Tíminn - 19.04.1972, Page 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SeHDtBILASTÖDIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Einar til
samninga-
viðræðna
við EBE
KJ—Reykjavík.
i dag fer Einar Agústsson utan-
rikisráðherra til Briissel til við-
ræðna við Harmel, utanrikisráð-
herra Belgiu, og aðra forvigis-
menn Efnahagsbandaiags
Evrópu, um fyrirhugaða samn-
inga islands og Efnahagsbanda-
lagsins.
Viðræður Einars Ágústssonar i
Briissel hefjast á miðvikudaginn,
og standa þær i tvo daga. Þórhall-
ur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri i
viðskiptaráðuneytinu verður með
utanrikisráðherra, en hann hefur
verið aðalsamningamaður ts-
lands i viðræðunum við Efna-
hagsbandalagið.
Svo sem kunnugt er, hefur
Efnahagsbandalagið tengt land-
helgismálið samningaviðræðun-
um um tollaivilnanir milli íslands
og Efnahagsbandalagslandanna,
en það eru tvö óskyld mál.
Loka varð
barnaskól-
anum á Siglu
firði vegna
inflúensu
Jb—Siglufirði.
Inflúensa hefur sótt á Siglfirð-
inga að undanförnu, og hefur hún
verið mjög slæm. Barnaskólan-
um varð að loka á miðvikudag i
s.l. viku, en þá vantaði 40% af
börnum og kennurum.
Kennsla byrjaði aftur á mánu-
dag, og var ástandið þá nokkuð
betra, en ekki nógu gott.
Rænulaus
í rúman
mánuð
OÓ—Reykjavik.
35 ára gömul kona hefur legið
meðvitundarlaus i rúman mánuð
á gjörgæzludeild Borgarspital-
ans. Konan fannst á auðu svæði
skammt frá heimili sinu 16. marz
S.I., og var hún þá rænulaus og
hefur verið það siðan. Ekki er
með öllu ljóst, hvað kom fyrir
konuna.
Vonzkuveður og rigning var
þann dag, sem konan missti með-
vitundina, Siðast var vitað um
hana á hárgreiðslustofu um dag-
inn, en á heimleið hné hún niður á
auðu svæði við Sólheima, skammt
frá Skeiðarvogi, og þar fannst
hún. Með vissu er ekki nákvæm-
lega vitað, hve lengi konan lá
þarna, en hún fannst skömmu
fyrir kl. 6 siðdegis. Ekki er talið
óliklegt, aö hún hafi lent með
höfuðið á steini, þegar hún féll, en
litlir áverkar voru á konunni.
Óréttlátt lánakerfi Hús-
næðismálastjórnar lagfært
Lagt er til að meðaltalsvextir verði aldrei hærri en 7 3/4%
EB—Reykjavík.
Rikisstjórnin lagði i fyrra-
dag fyrir Alþingi frumvarp til
breytinga á lögum um Hús-
næðismálastofnun rikisins.
Samkvæmt þvi er gert ráð fyr-
ir að takmarka vexti af lánum
stofnunarinnar við meðaltals-
ársvexti allt lánstimabilið.
Lagt er til að þeir verði aldrei
hærri en 7 3/4%,að meðtalinni
þóknun veðdeildar. Fellur
vísitöluálagið að sjálfsögðu
inn i þessa vaxtatölu. Hanni-
bal Valdimarsson félagsmála-
ráðherra sagði, i viðtaii viö
Timann I gærkvöldi, að hér
væri um óhjákvæmilega laga-
breytingu að ræða til aö leiö-
rétta það kerfi, sem gilt hefur i
þessu efni. Þessi lagabreyting
þýðir það, að vextirnir verða
mjög iágir i byrjun lánstim-
ans, einmitt á þeim tima, sem
greiðslugeta lántakenda er
oftast mjög takmörkuð.
t frumvarpinu er ennfremur
gert ráð fyrir þvi, að árlegt
framlag lánveitinga til eldri
ibúðarhúsa verði 70 milljónir
kr. i stað 50 milljóna, eins og
nú er i lögum. Þá er lagt til að
fækka fulltrúum i húsnæðis-
málastjórn úr 8 i 6 og fulltrú-
um i stjórnum verkamanna-
bústaða úr 7 i 4, ,,þar eð fjöl-
mennar stjórnir eru jafnan
nokkuð þungar i vöfumog þar
að auki kostnaðarsamar”,
segir i athugasemdum með
frumvarpinu.
Ennfremur segir i athuga-
semdum frumvarpsins:
,,Að óbreyttum ákvæðum
laganna um viðbót á árs-
greiöslur lána, sem svarar
helmingi þeirrar hækkunar,
sem verður á kaupvisitölu,
sbr. C-lið 8 gr., er fyrirsjáan-
legt, að raunvextir verða með
timanum óbærilega háir. Fyr-
ir þvi er lagt til i frumvarpi
þvi, sem hér liggur fyrir, að
takmarka vextina við meðal-
talsársvexti allt lánstímabilið,
þannig að þeir verði ekki
hærri en 7 1/2% að viðbættri
þóknun til Veðdeildar Lands-
bankans, sem er 1/4% sbr. 3.
gr. frumvarpsins. Þessi regla
þýðir það, að vextirnir verða
mjög lágir i byrjun lánstim-
ans, einmitt á þeim tima, sem
greiðslugeta þeirra, sem
byggt hafa, er oftast mjög tak-
mörkuð. Vextir verða á hinn
bóginn tilsvarandi hærri ein-
hvern tima siðar á lánstiman-
um, þegar ætla má, að skuld-
arar hafi meiri greiðslugetu,
þar eð byggingarskuidir hvfla
þá væntanlega ekki eins þungt
á þeim.
Reynslan hefur leitt i ljós,
að takmörkun i 4. málsgrein
A-liðs 8. gr. laganna, sem
kveður á um, að ekki megi
verja meir en 50 milljónum
króna árlega til lánveitinga til
kaupenda eldri ibúðarhúsa, er
of þröng. Er þvi lagt til, að
verja megi allt að 70 milljón-
um króna til slikra lána.”
J
Það fór vist ekki framhjá vegfarendum f dag, þegar stúdentsefni Menntaskólans í Reykjavfk óku um götur
borgarinnar, með ærslum og i ýmsum klæðum. Hér er hópur, sem kaus að vera I fangabúningum í hey-
hleðsluvögnum, sem dregnir voru af dráttarvélumj Timamynd Róbert)
Allur aflinn í 1. flokk er
Örvar landaði í Reykjavík
Þó—Reykjavik.
Togskipið Örvar frá
Höfðakaupstað landaði
38 tonnum af bolfiski i
Reykjavik i gær, og er
það svo sem ekkert
óvenjulegt, að togskp
landi afla i Reykjavik.
Það, sem er óvenjulegt
við þessa löndun, er að
Örvar var með allan
fiskinn i kössum, og var
fiskurinn metinn 100% i
fyrsta verðflokk, sem er
mjög óvenjulegt með
heilan bátsfarm.
örvar hefur verið með fiski-
kassa um alllangan tima, og hef-
ur matið á fiskinum ávallt verið
mjög gott.
Verð á 1. flokks þorski, sem er i
kössum, er 50 aurum hærra en á
fiski, sem hafður er i stium, og á
ýsu er verðið 1.50 kr. hærra.
Söfnuðu nær 5 millj. kr.:
Rauða
fjöðrin
greiðir upp-
skurðartækin
OÓ—Reykjavik.
Ilauðar f jaðrir voru seldar fyrir
milli 4 og 5 millj. kr. um siðustu
helgi. Endanlegt uppgjör liggur
ekki fyrir, en þeir sem bezt
þekkja til, telja að upphæðin sé
nær 5 millj. kr. Allir Lionsklúbbar
á landinu, sein eru 54 talsins,
lögðust á citt við að selja rauðu
fjöðrina, og verður ágóðanum
varið til kaupa-á tækjum til augn-
uppskurða. Verða tækin sett upp I
augnstöðinni á Landakotsspitala.
Lionskl. tóku að sér þetta
verkefni, vegna þess að talið er að
ástandið varðandi glákublindu sé
miklu alvarlegra hér á landi en
annars staðar, og að það beri að
berjast gegn þessum sjúkdómi
með öllum tiltækum ráðum.
Augnstöðin i Landakotsspitala
hefur gefið góða raun, og til að
dreifa ekki kröftunum, verður
lögð höfuðáherzla á að efla stöð-
ina, og þá fyrst og fremst með
tækjum til uppskurða. Einnig
verða keypt svokölluð þrýstipróf-
unartæki, og verða héraðslækn-
um um allt land send þau, en slik
tæki eru notuð til að finna gláku á
byrjunarstigi.
Tæki þau, sem Lionsklúbbarnir
ætla að kaupa og gefa, kosta milli
4 og 4,5 millj. kr. Er þvi augljóst,
að söfnunin hefur náð tilgangi
sinum og hægt verður að kaupa
tækin fyrir söfnunarféð. Eitthvað
mun dragast frá heildarupphæð-
inni vegna kostnaðar viö söfnun-
ina, en það er ekki veruleg upp-
hæð. ,
Sá klúbbur sem mestu \safnaði
var Freyr, sem er yngsti Lions-
klúbburinn I Reykjavik. 30 með-
limir hans söfnuðu um hálfri
millj. kr.