 530 þús. far-
þegar á Keflavikurflugvöll og er
aukningin milli 10 og 20% á ári og
á þessu ári munu yfir 600 þúsund
farþegar fara um völlinn. Ef að
likum lætur munu yfir 700 þús.
farþegar fara um völlinn á næsta
ári.
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Bezt að
auglýsa í
Tímanum
Léttbyggðir
gúmmíbjörgunarbátar
fullbúnir öryggistækjum fyrir Ktla vélbáta, 3-4 iuaiuia
R.F.D. „Tem” er pakkaður
í vatnsþéttar umbúðir
stærð 60x40x18 cm
Framleiddir sam
kvæmt
ströngustu
öryggiskröfum
Siglingamála
stofnunar
ríkisins
Hámarks
buröarþol
865 kg
þyngd
aðeins um
20 kg
Einkaumboð á Islandi:
ÓlaSur Gislason & Co hf
Ingólfsstræti 1A - Reykjavík - Simi 18370