Tíminn - 11.05.1972, Síða 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 11. maí 1972
loksins hringdi mig upp, svo
sannfærður var hann um það,aö
það hefði verið honum sjálfum,
sem var gert rangt til, að ég var
næstum glöð yfir þvi,að ég var al-
gjörlega upptekin næstu dagana.
En svo iðraðist ég og stakk upp á
þvi,að við borðuðum saman há-
degisverð á mánudag.
Chris hafði Fleur með sér á
sjónvarpsþáttinn, sem hóf göngu
sina á sunnudag. Eftir sýn-
inguna klappaði hann mér á öxl-
ina og sagði: — Þú stóðst þig með
ágætum, Kay. Þá fann ég að ein-
mitt þessum orðum hafði ég beðið
eftir alla mina ævi. ()g mér var
það afar mikils virði, að Chris
skyldi lika vel við mig.
Þegar t*g gekk til móts við
Jónatan um hádegið á mánudag,
var ég staðráðin i þvi að forðast
efnið Fairfield. Hann var bæði
elskulegur og skemmtilegur,
hann var Jónatan eins og hann
gat beztur verið.
Samt sem áður varð okkur ekki
forðað frá þvi, að ráðgerð
Mildred Blaney, um að byggja
álmu við Fairfield-húsiö, bærist i
tal. Ég held að við höfum bæði
skilið, að þetta var hæltulegt um-
ræðuefni, og vógum þvi orð
okkar.
Það mundi nállúrlega leysa
ýms vandamál, sagði hann kæru-
leysislega. ()g þú þarft ekki að
vera neitt rigbundin við fjölskyld-
una, Kay. Við höldum náttúrlega
ibúðinni þinni og gelum búið þar,
en aðeins verið á Fairfield um
helgar. Þannig yrðum við þeim
heima algjörlega óháð.
Já, Jónatan virtist þessi ráöa-
gerð mundi leysa mörg vanda-
mál. Eg gat aðeins séð þann
vanda og leiðindi, sem hún mundi
skapa.
— Já, það getur vel verið að
það geti gengið vel, sagði ég. —
Við getum athugað þetta betur,
þegar við komum heim úr
Amerikuferðinni.... Fairfield
verður áreiðanlega á sinum stað
fyrst um sinn.
— Væri ekki betra að hefjast
handa strax, þá gæti ibúðin verið
lullgerð, þegar við komum úr
ferðinni?
— Ég kysi að fá að vera nær-
stödd meðan á byggingafram-
kvæmdunum stendur. Það er svo
ótal margt, sem við verðum að
taka afstöðu til. Og eins og stend-
ur er ég algjörlega upptekin. Það
er kvikmyndin og sjónvarpið,
eins og þú veizt...
Ég verð að fá vilja minum
framgengt i þessu, hugsaði ég,
verð að fresta málinu svo lengi
sem mögulegt er, án þess þó að
beita mér beinlinis á móti þvi. Ég
hefði getað grálið af hugarlétti,
þegar hann svaraði mér að visu
nokkuð tregur:
— Ég býst við, að þú hafir rétt
l'yrir þér, breytingar á gömlum
húsum geta hafa ófyrirsjáanlega
erfiðleika i för með sér, en við
viljum auðvitað bæði að allt
þarna verði algjörlega fullkomið.
Við verðum að finna alveg af-
bragðs góð og sjaldgæf húsgögn,
Kay. Ég mun horfa i kringum mig
og vita^hvort ég sé ekki eitthvað,
sem hentar okkur..... og nú var
hann alveg i essinu sinu, og mér
létti stórum.
Jónatan þurfti að fara til Wales
og dvelja þar i vikutima til þess
að mæta á uppboðum þar um
slóðir. Þegar ég fylgdi honum á
járnbrautarstöðina krossbrá mér
yfir minum eigin tilfinningum. 1
lyrsta sinn,sem ég þurfti að sjá af
honum, varð ég mjög hnuggin
þegar hann fór. Nú fannst mér,
nærri þvi að segja, að mér létti.
Vesalings Jónatan, hugsaði ég.
Ég vissi að hann elskaði mig
djúpt og mikið, og ég reyndi að
segja við sjálfa mig að ég endur-
gildi honum þessar tilfinningar.
lilg óskaði innilega að finna bylgju
af kærleika til hans fara um mig.
En það einasta, sem ég fann nú
var ömurleg meðaumkvun með
honum.
A meðan Jónatan var fjarver-
andi bauð ég Eiriki og I Jndsay á
sjónvarpsþátt, og þau voru mikið
glöðyfir þvi að fá að koma barna.
Ég hafði einnig boðið Maeve, en
Eindsay sagði mjög hátiðleg að i
dag væri afmælisdagur Honaids,
og hún gæti þess vegna ekki farið.
Hún ætlaði að vera heima hjá
móður sinni um kvöldiö.
Ég gat ekki séð nokkurt vit i
þessu, en þagði. Lindsay kom til
Lundúna snemma dags, og við
vorum mest allan daginn i búð-
um.
Lindsay keypti jakka og pils,
ekki hið hagnýta dökkbláa, sem
hún var að hugsa um, heldur
reglulega glæsilegan ljósgráan
jakka með viðeigandi pilsi. Ég
fékk þvi ráðið að hún keypti
blússu og hatt, sem átti við. Hún
mátaði alveg yndislegan
lavendelblána nælon-kjól, og ég
reyndi allt,sem ég gat til þess að
fá hana til að kaupa hann.
— Hann mundi eiga mjög vel
við i viðhafnarlausu brúðkaupi,
sagði ég mjög svo sakleysislega.
— En ég ætla ekkert að gifta
mig — ekki ennþá að minnsta
kosti.
— Þú ert þó trúlofuð Eiriki, eða
er ekki svo? Hugsaðu þér ef hann
kæmi með leyfisbréfið einhvern
daginn, og segði við þig: ,,Nú eða
aldrei”. Þá kæmi sér það vel að
hafa þennan kjól við hendina.
— Eirikur veit, hvað ég hef
við að striða, og er mér um-
burðarlyndur, sagði Lindsay
stillilega, en hún stóð lengi með
kjólinn i hendinni, nógu lengi til
þess að ég keypti kjólinn svo litið
bar á. Hann gat allt að einu hang-
ið i minum klæðaskáp.þangað til
hún þyrfti til hans að taka.
Við borðuðum hádegisverð
saman á iburðarmiklum veit-
ingastað. Lindsay fannst mjög til
um það, hvað ég var kunnug
mörgu fólki frá leikhúsunum.
— Ég hef aldrei fyrr komið inn
á svona glæsilegan veitingastað,
sagði hún i hrifningu sinni. —■
Eirikur hefur aldrei haft ráð á þvi
að fara með mig á svona dýran
stað, Hann hefur alls ekki haft
mikið fyrir sig að leggja. Þess
vegna er staðan i Canada hin
raunverulega framtið hans.
— Hann á sannarlega skilið að
fá þá stöðu, sagði ég hjartanlega.
— Hvenær hyggst þú halda á
eftir honum?
Hún varð hálf vandræðaleg. —
Ég veit svo sem ekki. .. kannski
svona eftir hálft ár eða svo.
— Þorirðu þá ekki að fara með
honum og hjálpa honum i hinum
fyrstu örðugleikunum vestra,
sagöi ég sakleysislega, að þvi er
séð varð.
Hún leit snöggt upp. — Það er
ekki það Kay. Ég vil mjög gjarn-
an fara með honum, en ...
— Já, þá er það einmitt,sem
hann þarfnast þin mest, eins og
þú veizt, þegar allt er nýtt og
framandi, og þegar hann er ein-
mitt að hefja baráttu sina upp á
við. Þá er ég viss um að hann þarf
að hafa þig við hliðina á sér.
— Mamma þarf lika á mér að
halda.
Nú andvarpaði ég. Við vorum
aftur komnar að byrjuninni. Ég
hefði getað hrist hana duglega.
En ég reyndi nýtt áhlaup.
— Hvað heldur þú að sé mesta
áhugamál frú Blaney — að öll
börnin hennar séu hamingjusöm.
— Já... ég held það.
— Og ef hún vissi, að það væri
hamingja þin að flytja til Canada
með Eiriki, heldurðu að hún
mundi þá standa i veginum fyrir
þvi? Er hún virkilega svo eigin-
gjörn.
— Auðvitað er hún ekki eigin-
gjörn, hrökk út úr Lindsay. —
Hún er yndisleg kona. En ég get
ekki farið frá henni og vitað til
þess, að ég hefði með þvi sært
hana djúpt, og þar að auki látið
hana halda,að ég vanþakkaði allt
það, sem hún hefur gert fyrir
mig. Ef henni geðjaðist að Eiriki
og gleddist yfir þvi tækifæri, sem
hann hefur fengið, og segði: ,,ég
óska ykkur til hamingju”, væri að
allt annað mál. Þér finnst
náttúrlega ég vera heimsk, en....
en ég get ekki hegðað mér öðru-
visi.
Já, mér fannst hún vera heimsk
— blind, bjánaleg, feimin og
heimsk, en ég sagði ekkert af
þessu, ég fór að tala um annað.
Seinnipartinn á laugardag fór ég
til Fairfield. Nú vildi ég hafa frú
Blaney og Fairfield fyrir framan
mig um stund. Þó heitt væri i
veðri, kom ég að henni sitjandi
fyrir framan glóandi bál i dag-
stofunni.
— Mér er svo kalt. Það er lik-
lega fyrir það hvað ég er orðin
gömul, sagði hún. Mér virtist
hinsvegar að þessi litla, granna
kona vera án nokkurs aldurs —
ekki ung, ekki gömul, og ekki einu
sinni miðaldra. Hún hafði alla
sina daga litið út eins og hún var i
dag. Við fórum að tala um
Jónatan, og þá gaf hún mér
það tækifæri, sem ég beið eftir.
— Það er leiðinlegt að Lindsay
_ skyldi ekki vera heima, Kay,
sagði hún. — Hún er svo hrifin —
1104
Lóðrétt
Lárétt 2) Æfa — 3) Tól — 4) Askar —
1) Land — 6) Þrjátiu ára — 5) Armar — 7) Kál — 8) Fái
10) Vein - 11) Hasar - 12) -9)Aur-13) Vek-14) Tin
Fugla — 15) Á ný —
Lóðrétt
2) Eins — 3) Konu — 4)
Ódæla — 5) Óduglegar — 7)
Skrúfur — 8) Hal — 9)
Eiturloft — 13) Hulduveru —
14) Sóma —
Ráðning á gátu No 1103
Lárétt
1) Ræsta — 6) Skaflar — 10)
Ká — 11) Um — 12) Alvitra —
15) Ókunn —
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
ll.maí
Uppstigningardagur
8.30 Létt morgunlög.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
veöurfregnir).
11.00 Messa i Bústaðakirkju.
13.00 Á frivaktinni.
14.30 Siðdegissagan: „(Jttekt á
milijón” eftir P.G.
Wodehouse. Einar
Thoroddsen les (3).
15.00 Guðsþjónusta i Aðvent —
k i r k j u n n i.
16.00 Kammerkórinn i Vin
syngur lög eftir Bruckner,
Gillesberger stj.
16.15 Veðurfregnir.
Siðdegistónlcikar: Frá
tónlistarhátið i Hainaut á
s.l. ári.
17.00 Barnatimi.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Stundarkorn með þýzka
söngvaranum Dietrich
Fischer-Dieskau, sem
syngur lög eftiiMendjlssohn.
19.30 Gestir i útvarpssal:
Catherine Eisenhoffer og
Brigittc Buxtorf frá Sviss
leika saman á hörpu og
flautu verk eftir Rossini,
Purcell og Fauré.
19.40 „Heimsljós” eftir
Haildór Laxness. Leik- og
lestrardagskrá fyrir útvarp,
saman tekin af Þorsteini ö.
Stephensen eftir miðhluta
bindis, Húss skáldsins.
21.00 Tónl-eikar Sinfóniu-
hljómsveitar islands i
Háskólabíói. Stjórnandi:
Bohdan Wodiczko.
Einlcikari: Sidney Sutcliffe
frá Bretlandi.
21.50 Trúarljóð eftir Bólu-
Hjálmar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
„Kvöldvaka”, smásaga
22.35 Danslög
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 12.maí
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Gttekt á
milljón” eftir P.G.
Wodehouse. Einar
Thoroddsen les (4).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegistónleikar.
17.30 Or ferðabók Þorvalds
Thoroddssens. Kristján
Árnason byrjar lestur úr
bókinni.
18.00 Fréttir á ensku.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Mál til meðferðar.
20.00 Otvarp frá Alþingi:
Almennar stjórnmálaum-
ræður, eldhúsdagsumræður,
— fyrra kvöld.
Fréttir og veðurfregnir.
Dagskrárlok um kl. 23.30.
I
ll ll lllÍi ll
FÖSTUDAGUR I2.mai
20.00 Fréttir
20.25 Veður og augl
20.30 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmenn
Njörður P. Njarðvik, Vigdis
Finnbogadóttir, Björn Th.
Björnsson, Sigurður Sverrir
Pálsson og Þorkell Sigur-
björnsson.
21.10 Hinn framagjarni.
Brezkt sjónvarpsleikrit. Aðal
hlutverk Peter Barkworth,
Isabel Black og Tom Chad-
bom. Þýðandi Kristmann
Eiðsson. Miðaldra maður,
sem lengi hefur sinnt starfi
sinu af miklum áhuga og
dugnaði, en vanrækt fjöl-
skyldu og heimili að sama
skapi, verður óvinnufær og
verður að leggja nýtt mat á
gildi heimilis og atvinnu.
22.05 Erlend málefni. Um-
sjónarmaður Jón H.
Magnússon.
22.35 Dagskrárlok.
i