Tíminn - 12.08.1972, Side 8
8
TÍMINN
Laugardagur 12. ágúst 1972
Á þessu sumri hefur skiða-
skólinn i Kerlingafjöllum starfað
i 12 sumur, og er þetta álika
langur timi og Mallorca-æði
Islendinga hefur staðið yfir. Af
einhverjum ástæðum hefur
landinn ekki sótt eins mikið upp i
Kerlingarfjöll og vera skyldi,
flestir eru sennilega hræddir um
það, að þeir geti ekki orðið nógu
brúnir hátt uppi i islenzkum fjöll-
um. Það er misskilningur, þvi að i
Kerlingarfjöllum getur fólk orðið
jafn brúnt á tveimur dögum og
það verður á hálfum mánuði á
Mallorca og Spáni. Núna eftir að
skiðaæðið hefur gripið Reyk-
vikinga með tilkomu Bláfjalla
sem skiðalands yfir vetrartim-
ann, má búast við að aðsókn að
skiðaskólanum i Kerlingarfjöll-
um eigi eftir að aukast mikið á
næstu árum.
Urðum að nota
sumarsólina.
Um verzlunarmannahelgina
dvaldist blaðamaður Timans i
Kerlingarfjöllum, og um leið
notaði hann tækifærið
og ræddi við þá Valdimar
örnólfsson og Eirik Haraldsson
um starfsemi skólans, en Valdi-
mar og Eirikur eru, sem kunnugt
er, upphafsmenn að þessari starf-
semi.
—Okkur fannst að við yrðum að
nota sumarsólina til skiðaferða.
Við vissum, að hér upp frá var
góður og nægur skiðasnjór allt
sumarið, og höfðum reyndar farið
hingað á skiði áður, segja þeir
félagar, og bæta við, að þetta hafi
svo dregizt dálitinn tima. Siðan
segir Eirikur: Einn daginn
hringdi Valdimar i mig og við
ákváðum að hefjast handa. Við
hringdum i skiðastrákana hér
sunnanlands og fengum þá með
okkur. Jafnframt fengum við af-
not af skála Ferðafélags tslands
til að dveljast i á meðan við vor-
um þarna. — Þetta fyrsta nám-
skeið okkar var i júli 1961.
Valdimar segir, að þar sem
ferðin hafi tekizt svona vel, þá
hafi þeir ákveðið að halda áfram,
og siðan var annað námskeið
haldið þetta sama sumar. Þetta
sumar, sem önnur fengu þeir
ómetanlegan stuðning Lárusar
Ottesen, framkvæmdastjóra
Ferðafélags Islands.
Gamla rútan stóö
tyrir ferðunum.
— Hvert var svo framhaldið á
starfseminni?
— Við byrjuðum á þvi, sumarið
1963, að byggja litla skálann, sem
nú ber nafnið Herragarðurinn.
Þegar sá skáli var kominn upp,
má segja, að starfsemi skólans
hafi verið komin i fastar skorður.
Og nú var að hrökkva eða
stökkva. Þátttaka i ferðunum var
ákaflega misjöfn þessi fyrstu ár,
og þar af leiðandi varö það okkur
dýrt að leigja stóra langferðabila
til að flytja fólkið hingað, ef fáir
voru á námskeiði. Við keyptum
gamlan rútubil, og þessi bill varð
vafalaust til þess, að við gátum
farið allar auglýstar ferðir, og
svo hefur alltaf verið. Aldrei
fallið niður námskeið.
Þetta sumar sáum við, að við
gátum ekki verið tveir með
starfsemina til frambúðar. Til
að bæta úr þvi stofnuðum við
hlutafélag og fengum til liðs við
okkur þá Jónas Kjerúlf, Jakob
Albertsson, Einar Eyfells og Þor-
varð örnólfsson, en Þorvarður
hefur séð um alla fjármála hlið
skólans.
Hvenær var stóri skálinn
byggður?
A honum var byrjað 1964, og
fengum við allt efni i hann út á
andlitið. Byggingu skálans var
svo lokið á næsta ári en það ár
fórum við i byrjun mai upp i
Kerlingarfjöll til að ljúka
byggingu hans. Smiður þessa
húss var Magnús Kárlsson, en
hann hefur alla tið verið smiður
staðarins. Það er okkur minnis-
stætt, að árið 1965 var einstaklega
litill snjór i fjöllunum, og þurftum
við að leita hátt upp i tindana til
að komast á skiðin.
Alpaskiðavisa — skiðin
aimenningseign.
—Hver er ástæðan fyrir þvi, að
hér hefur eingöngu verið kennt á
alpaskiði?
—Það er auðvelt að útskýra
það. Eins og allir vita, þá hafa
veriðmörg snjóleysisár á Islandi,
og þar af leiðandi hefur ekki verið
hægt að ganga mikið á skiðum á
láglendi. Fólk hefur orðið að leita
upp i brekkurnar, ef það hefur
ætlað sér á skiði. Af þessari
ástæðu höfum við eingöngu kennt
hér alpagreinarnar. Skiðin urðu
ekki almenningseign sunnan-
lands fyrr en við byrjuðum með
skólann i Kerlingarfjöllum.
—Hve margir sækja nám-
skeiðin hvert sumar?
—Fyrstu árin voru um það bil
200 manns á námskeiðun-
um hjá okkur, en nú siðari
árin sækja um 500 manns sumar-
námskeiðin. Auk þess koma
hingað hundruð manna um helgar
og gista þá i tjöldum eða i Fl-
skálanum. Okkur hefur fundizt
það mjög auðkennandi, að fólk,
sem kemur hingað til að læra á
Það er oft þéttsetið á kvöldvökunum
Franski hópurinn fyrir framan skiðaskólann