Tíminn - 25.05.1972, Qupperneq 15
Fimmtudagur 25. mai 1972.
TÍMINN
15
Hreinlætistækjasýning í arkitektasalnum
t fundarsal Byggingaþjónustu
Arkitektaféiags tslands aö
Laugavegi 26, stendur nú yfir
sýning á ýmsum búnaöi í baöher-
bergi svo og öörum frágangi, eins
og myndin sýnir. Hér má líta baö-
ker, salerni, handlaugar af ým-
sum geröum og i fjölbreyttu lita-
vali. Veggfiis'ar, veggfóöur og
önnur efni prýöa veggi, sem
mynda þessi baöherbergi. A gólf-
um eru flisar, dúkar og mottur.
Hér gefst byggjendum eöa öör-
um, sem þurfa aö bæta húsakost
sinn á þessu sviöi, kostur á aö sjá
á einum staö sýnishorn frá flest-
um seljendum og spara sér
þannig hlaup milli margra staöa.
Meöan á sýningunni stendur
munu arkitektar veita gestum
ókeypis upplýsingar og leiöbein-
ingar kl. 16-18, e.h.
Sýningin er opin á sama tima
og Byggingaþjónusta A.Í., kl. 10-
12 og 13-18 daglega en laugardaga
kl. 10-12, og mun standa yfir til 28.
maí n.k.
Aðgangur aö sýningum Bygg-
ingaþjónustunnar er öllutn
ókeypis.
Lögreglumennirnir 20, sem útskrifuöust úr framhaldsdeild Lögregluskólans. Timamyndir GE.
sr 61 VID NÁM
Metsölubókin komin út á íslenzku
Allt sem þú hefur viljað vita um kynlífið
Ot er komin islenzkri þýöingu
bókin EVERYTHING YOU
ALWAYS WANTED TO KNOW
ABOUT SEX — but were afraid to
ask —, eftir Dr. David Reuben,
sem nefndur hefur veriö hinn nýi
boöberi heilbrigös kynlifs og er
margfaldur metsöluhöfundur i
heimalandi sinu Bandarikjunum
og viöa annars staöar.
Bókin er i flokki handbóka frá
bókaútgáfunni örn og örlygur
hf., en hún hefur áöur gefiö út t.d.
LÖGFRÆÐIHANDBÓKINA,
TRYGGINGAHANDBÓKINA,
UPPELDISHANDBÆKUR og
bókina ÆSKA OG KYNLÍF, sem
er handbók um kynferöismál fyr-
ir unglinga og uppalendur. Hin
nýútkomna bók fæst eins og fyrri
handbækur frá Erni og örlygi i
tvenns konar bandi.
David R. Reuben styöst viö nýj-
ustu niðurstöður rannsókna i
læknisfræði og sálarfræði, auk
kynreynslu þúsunda eigin sjúkl-
inga. Hann veitir fræöandi, um-
búðalaus og skýr svör við ýmsum
atriðum, sem hafa til þessa veriö
höfð i flimtingum i búningsklef-
um eöa falin i sérhæfðum læknis-
fræöiritum.
Nútima kynlifsfræösla er
hlægileg aö áliti dr. Reubens.
Nemendur veröa fróðari um kyn-
lif á einni helgi en miðaldra kenn-
arar þeirra á langri ævi. Fáfræöi
á þessu sviði er skaövænleg, og til
þess aö eyöa henni eru öll svið
kynlifsins tekin til athugunar i
þessari bók og náttúrlegar og
„ónáttúrulega” hvatir ræddar
hlifðarlaust. Dr. Reuben fellir
enga siðgæöisdóma, en svarar
spurningum á léttan, látlausan og
fullnægjandi hátt. Hann færir
okkur þekkingu I stað þekkingar-
leysis, öryggi i staö óvissu - hann
skýrir undandrátlarlaust og skil-
merkilega ALLT, SEM ÞO
VILDIR VITA UM KYNLIFIÐ,
EN ÞORÐIR EKKI AÐ SPYRJA
UM.
ALLT, SEM ÞO HEFUR
VILJAÐ VITA UM KYNLIFIÐ er
þýdd af Páli Heiöari Jónssynj en
Guösteinn Þengilsson, læknir,
veitti sérfræðilegar upplýsingar
og aðstoð við þýðinguna.
Þeir fengu starfsstyrki í 12 mánuöi Vilhjálmur Bergsson og Jón
Óskar.
OÓ-Reykjavik.
Lögregluskólanum var sagt
upp um siðustu helgi. t vetur
voru I skólanum tvær
byrjendadeildir, sem standa
yfir i sjö vikur, og er þá kennt
allan daginn. i byrjendadeild-
inni, sem kennt var i fyrri
hluta vetrar voru 26 nemend-
ur, en í siðari deildinni voru
nemendurnir 15.
Framhaldsdeild skólans
starfaði fjóra mánuði s.l. vet-
ur og voru 20 nemendur i
þeirri deild. Hafa þvi 60 nem-
endur verið i Lögregluskólan-
um s.l. vetur.
Námsferill þeirra manna,
sem gerast lögregluþjónar er
þannig, að skömmu eftir að
þeir eru ráðnir i starf i lög-
reglulið, hvort sem er i
Reykjavik eða úti á landi, fara
þeir fyrst i byrjunardeildina.
Að loknu námi þar og.próíi fer
hver i það lögreglulið, sem
hann er ráðinn til starfa hjá og
kemur aftur i skólann eftir um
eins og hálfs eða tveggja ára
starfsreynslu. t framhalds-
deildinni sitja þeir svo i fjóra
mánuði, eða mun lengri tima
en i fyrri deildinni.
Lögregluskólinn er starf-
ræktur fyrir allt landið. t vetur
stunduðu þar nemendur frá
Reykjavik, Akureyri, tsafirði,
Hafnarfirði, Kópavogi, Kefla-
vikurflugvelli, og Vestmanna-
eyjum.
Þegar lögregluskólanum er
sagt upp á vorin undirrita ný-
útskrifaðir lögreglumenn heit-
stafinn. Þar heita þeir að
halda uppi stjórnarskrá lýð-
veldisins og öðrum lögum þess.
Skólastjóri Lögregluskólans
er Sigurjón Sigurðsson, lög-
reglustjóri i Reykjavik.
Nýútskrifaöur lögreglumaður undirritar heitstafinn. A miöri mynd er Bjarki Eliasson, yfirlögreglu-
þjónn og lengst til hægri Sigurjón Sigurösson, lögreglustjóri, skólastjóri Lögregluskólans.
SJO LISTAMENN
HLUTU
STARFSLAUN
Sjö listamenn hlutu starfslaun
listamanna fyrir árið 1972, og eru
launin um 30 þúsund á mánuði.
Starfslaunanefnd listamanna út-
hlutaði launununum, og hlutu þau
þessir listamenn:
Laun i 12 mán. hlutu: Jón óskar,
rith. og Vilhjálmur Bergsson,
listmálari. 6 mán. laun hlutu:
Agúst Petersen, listmálari,
Magnús Tómasson listmálari,
Nina B. Arnad., skáldk., og
Steinar Sigurjónss., rithöfundur.
Hafliði Hallgrimss., tónskáld
hlaut þriggja mánaða laun.
Alls bárust 30 umsóknir. Til út-
hlutunar voru 1,5 millj. kr.
I starfslaunanefnd eiga sæti:
Halldór Kristjánsson, formaöur
úthlutunarnefndar listamanna-
launa, Hannes Daviðsson, for-
maður Bandalags isl. lista-
manna, og Knútur Hallsson,
skrifstofustjóri menntamála-
ráðuneytisins, sem jafnframt er
formaður starfslaunanefndar.
Jón óskar hlýtur launin til að
halda áfram ritverki, sem hann
vinnur að, Vilhjálmur Bergsson
og Agúst Petersen til að starfa að
málaralist, Magnús Tðmasson til
tilrauna i leikskúlptúr á barna-
leikvöllum, Nina • Björk
Árnadóttir til þess að semja
ljóðaflokk um Jesús Krist og kær-
leikann i Nýja testamentinu,
Steinar Sigurjónsson til þess að
semja skáldsögu i ljóðrænu
formi, og Hafliöi Hallgrimsson til
þess að starfa að tónsmiðum.
JARÐSK JALFTAKIPPIR
í B0RGARFIRÐI
ÞÓ-Reykjavik.
Fólk i ofanverðum Borgar-
fjarðardölum varð vart við jarð-
skjálftakippi um klukkan 11 á
sunnudagskvöldið.
Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur sagði, að einn
kippur hefði komiö fram á jarð-
skjálftamælum veðurstofunnar.
Reyndist kippurinn vera um 4 stig
á Richterkvarða.
Ekki var búið að staðsetja upp-
tökustaöinn nákvæmlega, en talið
er, að jarðskjálftakippirnir hafi
átt upptök sin um 100 km frá
Reykjavik, og þá skammt'sunnan
við Eiriksjökul.