Tíminn - 25.04.1972, Síða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
N
S£MVBJLASTÖDIH HT
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
■-
92. tölublað — Þriðjudagur 25. april 1972 — 56. árgangur.
Utanríkisráðherrarnir sem komu til Reykjavíkur i gærkvöldi. F.v. Sorsa utanrikisráðherra Finna, þá Cappelen utanrikisráðherra
Noregs og VVickman utanrikisráðherra Svia. Til hægri við ráðherrana eru sendiherrar Noregs og Sviþjóöar á tslandi.
(Timamynd Gunnar)
Norrænu utanríkisráðherr
Reykjavík
KJ-ReykjavIk.
1 dag verður árlegur vor-
fundur utanrlkisráðherra
Norðurlandanna haidinn i
Reykjavik og sitja allir nor-
rænu utanrikisráöherrarnir
fundinn.
Um tima leit út fyrir að ein-
hver forföll yrðu á fundinum,
vegna þoku, sem hamlaði flugi
á SV landi I dag, en klukkan
kortér fyrir sjö renndi Boeing-
þota Flugfélagsins sér niður á
Viöurkenning Austur-
Þýzkalands verður til umræðu
á fundinum, eftir þvi sem K.B.
Andersen utanrikisráöherra
Dana hefur látið hafa eftir sér.
Þá má búast við aö Stokk-
hólmsráöstefna Sameinuöu
þjóðanna um mengun og um-
hverfisvernd veröí til umræðu
hjá ráðherrunum, meö tilliti
til þátttöku i Stokkhólmsráð-
stefnunni.
Reykjavikurflugvöll, en
innanborðs I henni voru m.a.
utanrikisráöherrar Finnlands,
Sviþjóðar og Noregs. Utan-
rikisráðherra Dana kom
hingað á sunnudaginn.
I gær unnu embættismenn
að undirbúningi dagskrár
fundarins, en utanrikisráðu-
neytið gat ekki I dag, gefið
upplýsingar um einstok mál,
sem verða þar til umræöu.
Alls munu 43 sitja utanríkis-
ráðherrafundinn, sem
haldinn verður i Atthagasal
Hótel Sögu, og hefst klukkan
hálf tiu. Ráðgert er að
fundinum ljúki siðdegis i dag,
og strax á eftir veröur efnt til
blaðamannafundar, þar sem
skýrt verður frá niðurstööum
fundarins.
Kjarval
jarðsetturá
miðvikudag
SJ-Reykjavik.
tltför Jóhannesar Kjarvals iist-
málara fer fram kl. 11 á miöviku-
dagsmorgun frá Dómkirkjunni.
Jaröarförin veröur á kostnað
rikisins I virðingarskyni við hinn
látna. Kjarval verður grafinn I
Gamla kirkjugaröinum viö
Suðurgötu.
Torfbærinn
brann til
kaldra
kola
Klp-Reykjavik.
1 fyrrinótt brann bærinn
Bakkagerði viö Hjalteyri til kald-
ra kola. Bærinn, sem var gamall
torfbær, hefur undanfarin ár
verið notaður sem sumarbú-
staður og mun eigandinn hafa
verið I honum um helgina, en
enginn var þar þegar eldurinn
kom upp.
Eldurinn sást frá lögreglustöð-
inni á Akureyrþen þá var búiö aö
gera viövart. Þegar slökkviliöið
kom á staöinn var húsiö brunnið,
enda logaöi vel i margra ára
gömlu timbrinu og torfinu.
Halldór Laxness í ávarpi til Háskóla íslands
NEFNDU NAFNIÐ MITT
EF ÞÉR LIGGUR LÍTIÐ VIÐ
OÓ-Reykjavík.
— Nefndu nafnið mitt ef þér
liggur Htiö við, sagði Halldór
Laxness við Háskóla islands er,
hann var sæmdur heiðurs-
doktorsnafnbót á sjötugsafmæli
sinu sl. sunnudag.
Löng biðröö var við samkomu-
hús lláskólans við Hagatorg
löngu áður en hátiðarsamkoman
hófst. Þegar afmælisbarniö,
forseti íslands og háskólarektor
gengu i salinn, var hann þétt-
setinn fólki á öllum aldri og áttu
liklega allar starfsgreinar sina
fulltrúa þarna. Margt var til
skemmtunar.
Magnús Már Lárusson,
háskólarektor, setti samkomuna I
himinblárri og skinnbryddaðri
skykkju sinni. Þá sté forseti
Heimspekideildar, Sveinn Skorri
Höskuldsson, á svið og lýsti kjöri
heiðursdoktors. Rakti hann for-
sendur þeirrar ákvörðunar
Háskóla íslands, Heimspeki-
deildar og Rannsóknarstofnunnar
I bókmenntafræði, aö kjósa Hall-
dór Laxness Doctor litterarum
Islandicarum honoris causa, og
afhenti skáldinu doktorsskjal.
Forseti Heimspekideildar gekk af
sviðinu og eftir stóö nýkjörinn
heiðursdoktor. Hann
sagði: „Háttvirti forseti
Islands, Rektor Háskóla Islands,
Háttvirti forseti Heimspekideild-
ar Háskóla tslands, Háttvirta
samkoma.
ÉG vil leyfa mér aö þakka
Háskóla Islands og Heimspeki-
deild Háskólans fyrir þann ein-
staka virðingarvott, sem mér
hefur verið sýndur á þessum degi,
þar sem ég hef verið kallaður
hingaö á svæði Háskólans til þess
að taka á móti einstakri heiöurs-
viðurkenningu. Ég er ekki
háskólamaöur, þó að ég hafi orðið
var við það aftur og aftur, að
Háskóli tslands hefur lagt fram,
eða stutt með meðmæli sínu,
nokkra þá hluti, þar sem mitt
nafn var við bendlað, þá er það I
raun og veru i fyrsta skipti i dag,
sem fundum minum og Háskól-
ans bera saman.
Ég vil leyfa mér að óska
Háskólanum til hamingju með,
aö ég hygg, þá nýbreytni, að ljá
áhrifavald sitt, til þess að veita
viöurkenningu mönnum, sem
kannski um langan aldur hafa
starfað að menningarstörfum,
sem þó ekki tilheyra I raun réttri
neinni skýrt afmarkaðri grein,
sem Háskólinn hefur afmarkað
sér. Ég veit ekki hvort þessari
heiðurs nafnbót fylgir jus
docendi, hvað sem það er, þá veit
Háskólinn nú hvar mig er að finna
og ég segi eins og gamla fólkið
sagði stundum við mann: Nefndu
nafnið mitt ef þér liggur litiö viö.”
Siöan hófst söngur á ljóðum og
upplestur á sögum eftir Halldór
Laxness.
Halldór Laxness ávarpar samkomuna f Háskólabióiá sunnudaginn.
(TímamyndG.E.)