Tíminn - 11.07.1972, Page 3
Þriðjudagur 11. júli 1972
TÍMINN
3
frá New York
ÞÓ—Reykjavik.
Islendingar framleiða ekki
nógu góða stóla, að áliti Bobby
Fischers. Hann gat valið úr 20
tegundum stóla, sem hann
siðan átti að sitja á við ein-
vigisborðið fræga. En það fór
svo, að enginn islenzki stóllinn
var nógu góður. Krafðist þess
þá, að Skáksamband tslands
útvegaði sér samskonar stól
og hann sat á i Argentinu, er
hann tefldi einvigið við
Petrosjan. Stóllinn var
pantaður frá New York og
kom hann með flugvél þaðan i
gærmorgun. Ætti Fischer þvi
ekki að þurfa að kvarta undan
þvi, að ekkert nógu gott sé til
undir sitjandann á honum
hér á landi.
Aftur á móti var Spasski
fljótur að velja sér stól, og
hefur hann ekki fundið að
neinu i Laugardalshöllinni.
Stóll Fischers
kom fljúgandi
Athugasemd
1 ritstjórnargrein Timans s.l.
laugardag var fjallað um áhrif
tekjustofnalaganna á fjárhag
ýmissa sveitarfélaga, og það full-
yrt, að Isafjarðarkaupstaöur
muni ekki nota 10% heimildar-
hækkun á útsvör.
1 trausti þess.að þér viljið held-
ur hafa það. er sannara reynist,
tel ég rétt að upplýsa, að á fundi
bæjarstjórnar Isafjarðar, sem
haldinn var 18. mai s.L.var sam-
þykkt að heimila bæjarráði að
sækja um heimild til hækkunar á
útsvörum, ef þau hrökkva ekki
fyrir áætluðum tekjum. Hefur
félagsmálaráðuneytinu verið til-
kynnt þessi ákvörðun bæjar-
stjórnar. Isafirði, 4/7 1972.
Jón Guðlaugur Magnússon
bæjarstjóri.
llér sjáum við stólinn góða^sem Fischer ætlar að sitja á mcöan einvigið fer fram.
Ljósmynd. Skáksamband lslands Kr. Ben.
EINVÍGIÐ HEFST í DAG
ÞÓ—Rcykjavik
Skákeinvigið mikla, milli
þeirra Spasskis og Fischers hefst
i Laugardalshöllinni kl. 17 i dag.
Lothar Schmidt yfirdómari
verður ekki viðstaddur þessa
fyrstu umferð einvigisins, en I
lians stað verður Guðmundur
Arnlaugsson yfirdómari á 1. umf,
Schmidt þurfti að fara i skyndi til
þýzkalands á laugardaginn, þar
sem sonur hans hafði lent i bil-
slysi, og sjálfur þjáöist hann af
tannpinu.
Bobby Fischer skoðaði Laugar-
dalshöllina i fyrrinótt. Kom
Bobby snemma nætur i höllina og
dvaldist þar lengi. Það fór eins og
margir höfðu spáð. Fischer fann
að flestu. Meðal annars sagði
Fischer, að reitirnir á taflborðinu
væru of stórir, og er nú verið að
skipta um plötu á taflborðinu. Þá
sagði Fischer,að áhorfendabekk-
irnir væru of nálægt sviðinu og
hafa þeir nú verið færðir i meiri
fjarlægð frá sviðinu. Fischerfann
að kvikmyndatökuvélunum, og að
SPASSKI FEKK’ANN EKKI
EB—Reykjavik
Skákmeistarinn Spasski er lik-
lega hvorki góður né heppinn lax-
veiðiinaöur. Allan sunnudaginn
var hann við laxveiöar i Flóka
dalsá i Borgarfirði, en veiddi
engan lax þrátt fyrir að áin sé full
af laxi, samkvæmt uppiýsingum
fróðra manna. Bandarikja-
maðurinn Rolland hefur liklega
kennt i brjósti um skák-
incistarann þvi að hann gaf
Spasski 13 punda lax áður en
meistarinn hélt til Reykjavikur á
sunnudagskvöldið.
Spasski hélt upp i Borgarfjörð á
laugardaginn ásamt rússneskum
vinum sinum og fleirum. Dvaldi
hann á Hvitárbakka þegar hann
var ekki að veiðum i Flókadalsá.
Á laugardagskvöldið fór hann á
dansleik á Brún. Guðmundur
Guðmundsson á Hvitárbakka
sagði i viðtali viö Timann, að
Spasski hefði likað vel dans-
leikurinn. Honum hefði þótt
dansleikurinn likur þvi sem var i
Rússlandi áður fyrr.
Á sunnudagsmorgun fóru
Spasski og félagar hans að veiða i
Flókadalsá og voru með 2
stangir, en 3 stangir eru leyfðar i
ánni og má ekki veiða meiri en 5
laxa á dag á hverja stöng.
Spasski og félagar hans máttu
veiða allan daginn, enda veiddu
þeir ekki einn einasta lax, þótt oft
hafi það komið fyrir i sumar, að
laxveiðimenn hafi þurft að hætta
að veiða i ánni á hádegi, þar eð
þeir voru búnir að veiða 5 laxa á
stöngina frá morgni.
Kristján Fjeldsted i Ferjukoti
kom að Hvitárbakka á sunnu-
dagskvöldið með bandarikja-
manninum Rolland, sem hann
var leiðsögumaður fyrir, og þar
sem Spasski hafði engan laxinn
veitt yfir daginn gaf Roiland
honum 13 punda lax, sem hann
hafði veitt. Siðan voru teknar
myndir af Spasski með þann lax.
Veður var sæmilegt þar efra á
sunnudaginn, þó rigndi talsvert
eftir hádegi.
sjálfsögðu varð að færa þær úr
stað. Þá var það ljósaút-
búnaðurinn, hann var ekki nógu
góður fyrir hann, og honum varð
að breyta.
Bobby Fischer lét hér ekki
staðar numiö, nú vildi hann lika,
að einviginu yröi frestaö fram á
fimmtudag, þar eð yfirdómarinn
Lothar Schmidt yrði annars fjar-
staddur, er fyrsta umferðin yröi
tefld. Þessa kröfu tók Skák-
samband Islands ekki til greina,
og verður Guömundur Arnlaugs-
son, rektor, yfirdómari á þessari
fyrstu umferð.
Nú er verið að vinna að öllum
þeim breytingum, sem Fischer
•fór fram á og á þvi einvigiö aö
geta hafizt á réttum tima i dag.
Miðar á einvigið fást á skrifstofu
skáksambandsins^ Hátúni 4,við
innganginn og i bókaverzlunum.
Hópur Vestur-íslendinga
kemur í fyrramálið
1 fyrramálið kemur hingað til
lands fjölmennur hópur Vestur-
Islendinga, alls áttatiu og þrir
menn. Er ferð þeirra gerö á veg-
um Islendingafélagsins i
Vancouver, og mun hópur dvelj-
ast hérlendis i tæpan mánuð.
Þetta er fjórða hópferðin af þessu
tagi, sem gerð er vestan af
Kyrrahafsströnd siöustu árin.
Á f immtudagskvöldið mun
Þjóðræknisfél. hér halda árlegt
gestamót sitt á Hótel Sögu, og
munu væntanlega sækja það fleiri
Vestur-lslendinear. sem .Hér
staddir. Á föstudaginn fara Vest-
ur-lslendingarnir að Bessastöð-
um og siðdegiskaffi drukkið i boði
sveitarstjórnar Garöahrepps.
A laugardaginn hefjast
ferðalög um landið. Verður fyrst
farið austur að Gullfoss og Geysi,
siðan vikuferð norður i land og
loks ferö austur i Mýrdal.
Vinir og ættingjar Vestur-Is-
lendinganna eiga kost á þvi að
taka þátt i þessum ferðalögum, ef
þeiróska, og er fyllri vitneskju að
. fá i sima 32999.
Aðeins 0,6% með
ágætiseinkunn
á landsprófi í ár
1 ár þreyttu landspróf miöskóla
1584 nemendúr, eöa 36% þeirra,
sem verða 16 ára á þessu ári. Er
það meiri fjöldi og hærri
hundraðshluti af árgangi en
nokkru sinni fyrr.
Af þessum 1584 nemendum
stóðust 1259prófið, þar af 867 með
einkunn, er veitti rétt til inngöngu
i menntaskóla eða framhalds-
deild gagnfræöaskóla.
Þeir sem fengu einkunnirnar
5,6-5,9voru 189 talsins, en þeim er
gefinn kostur á aö þreyta prófið
aftur i haust.
Flestir þeirra, sem þreyttu
prófið, fengu meðaleinkunina 6-
6,9, eða 31,0%. Siðan komu þeir,
sem fengu 5-5,9, 25,4% en fæstir
voru með verstu og beztu
einkunnina, þ.e.a.s. 2-2,9 og 9-10.
Voru það 0,6% nemenda.
írar viö Norðurá
—Ég get vel trúað þvi, aö
búið sé að veiða um 800 laxa i
Norðurá. Nú er eingöngu veitt
á flugu hér, enda eru útlend-
ingar, Irar og ameriskir Irar,
með stangirnar 11 og veiða
þeir mest á Blue Charm og
Hairy-Mary-flugur, sagði Jón
Baldvinsson, leiðsögumaður
veiðihópsins við Norðurá, er
við simuðum til hans i veiði-
húsið. Jón sagði, að leiðinlegt
veður hefði verið uppi i
Borgarfirði i fyrradag, en þó
veiddust 30 laxar þá á veiði-
svæðinu. Veiðiveðrið var hins
vegar betra i gær. Veiði-
mennirnir voru þá búnir að
landa 20 fyrir hádegi.
Meðalþyngdin
8 - 9 pund
Jón Baldvinsson sagði, að
allt upp i 17 punda laxar
hefðu veiözt undanfarna daga.
Hins vegar væri meðal-
þyngdin 8 - 9 pund, sem er
óvenju mikil meöalþyngd,
þegar litið er til þess að komið
er fram i júli.
Jón sagði okkur ennfremur,
að bezt væri veiðin á Eyrinni
og á Brotinu. Hann sagði
okkur að lokum, að 730 laxar
væru nú komnir upp fyrir
teljarann i Laxfossi.
„Aldrei séð
eins mikið af laxi”
Kristján Fjeldsted i Ferju-
koti sagði meðal annars i við-
tali við okkur, að hann hefði
aldrei séð eins mikið af Iaxi i
ánum i Borgarfirði og i sumar.
— I Grimsá er krökkt af laxi,
ég hef aldrei séð eins mikið af
laxi og þar, sagði hann.
Hins vegar veiða ekki allir
vel, sagan um veiðiferð
Spasskýs að Flókadalsá er eitt
dæmi um það, en þá sögu má
finna annars staðar i blaðinu.
Sannleikanum verður
hver sárreiðastur
Gagnrýni borgarfulltrúa
minnihlutaflokkanna i borgar-
stjórn Reykjavíkur á tiðar
fjarvistir borgarstjórans i
Reykjavik vegna vaida-
baráttu i Sjálfstæðisflokknum,
og sifelld ferðalög og fundi
hans úti um allt land hefur
vakið verðskuldaða athygli.
Hvar i flokki, sem menn
standa, cru menn sammála
um, að hér hafi orð verið i
tima töluð
Það var Kristján Benedikts-
son borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sem hafði
forystu um þessa gagnrýni á
fjarvistir borgarstjórans.
Flutti hann gagnrýni sina á
hófsaman hátt, en minnti
borgarstjórann á þær skyldur
sem liann hefur tekizt á herðar
fyrir borgarstjórn og Reyk-
víkinga.
Eins og venjulega þegar fátt
finnst sæmilegra vopna til
má lefnalegrar baráttu
hleypur Mbl. i neyðarút-
ganginn.þ.e. beitir soralegum
persónulegum skætingi.
.. A sunnudag er liins vegar
gcrð aumkunarverð tilraun til
málefnalegrar varnar. Kallar
Mbl. þá gagnrýni á fjarvistir
borgarstjórans ,,árás á
lýðræðið.” 1 fyrsta lagi heldur
blaðið því fram, að það sé
bráðnauðsynlegt, að i embætti
borgarstjórans f Reykjavik sé
maður, seni sé leiðtogi stjórn-
málaflokks og i öðru lagi að
það sé bcinlinis skilyrði fyrir
velfcrð Rcykjavíkur, og
Rey kvikinga, aö borgar-
stjórinn i Reykjavik sé eins og
útspýtt hundskinn út um allt
land til að afla sér fylgis
þcirra Sjálfslæöismanna úti
um land, sem studdu Gunnar
Thoroddsen á siðasta Lands-
fundi Sjálfstæöisflokksins.
Að vinna til 100 þús.
kr. mánaðarlauna
Siöustu misseri hefur Mbl.
hins vegar skrifaö ófáa leiðara
um hina lýðræðislegu nauðsyn
valddreifingar og þá hættu,
sem lýðræðinu væri búin ef
völd færðust um of á fáar
hendur. Borgarstjórinn i
Reykjavik er alþingismaður.
Það er taliö fullt starf. Hvað
þá þegarþingmaður er leiötogi
og talsmaður flokks sins á
Alþingi. Geir Hallgrínisson er
eini alþingismaðurinn, sem
gegnir jafnframt annarri
opinberri stöðu, og ekki tekur
skerl laun fyrir þá stöðu.
Fyrir störf borgarstjóra og .
störf í borgarstjórn, borgar-
ráði og nefndum, þ. e. þau
störf, sem Geir hefur for-
sómað að undanförnu, tekur
hann hátt á annað hundrað
þúsund krónur á mánuði til
viöbótar viö þingmanns-
launin, án þess að roðna.
Borgarstjórinn veröur meira
aö segja ókvæða við, þegar
látin er i Ijós sú skoðun, að
eðlilegt sc, að hann mæti til
þeirra starfa, sem hann fær
svo háar greiöslur fyrir. Laun
borgarstjórans i Reykjavik
eru svo, há vegna þess^að
álitiðer aö embættið sé honum
fullt starf og riflega það og því
verði ekki vel gengt nema við-
komandi sé „vakinn og
sofinn” við aö þjóna em-
bættinu. Það var vafalaust
ekki gert ráö fyrir þvi þegar
launakjörin voru ákveðin, að
borgarstjórinn gegndi öðru
hálaunuöu starfi i opinberri
þjónustu. Hvað þá að hann
stæði I stöðugum ferðalögum i
persónulegri valdabaráttu viö
fyrrvcrandi borgarstjóra i
Reykjavik. (Nú, og svo tekur
það sjálfsagt einhvern tima að
Framhald á bls. 12