Tíminn - 20.07.1972, Qupperneq 11
Kimmtudagur. 20. júli 1972
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Þegar Jón stillti „fallbyssuna”
rétt, byrjuðu mörkin að streyma
„Fallbyssan” i lagi — og þá er ekki sökum aö spyrja —Jón Hjaltalin skorar örugglega. (Timamynd GunnarK
- taugaóstyrks gætti
með ísl. leikmanna
í fyrri leiknum gegn
Bandaríkjamönnum
íslenzku handknatt-
leiksmennirnir voru
mjög taugaóstyrkir i
leik sinum við Banda-
rikin i fyrrakvöld, og
var það einkum í fyrri
hálfleik, sem mikið bar
á taugaóstyrknum. Það
var einkennandi fyrir
leik íslendinganna, að
allir hugsuðu um að
komast til Munchen,
þannig að enga vitleysu
mátti gera, ef menn eiga
þá ekki að sitja heima,
er farið verður til
Míinchen. — Þessi
taugaóstyrkur leik-
manna leiddi til þess, að
hver mistökin á fætur
öðrum áttu sér stað, og
var það einkum I hraða-
upphlaupum, sem allt
fór i handaskolum,
þannig að Bandarikja-
menn náðu knettinum,
og skoruðu jafnvel i
staðinn.
Reyndar sigraði islenzka liöið
með 24:15, en sá sigur vannst ekki
fyrr en á siðustu minútunum, þvi
að lengi vel var það svo, að is-
lenzka liðið hafði ekki nema þetta
3-6 mörk yfir það bandariska. —
Þvi er ekki að neita að banda-
riska liðinu hefur farið mikið
fram, siðan það var hér á ferðinni
i vetur, bæði hvaö tækni og hörku
snertir. Úr þessu liöur varla lang-
ur timi, þangað til Bandarikja-
menn verða farnir að blanda sér i
baráttu toppþjóðanna i hand-
knattleik. Enda stefna þeir að þvi
og hafa veitt ógrynni fjár til
handknattleiksins á undanförnum
misserum.
Ekki er hægt að dæma islenzka
liðið eftir leiknum i fyrrakvöld,
bæði voru andstæðingarnir of
veikir og Miinchen-spennan of
mikil. Samt sem áður er ekki
hægt að neita þvi, að leikmenn
sem telja áttust öruggir með
Miinchen-sæti, sýndu ekki þann
leik, sem búizt hafði verið viö.
Leikurinn i fyrrakvöld byrjaði
með þvi, að íslendingar ná fall-
egu upphlaupi, og endaði það með
marki, sem Björgvin skoraði, eft-
ir fallega sendingu frá Geir.
Stuttu seinna skoruðu Banda-
rikjamenn sitt fyrsta mark og
jöfnuðu metin. Hægðist nú leikur-
inn um stund og þau tækifæri,
sem fslendingar fengu runnu út i
sandinn, öll nema eitt, sem Geir
skoraði úr. Var svo alveg þar til
Jón Hjaltalin kom inn á með
„fallbyssuna stillta”, þá fyrst fór
að ganga betur hjá fslendingun-
um, og komust tslendingar i 9-5,
og voru menn farnir að halda að
gott forskot yröi i hálfleik. En
Bandarikjamenn voru ekki á þvi,
að gefa sig og komust i 9-7, en
Björgvin rak svo endahnútinn á
hálfleikinn með þvi aö skora 10.
mark tslands á siðustu sekúndu
hálfleiksins.
Seinni hálfleikur byrjaði með
þvi, að Gisli Blöndal, sem litiö
hafði borið á i leiknum skoraði
sitt fyrsta mark, og var staöan þá
orðin 11-7. Eftir það skiptast liðin
á að skora og er svo alveg fram á
10. min, að fslendingar fara aö ná
betri tökum á leiknum, og i lokin
kom góður sprettur og leikurinn
endaði 24-15 tslandi i vil.
Beztir i islenzka liðinu voru
Geir og Jón báðir með 7 mörk.
Þeir Einar Magnússon og Björg-
vin Björgvinsson voru og báðir
góðir, en aðrir léku ekki eins og
þeir bezt geta. Þess má geta, að
þetta var 25. landsleikur Einars
og fékk hann að launum gullúr frá
HSf.
t bandariska liðinu voru beztir
þeir Serapade markvörður og
Abrahamson.
Mörk fslands skoruðu: Geir 7 (1
viti), Jón 7, Björgvin 3, Einar 2,
Gisli 2, Ólafur 1, Agúst 1 og
Sigurður 1.
Flest mörk Bandarikjanna
skoruðu Rogers, Abrahams og
Abrahamsonallirmeðþrjú mörk.
Leikinn dæmdu þeir Björn
Kristjánsson og Karl Jóhannsson,
og dæmdu þeir illa, en þaö er ekki
oft, sem þaö kemur fyrir þá, að
dæma jafn illa og i fyrrakvöld.
—Þó
Landsleikurinn
island vann Bandaríkin i
landsleik i handknattleik i
gærkveldi, með 20 mörkum
gegn 15. i háifieik var staðan
10-6. Nánar um leikinn á
inorgun.
Fram-KR 2:2
i gærkvöldi fór fram leikur i
I. deild milli Fram og KR, og
lauk honum með jafntefli 2-2.
óll mörkin voru skoruð i siðari
háifleik. Nánar i blaðinu á
morgun.
Bikarkeppni
FRÍ 12.-13.
ágúst
Bikarkeppni FRt fer fram á
Laugardalsvellinum i Reykja-
vik dagana 12. og 13. ágúst.
Þeir aðilar, sem hug hafa á
þátttöku, sendi tilkynningu til
skrifstofu FRt iþróttamiðstöö-
inni Laugardal eða i pósthólf
1099 l'yrir 27. júli.
B-mót FRÍ
háð á
Hornarfirði
B-mót FRÍ verður haldið á
Hornafirði dagana 29.-30. júli.
Ungmennasambandið Úlfljót-
ur sér um mótið. Rétt til þátt-
töku hafa allir þeir, sem ekki
hafa náð árangri samkvæmt
stigatöflu yfir 650 stig, siðast-
liðin tvö ár.
Einungis er keppt i karla-
greinum
Keppnisgreinar:
Fyrri dagur:
100 m, 400 m, 1500 m, 4x100 m
boðhlaup.
Langstökk, stangarstökk.
Kúluvarp, sleggjukast.
Seinni dagur:
200 m, 800 m, 5000 m, 1000 m
boðhlaup.
Hástökk, þristökk.
Kringlukast, spjótkast.
Þátttökutilkynningar berist
Sigvalda Ingimundarsyni
Hornafiröi eða til skrifstofu
FRt iþróttamiðstöðinni
Laugardal, fyrir 26. júli.
öll 1. deildarliðin í handknattleik,
nema Valur, búin að ráða þjálfara
Nú hafa öll 1. deildariiðin i
handknattieik nema Valur ráðið
til sin þjálfara, og eru flest liðin
Karl Benediktsson, verður hann
næsti landsliðsþjálfari i hand-
knattíeik?
farin að æfa af fullum krafti.
Framarar eru farnir að undirbúa
sig fyrir þátttökuna I Evrópu-
keppni meistaraiiða og eru
þjálfari og liðstjóri Fram nú
erlendis til að kynna sér nýjungar
i handknattleik og finna út kerfi,
sem hentar Framliðinu. Reynir
Ólafsson, hefur ákveðið að hvíla
sig frá þjáifun i vetur, en hann
hefur eins og flestir vita, þjálfað
Vai með mjög góðum árangri,
siðastliðin tvö ár. Valsmenn eru
nú á höttunum eftir þjálfara, og
getur verið aö erlendur þjálfari
þjálfi meistaraflokk félagsins i
vetur.
Veröur Valsliðið þá annaö is-
lenzka handknattleiksliðið sem
fær erlendan þjálfara. En nú er
ákveðið að tékkneski handknatt-
leikssnillingurinn Mares, komi
hingað til landsins og þjálfi
Viking. Er hann væntanlegur
hingað i lok júli og byrjar að
þjálfa Vikingsliðið 1. ágúst.
Karl Benediktsson þjálfari
Framliðsins og liðstjóri liösins
Páll Jónsson (bróðir Sigurðar
Jónssonar, Viking,) fóru til
Júgóslaviu, þar sem þeir verða á
þjálfaranámskeiöi fram yfir
helgi. Fóru þeir utan s.l. mánu-
dagskvöld i boði Fram, sem bauö
þeim þessa ferö i verölaunaskyni
fyrir þann árangur sem þeir náöu
með liðið s.l. vetur. En eins og
menn muna, þá gerðu þeir Fram
að Islandsmeisturum.
Karl og Páll eru ekki einu Is-
lenzku þjálfararnir sem fóru til
Júgóslaviu. Með þeim I feröinni
er dr. Ingimar Jónsson, þjálfari
tR, en hann tók við liðint I sumar
og er búinn aö stjórna æfingum
hjá félaginu i tvo mánuði. Tók dr.
Ingimar við af Gunnlaugi
Hjálmarssyni, sem þjálfaði fR-
liðiö s.l. tvö ár og lék einnig með
þvi s.l. vetur með góðura árangri.
Þótt Gunnlaugur sé hættur aö
þjálfa IR, er hann ekki hættur aö
leika meö liðinu.
KR-ingar hafa ráöið nýjan
þjálfara til að þjálfa hiö unga 1.
deildarlið félagsins. Stefán Sand-
holt, hinn gamalkunni landsliös-
maður úr Val, sem hefur þjálfab
kvennaflokka Vals meö góöum
árangri byrjaöi að þjálfa hjá KR
í siðustu viku. KR-ingar búast við
miklu af Stefáni, sem fær erFitt
hlutverk að vinna hjá KR. Hann
þarf að byggja upp nýtt
meistaraflokksliö hjá KR, þvi að
tveir beztu leikmenn liösins I
handknattleik, HÚmar Björnsson
og Karl Jóhannsson hafa nú
ákveöið aö leggja keppnisskóna á
hilluna. En KR þarf ekki að
kviöa, þvi aö hjá félaginu eru
margir ungir og efnilegir hand-
knattleiksmenn.
FH hefur ráðið til sin tvo
þjálfara, fyrir næsta keppnis-
timabil, það eru þeir Birgir
Björnsson og Orn Hallsteinsson,
báöir gamlir landsliðsmenn, og
rótgrónir handknatUeiksmenn.
Þaö má búast viö að Birgir leiki
einnig með FH i vetur, en hann
hefur verið einn bezU leikmaöur
FH-liösins undanfarin ár.
Nýliöarnir i 1. deild Armanns,
hafa ráöið Gunnar Kjartansson,
sem þjálfara i vetur. Gunnar var
einnig þjálfari Armanns s.l. vetur
og þjálfaði hann þá einnig
kvennaflokk félagsins. Gunnar er
talinn einn af efnilegustu hand-
knattleiksþjálfurum okkar og
náði hann mjög góðum árangri
meö karla og kvennalið Ármanns
s.l. vetur. Gunnar, sem er aðeins
24ra ára, er nýkominn frá Dan-
mörku, þar sem hann var á fram-
llilmar Björnsson, hættir sem
landsliösþjálfari.
haldsnámskeiði fyrir handknatt-
leiksþjálfara.
Þá má geta þess að Hilmar
Björnsson landsliðsþjálfari,
verður ekki með landsliðiö i
vetur. Hann verður ekki á landinu
i vetur, þvi aö hann fer til
Sviþjóöar aö sérmennta sig sem
iþróttakennari. Ekki hefur hann
enn ákveöið hver taki við
landsliðinu, en tveir menn hafa
veriö orðaöir við landsliðsþjálfun
i vetur. Þaö eru þeir Karl Bene-
diktsson sem þjálfabi landsliöiö
fyrir nokkrum árum og náði
góðum árangri með þaö og Mares
hefur einnig veriö orðaöur viö
liöið, en það geta alveg eins oröið
einhverjir aðrir, t.d Reynir Ólafs-
son. SOS.