Tíminn - 11.07.1972, Síða 2
2
TÍMINN
Þriftjudagur 11. júli 1972
Ford 2000 diesel
traktor árgerð 1966
TIL SÖLU
Nánari upplýsingar i
síma 81500
P ÞÓRHF
Bréf frá
lesendum
HAFA SKAL ÞAÐ
ER SANNARA REYNIST.
tJt af grein er birtist i
Húnavöku, 12. árgangi 1972 eftir
Sigurð Björnsson hreppstjóra á
örlygsstöðum „Þeir fórust
Frá Sjálfsbjörg
Æskulýðsmót Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum verður
haldiö i Noregi dagana 28. ágúst til 2. sept. n.k.
Þátltökugjald er kr. 2.700.00. Bandalagið veitir nokkra
styrki til fararinnar.
Umsóknarfrestur er til 20. júli n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjálfsbjargar
l.s.f., Laugavegi 120, simi 25288.
allir”, ieyfi ég mér að koma á
framfæri eftirfarandi athuga-
semdum um sjóslys þaö, er varð
á Nesjamiöum þann 23. júli 1914,
þegar Rögnvaldur Jónsson, for-
maöur á árabátnum Suðra fórst
með allri áhöfn.
1 nefndri ,grein vill
hrepp|Stjórinn reyna að koma
einhverjum þjóðsagnablæ á
frásögn, sina og svo blátt áfram
ósannindum, sem ég kann ekki
við og vil leiörétta.
Ég vissi ekki til, að Guðlaugur
faðir minn væri ragur i
ferðalögum, þeir er þekktu hann
bezt munu ekki hafa borið honum
það. Hitt var annað mál, að hann
var félagslyndur og hafði gaman
af samfylgd góðra manna.
Valdimar bróðir minn var
rúmlega 19 ára, orðinn nokkuð
vanur sjósókn og búinn að
lenda i sjóhrakningi áður með
Sigurði Jóhannsáyni (stóra)
norðan af Nejsamiöum og inn að
Blönduósbryggju ásamt þeim
fleiri i norðan hriö og roki. Það
var á hans fyrstu haustvertið.
Ég vil geta þess hér, að
Valdimar var nauðugt að róa
með Rögnvaldi þetta sumar,
vegna Valdimars sonar hans, en
þeir áttu ekki skap saman, en
gerði það samt, sem annað, af
þægð við föður sinn. Ég sá ekki til
neins að ganga i það, faðir minn
var ekki vanur að breyta
loforðum sinum, frekar en öðru,
sem hann tók að sér.
Hvalsaga Sunnlendingsins
finnst flestum ævintýraleg skrök
saga, enda sögð til að gera hosur
sinar grænar við kvenfólk.
Það eru þær aftur á móti ekki
meðal reyndra sjómanna. Það
finnast varla þau þrælmenni,
sem ekki reyna að bjarga fólki i
sjávarháska, sem á það horfa, i
stað þess aö laumast burt.
Hitt getur maöur skilið, að
þreyttum sjómönnum hafi þótt
það erfið viðbót við daglegt
amstur og erfiði að sigla af
Kálfshamarsvik og norður i
Haugsdjúp i hifandi roki, mörg-
um klukkutimum eftir að rokið
skall á. bessu stingur Sigurður
hreppstjóri undan.
En Nesjamenn vildu gjöra allt,
er nægt var, tu að finna bátinn og
áhöfn hans, og fengu þvi skútu,
sem kom inn á Kálfshamarsvik,
til að leita bátsins, þó að það bæri
ekki árangur. Það sannaðist, að
slysið hafði gerzt snemma dags,
þvi að lóðin fannst með öllum
bólum, og það gefur til kynna, að
slysið hafi orðið meðan linan lá.
Hreppstjóranum á örlygs-
stöðum hefði verið nær að skrifa
ANTIK
Nýkomið:
Sessilon, sófasett, útskornir
stofuskápar, bókahilla,
lampar, útskornir stólar,
borðstofustólar, borð. ntarg-
ar gerðir og stærðir, skips-
kikir, kertastjakar, vegg-
klukkur, boröklukkur, skrif-
borð, barómet, sófi, fisi-
belgur o.fl.
Allt gamlir og falleg-
ir munir.
ANTIK HÚSGÖGN
Vesturgötu 3, simi 25160.
jSKRIFSTOFA j
| Vilhjálmur Árnason, hrl. J
Lækjargötu 12.
(Iðnaðarbankahúsinu, 3. h.)
I Simar 24635 7 16307. I
um slysið i Patreksfjarðarhöfn,
er frændi hans og nafni
drukknuðu þar á fyrsta tug
þessarar aldar, þegar þar
drukknuöu 13 menn af fiski-
skútunni Bergþóru. Ég svona
minni hann á þaö, svo það geti
komiö i næstu Húnavöku, 1973.
Hins vegar mun ég ekki telja
eftir mér að leiðrétta það, ef
þjóðsagnastillinn nær aftur tökun
á hreppstjóranum.
Óslandi, 13. júni, 1972.
Eirikur Guðlaugsson.
ÚTB0Ð
Tilboð óskast í smíði
28 íbúða fjöibýlishúss við
Skarðshlíð á Akureyri
(1. útboðsáfanga)
Útboðsgögn verða afhent hjá Frey ófeigs-
syni, Birkilundi 5, Akureyri, simi 21389
gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til sama aðila eigi sið-
ar en kl. 16.00 þann 24. júli.n.k.
Stjórn verkamannabústaða á Akureyri.
VEIÐI-
LEYFI
i vatnasvæði Hólsár i Rangárvallasýslu,
þ.e. Hólsá, Ytri-Rangá að Arbæjarfossi,
Selalæk, Þverá að Ármóti, Eystri-Rangá
að Tungufossi og Fiská að Skútufossi, eru
til sölu i benzinafgreiðslum Kaup-
félagsins Þórs, Hellu, og Kaupfélags
Rangæinga, Hvolsvelli.
Stangaveiðifélag Rangæinga.
Sjóstangaveiðimenn
og aðrir áhugamenn
um sportveiðar á sjó
TAKIÐ EFTIR
Höfum bát sem fer daglega á sjó, einungis
i þessum tilgangi þegar veður leyfir, til
ágústloka.
Einnig er hér gistiaðstaða, og matsala á
staðnum fyrir þá sem gista og taka þátt i
sjóferðum — Ennfremur gisting og
morgunverður fyrir ferðamenn.
Nánari upplýsingar i sima 8090 og 8025 i
Grindavik.
Þorbjörn h.f.
Grindavik.