Tíminn - 11.05.1972, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 11. mai 1972
TÍMINN
15
Jóhannesar minnzt
á baráttufundi
Vinir og samherjar Jóhannesar
úr Kötlum gangast fyrir baráttu-
fundi i minningu hans n.k. sunnu-
dag i Austurbæjarbiói.
Einar Bragi flytur ávarp, lesið
og sungið verður úr kvæðum
Jóhannesar og fluttir ræðukaflar.
Flytjendur: Árni Björnsson, Ási i
Bæ, Briet Héðinsdóttir, Eyvindur
Eiriksson, Sveinn Skorri
Höskuldsson, Nina Björk Árna-
dóttir, Sólveig Hauksdóttir,
Stefán Hörður Grimsson, Vern-
harður Linnet og Þorsteinn frá
Hamri. Pétur Pálsson og félagar
flytja kafla úr Sóleyjarkvæði.
Lokaorð um baráttuna framund-
an i herstöðvarmálunum flytur
Sveinn Rúnar Hauksson. Fundi
stýrir Vilborg Dagbjartsdóttir.
Atvinnulausum fækkar
OÓ-Reykjavik.
30 april s.l. voru alls 417 á at-
vinnuleysisskrá á öllu landinu.
Mánuði fyrr voru 524 á atvinnu-
leysisskrá. Við siðustu skráningu
voru 269 atvinnulausir i kaupstöð-
um, 10 i kauptúnum með 1000 ibúa
og 138 i öðrum kauptúnum.
Flestir voru skráðir atvinnu-
lausir á Ólafsfirði, eða 70, en voru
77 mánuði fyrr. A Siglufirði voru
69 atvinnulausir um siðustu mán-
aðamót og á Sauðárkróki 58.
Nemendamót
Kvennaskólans
Nemendasamband Kvenna-
skólans i Reykjavik heldur sitt
árlega Nemendamót i Tjarnar-
búð laugardaginn 20. mai n.k. kl.
19,30 sd., sama dag og Kvenna-
skólanum i Reykjavik er slitið.
Nemendamótin eru vinsæll siður i
starfssemi Nemendasambands-
ins, þar gefst afmaelisárgöngum
og öðrum fyrrverandi nemendum
gott tækifæri til þess að koma
saman og minnast skólaáranna.
Að þessu sinni verður á dagskrá
meðal annars skemmtiatriði,
sem nemendur úr Kvennaskólan-
um i Reykjavik sjá um, Guðrún
A. Simonar syngur með undirleik
Guðrúnar Kristinsdóttur, spilað
verður Bingo og gestir taka til
máls. Nýútskrifuðum námsmeyj-
um er boðið að koma og gerast
þar með virkir þátttakendur i
nemendamótinu.
Einar
Framhald
af bls. 1
herra Bandarikjanna i ráðherra-
bústaðnum hér i Reykjavik hinn
3. þ.m. lét ég i tilefni af þessu i
ljósi við hann áhyggjur islenzku
rikisstjórnarinnar út af gangi
mála i Vietnam. I gær átti ég svo
samtal við sendiherra
Bandarikjanna hér og gerði
honum i ljósi siðustu atburða
grein fyrir þvi, hversu islenzka
rikisstjórnin hlyti að harma þá
óheillaþróun, sem þessi mál hafa
nú tekið. Þannig hefur að minum
dómialltoffljóttkomið fram það,
sem lyrrnefndur utanrikisráð-
herrafundur óttaðist og vakti
athygli á, þ.e. að aukinn striðs-
rekstur i Vietnam hafi neikvæð
áhrif á samband stórveldanna og
tilraunir til að draga úr spennu.
Þvi miður hefur umrædd sam-
þykkt utnarikisráðherrafunduar
Norðurlandanna, sem kannski
var heldur varla að vænta, ekki
megnað að draga úr þeim striðs-
rekstri, sem háður er i Vietnam,
en ég hygg, að enginn þurfi að
vera i vafa um það, hvaða
skoðanir islenzka rikisstjórnin
hefur á þeim styrjaldarrekstri,
sem þar er nú háður, þegar
þessar upplýsingar hafa verið
gefnar, sagði utanrikisráðherra
Svava Jakobsdóttir þakkaði
ráðherranum svörin og kvaðst
vilja lýsa ánægju sinni yfir,
hversu fljótt hann hefði brugðizt
við, eftir að fréttist um siðustu
atburði i Vietnam. Þá sagði
Svava m.a., að að sinum dómi
væri sú skylda lögð á herðar
islenzkri rikisstjórn og islenzkri
þjóð að leggjast á sveif með þeim
aðilum, bæði bandariskum og
öðrum, sem beittu sér nú gegn
stefnu Nixons i Vietnam og
siðustu hernaðaraðgerðum þar.
— Ennfremur tóku til máls þing-
mennirnir Bjarni Guðnason og
Jóhann Hafstein.
SÆNSKUR LEIKFLOKKUR I
HEIMSÓKN HJÁ L.R.
Jónas Jónssoii.
Tók sæti á Alþingi
EB-Reykjavik.
Jónas Jónsson 1. varaþing-
maður Framsóknarflokksins i
Norðurlandskjördæmi eystra,
hefur tekið sæti á Alþingi i stað
Ingvars Gislasonar, sem er á för-
um til útlanda i opinberum
erindum.
Utvarps-
umrœður
EB-Reykjavik.
Eins og greint hefur verið frá i
biaðinu verða annað kvöld
útvarpsumræður i Sameinuðu
Alþingi, og einnig á mánudags-
kvöldið.
t umræðunum annað kvöld tala
þeir Pétur Pétursson og Stefán
Gunnlaugsson fyrir Alþýðuflokk
inn. Fyrir Samtök frjálslyndra og
vinstri manna tala þeir Björn
Jónsson og Magnús Torfi ólafs-
son, menntamálaráðherra.
Ólafur Jóhannesson, forsætisráð-
herra og Einar Agústsson, utan-
rikisráðherra, tala fyrir hönd
Framsóknarflokksins. Þá tala
fyrir hönd Alþýðubandalagsins
þeir Magnús Kjartansson,
iðnaðarráðherra , Garðar
Sigurðsson og Sigurður Magnús-
son og fyrir Sjálfstæðisflokkinn
tala Jóhann Hafstein, Gunnar
Thoroddsen og Ólafur G. Einars-
son.
Hver flokkur fær 40 minútur til
umráða. Verða umferðir tvær,
þannig að hver flokkur fær 20
minútur i hvorri umferð.
SJ-Reykjavik
Um helgina kemur leikflokkur-
inn F'riteatern frá Sænska rikis-
leikhúsinu i heimsókn til Leik-
félags Reykjavikur og hefur sýn-
ingar i Norræna húsins i næstu
viku. Flokkurinn flytur hér leik-
ritið Goðsögu, sem byggist á
grisku goðsögninni um Þeseif,
sem lagði að velli ófreskjuna
Minótáros. Höfundar leikritsins
eru Frances og Marta Vestin,
sem jafnframt er leikstjóri og
leikmyndasmiður, og hafa þær
lesið i eyður goðsögunnar, tengt
hana pólitiskum veruleika og gef-
ið sinar persónulegu skýringar.
Leikendur eru Kenneth Berg-
ström, Barbro Enberg, Jan Sang-
berg og Jonas Granström. Sýn-
ingarstjóri er Gunnar Kalmer og
Fararstjóri Inger Sjönwall.
Gestaleikur þessi nýtur styrks frá
Norræna menningarmálasjóðn-
um, og hefur sænskur leikflokkur
ekki komið hingað siðan Brúð-
kaup Figarós var flutt hér af
sænskum árið 1950.
Sýning Friteatern á Goðsögu er
talin mjög gott dæmi um tilraunir
litilla leikhúsa á Norðurlöndum
um þessar mundir. Hún hefur
hlotið góða dóma, m.a. taldi
gagnrýnandi Dagens Nyheter
hana með beztu dæmum um,
hvernig unnt er að ljá sigildu efni
gildi i nútimanum.
Takmarkaður fjöldi áhorfenda
kemst á sýningar Friteatern i
Norræna húsinu, en leikritið er
flutt á hringsviði og áhorfendur
sitja allt i kring. Sýningarnar
verða á mánudags- og þriðju-
dags-, fimmtudags- og föstudags-
kvöld kl. 8.30 og á laugardag kl. 4.
Aðgöngumiðasala hefst i Iðnó kl.
2 i dag.
Sænska rikisleikhúsið er eitt af
helztu leikhúsum I Sviþjóð. Það
starfar að miklu leyti sem
farandleikhús, en miðstjórn þess
er I Stokkhólmi. Innan vébanda
Hallgrimskirk ja i
Saurbæ.
Ferming sunnudaginn 14. mai kl.
2. Prestur séra Jón Einarsson.
Þessi börn verða fermd:
Sigriður Jóhannesdóttir,
Geitabergi
Soffia Sóley Magnúsdóttir, Kala-
stöðum
Stefania Erla Pétursdóttir,
Botnsskála
Valdis Inga Valgarðsdóttir,
Eystra-Miðfelli
leikhússins starfa nú margir
sjálfstæðir leikhópar, svo sem
Friteatern. Stærri leikhópar
halda uppi eins konar leikmið-
stöðvum á fjórum stöðum i land-
inu, en einnig eru sendar út leik-
sýningar um landið, bæði þessara
hópa og i samvinnu við önnur
leikhús i Sviþjóð.
Frances Vestin hefur getið sér
orð sem rithöfundur i Sviþjóð á
siðustu árum. Marta Vestin er i
hópi dugmestu leikstjóra i Svi-
þjóð. Hún er nú þritug, en hefur
unnið sem leikstjóri frá þvi hún
var 19 ára. Hún hefur m.a. starf-
L.
að i Borgarleikhúsinu i Stokk-
hólmi, Theatre Worldshop i
London og nú siðast með eigin
leikhópi innan vébanda Sænska
rikisleikhússins. Hún hefur samið
leikrit fyrir börn og stjórnað
þeim. Ásamt Frances Vestin hef-
ur hún siðustu ár sinnt verkefn-
um, sem ekki eru ætluð hefð-
bundnum leiksviðum. Þessar
sýningar hafa verið ætlaðar til
ferðalaga og einkum stilaðar upp
á lýðháskólana. Friteatern hefur
haft námskeið með áhuga og at-
vinnufólki og Marta Vestin hefur
stundað leikkennslu.
SKÁLATÚNSHEIMILIÐ
Foreldrar og aðstandendur vistfólks á
Skálatúnsheimilinu, vinsamlegast athugið
að handavinnu- og skólasýning Skálatúns
verður opnuð i Félagsheimili Kópavogs,
föstudaginn 12. mai kl. 14.
Þeir, sem vilja hafa forkaupsrétt að mun-
um barna sinna eru vinsamlegast beðnir
að mæta við opnunina. Athugið, seldir
munir verða afhentir eftir kl. 22 á laugar-
dag.
Forstöðukona
SLÆGJUR OG
SELVEIÐI
eru til leigu i Saurbæ á Rauðasandi.
Upplýsingar i sima 38965, Reykjavik.
VÖRUBÍLL
Til sölu nú þegar BENZ1418,13 tonna með
lyftihousingu.
Upplýsingar i sima 99-1461 i kvöld og
næstu kvöld.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf I löggiltum iðngreinum (vor-
próf) fara fram i mai og júní 1972.
Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að
sækja um próftöku fyrir þá nemendur
sina, sem lokið hafa námstima og burt-
faraprófi frá iðnskóla. Ennfremur er
heimilt að sækja um próftöku fyrir þá
nemendur, sem eiga minna en 2 mánuði
eftir af námstima sinum, þegar próf fer
fram, þ.e. hafa lokið námi fyrir 1. ágúst
1972, enda hafi þeir lokið burtfaraprófi frá
iðnskóla.
Umsóknum ber að skila til formanns hlut-
aðeigandi prófnefndar fyrir 18. mai n.k.,
ásamt námssamningi, brottfararpróf-
skýrteini frá iðnskóla, fæðingarvottorði og
prófgjaldi.
Skrá um formenn prófnefnda liggur
frammi i skrifstofu iðnfræðsluráðs svo og
hjá iðnfulltrúum og á bæjarfógeta- og
sýsluskrifstofum. Athygli er vakin á þvi,
að sveinspróf mega aðeins fara fram á
auglýstum tima.
Reykjavik 9. mai 1972
Iðnfræðsluráð.
EYRARBAKKI - SELF0SS
Einbýlishús til sölu a Eyrarbakka, 5 herbergi, stór lóö,
hagstætt verð.
Einbýlishús til söiu á Selfossi, 5-6 herbergi, skipti á ibúð I
Reykjavik æskileg.
HÚSAVAL , Skólavörðustig 12.
Simar 24647 og 41230.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Hjón með 2 börn óska eftir 3ja — 4ra herb.
ibúð til leigu i gamla bænum. Algjör
reglusemi.
Tilboð merkt ,,Á götunni 1308” sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir næstu
mánaðamót.
Matráðskona - Kennari
Við hjúkrunarskóla íslands er laus til
umsóknar staða matráðskonu, sem jafn-
framt annast kennslu i næringarefnafræði
og sjúkrafæði.
Húsmæðrakennaramenntun áskilin og
nokkur starfsreynsla æskileg. Laun
samkvæmt launakerfi rikisins.
Skólastjóri