Tíminn - 23.04.1972, Qupperneq 7
Sunnudagur 23. april 1972.
TÍMINN
TŒ?£QBTTTTm
7
Spádómur
Christina prinsessa i Sviþjóð á
að gifta sig á þessu ári, ef spá-
dómur dönsku stjörnuspákon-
unnar Ruth Wennerholm reyn-
ist réttur. Eginmaðurinn verður
þó ekki Tord Magnusson, sem
Christina hefur mikið skemmt
sér með undanfarin ár, og við
höfum oft talað um hér i
Speglinum. Ekki getur spákon-
an sagt frá þvi, að Karl Gustaf
bróðir Christinu gifti sig fljót-
lega. Hann kemur til með að
velja sér konuefni af skyldu-
rækni en ekki af ást, segir spá-
konan. Kannski er það þess
vegna, sem hann skemmtir sér
svona mikið og vel með alls
kyns kvenfólki, segja sænsku
blöðin, sem eru orðin heldur
þreytt á prinsinum sinum, og
vinkonum hans.
Tuttugu ár í valdastóli
Tuttugu ár eru nú senn liðin sið-
an Elizabeth Bretadrottning tók
við völdum i Englandi. Þykir
mörgum sem timinn hafi liðið
hratt, en reyndar má sjá það á
andliti drottningar, að hún hefur
breytzt á þessum 20 árum. Enda
er það ekki nein furða, þvi hún
var aðeins 25ára gömul stúlka,
þegar hún varð drottning. Þá
var hún reynslulitil, og undi sér
betur meðal hestanna sinna,
heldur en i hópi ráðherra og
stjórnmálamanna. Á þessum
tuttugu árum hefur hún orðið
sviðsvanari, og á ekki lengur i
neinum erfiðleikum með að
koma fram. Hún hefur dregið
nokkuð úr þeim föstu reglum,
sem tröllriðu öllu i sambandi við
kóngafólkið i Englandi og fram-
komu þess, og framkomu al-
mennings gagnvart þvi. Fyrir
það hefur hún hlotið nokkrar
vinsældir. Hún er nokkuð vel
liðin af þegnum sinum, en ekki
elska þeir hana neitt sérlega
mikið. Skoðanakannanir hafa
sýnt, að meiri hluti Englendinga
vill hafa konungsriki áfram þar
i landi, svo Elisabeth þarf ekki
að óttast, að missa atvinnu sina.
Ný vinkona Brandos
Marlon Brando hefur að undan-
förnu verið i Paris, þar sem
hann hefur leikið i kvik-
myndinni Guðfaðirinn. Þar
hefur hann átt vingott við
bandarisi.a sýningarstúlku og
ljósmyndafyrirsætu, Joan að
nafni. Marlon gengur sjálfur um
götur Parisarborgar með sitt
hár og hárband, og i galla-
buxum, eins og hreinn og beinn
hippi. Mikið hefur verið skrifað
um Brando og son hans, sem
talið var, að hefði verið rænt.
Sonurinn heitir Christian og er
13 ára gamall, sonur Brandos og
fyrrverandi konu hans önnu
Kashfi. Þau Anna og Marlon
skildu árið 1959 og siðan hefur
Marlon gert allt, sem i hans
valdi hefur staðið til þess að fá
forráðarétt yfir syni sinum, en
það hefur ekki gengið. Nú
siðast, þegar allir héldu að
syninum hefði verið rænt,
reyndist hann vera i haldi hjá
konu nokkurri, sem Anna
borgaði 30 þúsund dollara fyrir
að fela hann fyrir föðurnum.
Eftir þetta siðasta uppátæki
móðurinnar þykir liklegt, að
Marlon fái að taka soninn til sin.
af stað til Galapagoseyjanna við
Suður-Ameriku. Það þykir vist
engum merkilegt, þvi hann hef-
ur verið á stöðugu ferðalagi frá
þvi hann var 16 ára, og nú er
hann 50 ára. Það óvenjulega við
þetta ferðalag er, að hann fer
þessa ferð með eigin ferða-
félagi, og hver einasti þátttak-
andi i ferðinni hefur greitt um
150 þúsund krónur fyrir þriggja
vikna ferð og uppihald. Bitsch
hefur sagt, að hann geti safnað
saman þátttakendum i einar 10
til 15 aðrar ferðir á borð við
þessa, og þar að auki i 25 minni
ferðir á einu ári. Ekki segist
hann vera að keppa við ferða-
skrifstofurnar Spies og Tjære-
borg, heldur geri hann þetta
vegna þess, að honum finnst
sjálfum skemmtilegt að ferðast
og hafa með sér fólk, sem hann
getur frætt um allt það, sem
hann sjálfur veit. Fyrsta ferðin,
sem Bitsch skipulagði var til
pýramidanna i Egyptalandi fyr-
ir sjö árum. Siðan hefur hann
farið i óteljandi stuttar og lang-
ar ferðir, og það eina, sem hann
krefst af samferðamönnum sin-
um er, að beir geti tekið þvi,
sen að hönaum ber með ró og
stillingu. Hann vill heldur ekki,
að fólk búi á lúxushótelum, þvi
þar sé allt ol' mikið af ferða-
mönnum, og þar sem ferða-
mennirnir eru, sést ekki hið
raunverulega þjóðlif hvers
lands.
Islendingur inn á Strikinu
tslendingurinn Otto Sigvaldi,
sem hefur gengið árum saman
um Strikið i Kaupmannahöfn
með barnavagn á undan sér, er
sagður hafa gefið út 34 bækur
Þykir það vel af sér vikið, en
ekki vitum við nákvæmlega um
hvað allar þessar bækur eru.
Hjartaflutningur
Kúreki nokkur i Bandarikjunum
var lagður inn á sjúkrahús i
þeim tilgangi að láta skipta um
hjarta. Honum var gefinn kost-
ur á þremur hörtum. Eitt var
hjarta ungs iþróttamanns, ann-
að var hjarta ungrar konu, en
þriðja hjartað var ú 69 ára
gömlum bankastjóra. Kúrekinn
valdi hjarta bankastjórans, og
gaf þá skýringu, að það væri
hjarta, sem trygging væri fyrir,
að aldrei hefði verið notað, og
þvi ætti að vera bezt að fá það.
Rithöfundur meö
feröaskri fstofu
Ferðabókahöfundurinn við-
frægi, Jörgen Bitsch, er lagður
Dýrt baöherbergi
Það er nokkuð misjafnt, hvað
fólk leggur mikið upp úr þvi,
sem i kring um það er. Söngvar-
inn Engilbert Humperdinck á
nóg af peningum, og hann vill
hafa fina, eða að minnsta kosti
dýra hluti á heimili sinu. Bað-
herbergið hans eitt er sagt kosta
720 þúsund krónur, og ætti að
vera gaman að baða sig i sliku
herbergi. Flestir veggir eru
þaktir speglum, og i baðher-
berginu er lika sjónvarp, svo
ekki á söngvarinn að þurfa að
missa af neinu, sem fram fer á
skerminum, þótt hann sé að
skola af sér óhreinindin.
Fyrsti flakkari: — Ég vildi óska,
að ég ætti milljón krónur.
Annar flakkari: — Mundirðu þá
gefa mér helminginn?
Fyrsti flakkari: — Nei, þú getur
sjálfur óskað þér hennar.
— Blöndungurinn, sem þér selduð mér, sparar mér 45% af bensini,
kertin 45% og loftsfan 25%. Nú verðið þér að selja mér eitthvað,
sem kemur i veg fyrir, að bensinið fljóti alltaf út úr geyminum.
Frá sér munin af hrifningu sat
fallega, unga stúlkan og horfði á
orðurnar á brjósti sjóliðsforingj-
ans. Hún benti loks á eina og
spurði fyrir hvað hann hefði feng-
ið hana.
— Þessa fékk ég fyrir 10 ára góða
hegðun, svaraði hann.
— Almáttugur! Hafið þér aldrei
fengið landgönguleyfi?
Sér til undrunar sá læknirinn, að
flaska með engum miða stóð á
hillunni innan um allar þær
merktu i apótekinu.
— Hvað er i þessari flösku? spurði
hann lyfsalann.
— Þetta hefur bjargað mörgum
mannslifum, svaraði hinn.
— Já, en hvað er það?
— Vatn. Það notum við, þegar við
getum ekki lesið á lyfseðlana
yðar.
DENNI
ÆkA A I A I ICI Tvo miða i viðbót, (
U/t/VlALAUol mamma orðin jöfn