Tíminn - 12.08.1972, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. ágúst 1972
TÍMINN
11
[UmsT(Tn:fllfreð Þorsteinssont
ÍÞRóttaþinG
12.-13. H 1972
ÁGUST J.L
Fjölmenn fylgdarsveit
íslenzku Olympíufaranna
Fimmtán fararstjórar og þjálfarar - keppendur þrjátíu
Áætlun
Akraborgar
breytist
- vegna leiks Akraness
HAFNARFIRfll
íþróttaþing ÍSÍ verður að þessu
sinni háð i Hafnarfirði. Hefst það
kl. 10 f.h. mcð ávarpi Gisla Hall-
dórssonar, forseta ÍSÍ, seni setur
þingið. Að þvi loknu flytur Oddur
ólalsson læknir erindi um iþróttir
fyrir fatlaða og lamaða. Að þvi
búnu hefjast almenn þingstörf.
Kl. 19 i kvöld verður gert þinghlé,
en þingstörf hefjst aftur að nýju
kl. 14 á morgun.
Þingið verður haldið i hinum
glæsilegu húsakynnum Skiphóls,
en nefndastörf fara fram i
iþróttamiðstöðinni i Laugardal.
Bikarkeppni
FRÍ háð
um helgina
Bikarkeppni Frjálsiþrótta-
sambands Islands verður
haldin um helgina i Reykjavik
og hefst á Laugardalsvellinum
i dag kl. 14. Keppendur frá
fimm félögum og héraðssam-
böndum taka þátt i keppninni,
Reykjavikurfélögin KR, 1R og
Armann og UMSK og HSK.
Bikarkeppni FRl hefur jafn-
an verið spennandi, og má bú-
ast við, að svo verði einnig nú.
í fréttatilkynningu frá
Olympiunefnd islands, sem
iþróttasiðunni barst i gær, kemur
fram, að 20 islenzkir keppendur
fara á Olympiuleikana i Munchen
þar af eru fjórir, sem ekki taka
þátt i sjálfum leikunum heldur
dveljast i æfingabúðum. Athygli
vekur. þegar að er gáð, að farar-
stjórar og þjálfarar eru samtals
15 talsins. eða einn á hverja tvo
keppendur. Er það nokkuð há
tala, þcgar tillit er tekið til þess,
að i :t0 manna keppnishópnum er
hópkeppnisflokkur, landsliðið i
handknattleik, sem skipað er 16
leikmönnum.
Fréttatilkynning Olympiu-
nefndar fer hér á eftir:
Olympiunefnd Islands hefur
valið eftirtalda keppendur i
Olympiuleikana i Miinchen.
liandknattlcikur:
Hjalti Einarsson
Birgir Finnbogason
Ólafur Benediktsson
Gunnsteinn Skúlason
Geir Hallsteinsson
Ólafur H. Jónsson
Jón Hjaltalin Magnússon
Ágúst Ogmundsson
Stefán Jónsson
Sigurbergur Sigsteinsson
Viðar Simonarson
Gisli Blöndal
Björgvin Björgvinsson
Axel Axelsson
Sigurður Einarsson
Stefán Gunnarsson
Þjálfari er Hilmar Björnsson
og liðsstjóri Jón Erlendsson. t
flokksstjórn handknattleiks-
manna eru: Einar Mathiesen,
Rúnar Bjarnason og Hjörieifur
Þórðarson.
Frjálsar iþróttir:
Erlendur Valdimarsson i
kringlukasti.
Lára Sveinsdóttir i hástökki.
Bjarni Stefánsson i 400 m hlaupi.
Þorsteinn Þorsteinsson i 800 m
hlaupi.
Þjálfari er Jóhannes Sæmunds-
son og flokksstjóri örn Eiðsson.
Sund:
Guðm. Gislason i 200 m og 400 m
fjórsund.
Guðjón Guðmundsson i 100 m og
200 m bringusund.
Friörik Guðmundsson i 400 m og
1500 m skriðsund.
Finnur Garðarsson i 100 m og 200
m skriðsund.
Þjálfari er Guðm. Þ. Harðars-
son og flokksstjóri Torfi Tómas-
son.
Lyftingar:
Óskar Sigurpálsson i þungavigt.
Guðm. Sigurðsson i milliþunga-
vigt.
Flokksstjóri er Sigurður Guð-
mundsson.
Unglingabúðir.
Olympiunefndin hefur þegið
boð um að senda fulltrúa i ung-
lingabúðir Olympiuleikanna og
valdi til þess eftir talda þátttak-
endur:
Kristin Björnsdóttir
Salome Þórisdóttir
Friörik Þ. Óskarsson
Siguröur Ólafsson.
Vilhjálmur Einarsson skólastjóri,
og verðlaunahafi frá Olympiu-
leikunum i Melbourne, verður
fyrir unglingahópnum.
Fararstjóri á Olympiuleikun-
um verður Björn Vilmundarson
og gjaldkeri Gunnlaugur J.
Briem.
Birgir Kjaran form. Olympiu-
nefndar islands og Gisli Halldórs-
son forseti l.S.l. munu einnig
sækja Olympiuleikana.
Islenzku þátttakendurnir fara
til Munchen 24. ágúst n.k. með
þotu Flugfélags tslands.
Áætlun
Akraborgar
breytist
- vegna leiks Akraness
og Fram í dag
Vegna leiks Akraness og
F'ram i dag breytist áætlun
Akraborgar. Fer hún frá
Reykjavik kl. 14.30 og frá
Akranesi strax að leik loknum
kl. 18.15.
Vitað er, að gevsimikill
áhugi er á leiknum, og munu
margir úr Reykjavik og ná-
grenni bregða sér upp á Skaga
til að fylgjast með „úrslitaleik
mótsins", eins og þessi leikur
hefur verið nefndur. Hefst
hann kl. 16.
Enginn leikur verður á
sunnudag i 1. deild, en á
mánudag verður keppninni
haldið áfram og leika þá sam-
an KR og Breiðablik. Ætti það
að geta orðið mjög skemmti-
legur leikur. Á þriðjudaginn
leika svo saman, einnig á
Laugardalsvelli, Valur og
Vikingur, og er sá leikur liður i
fallbaráttunni. Takist Viking-
um ekki að sigra Val i þeim
leik, má tel ja nokkurn veginn
vist, að þeir leiki i 2. deild
na'sta ár.
Auk leiks Akraness og Fram
leika Vestmannaeyingar og
Keflavik i Eyjum i dag.
RÆÐUR HEIMAVÖLLUR ÚRSLITUM?
FH og Akureyri mætast í Hafnarfirði í dag
Enda þótt leikur Akraness og
Fram i 1. deild, sem háður verður
á Akranesi i dag, skyggi á aðra
knattspyrnuleiki helgarinnar, fer
fram geysiþýðingarmikill leikur i
2. deild i dag. Er það leikur FH og
Akureyrar, en þessi leikur sker
liklega úr um það, hvort liðið
hlýtur sæti i 1. deild næsta ár.
Eins og sakir standa er staða
Akureyringa betri, þvi að þeir
hafa hlotið einu stigi meira, en
takist FH-ingum að sigra i leikn-
um i dag, sem háður verður i
Hafnarfirði, ná þeir forustu i
deildinni.
Erfitt er að spá um úrslit leiks-
ins, þar sem bæði liðin hafa sýnt
ágæta leiki i 2. deildinni. En ljóst
er þó, að aðstaða Hafnlirðinga er
að sumu leyti betri, þar sem þeir
leika á heimavelli sinum. Spurn-
ingin er, ræður heimavöllurinn
úrslitum?
Keppni fararstjóra - eða íþróttamanna?
Eins og allir vita erum við ís-
lendingar mjög háþróuð
þjóð.allavega á iþróttasviðinu.
Og til þess nú að geta verið
menn með mönnum, þá teljum
við okkur einhverja almestu
áhugamenn, sem til eru, á vett-
vangi iþrótta i heiminum.
Svo miklir áhugamenn erum
við, að þvi betri sem iþrótta-
maðurinn er, þvi erfiðara er
honum gert að komast til keppni
á erlendri grund. Fussum svei, i
háborg áhugamennskunnar
liðst engum að vera með góð
afrek, né að sýna framfarir,
hvað þá að vera með þokkaleg-
an árangur á alþjóðamæli-
kvarða. Þeir, sem það gera, eru
komnir hættulega nálægt þvi að
vera atvinnumenn og gætu jafn-
velt kynnt landið út á við.
En iþróttaforystan stendur
dyggan vörð um, að slfk fiflalæti
eigi sér ekki stað. Þegar ein-
hverjir tveir pattar tóku að
hringla með járn og lóð i skúr-
ræfli vestur á Fálagötu, og náðu
þvi lágmarki, sem hinn dyggi
vörður siðgæðisins, Avery
Brundage, hafði sett, þá brugð-
ust okkar menn ekki, ó, nei. Þeir
heimtuðu bara, að strákarnir
næðu lágmarkinu tvisvar. Hvað
hafa lika svona kettlingar út i
lönd að gera? Auk þess eru þeir
með kraftadellu. Erlendis gæti
fólk farið að halda, að við hefð-
um gleymt okkur á verðinum
um áhugamennskuna, það væri
slæmt til afspurnar.
En strákarnir þurftu endilega
að endurtaka þetta, og þar sem
iþróttaforystan á Islandi hefur
ætið haldið orð sin, neyðumst
við til þess að senda þá á ,,at-
vinnumanna-Olympiuleikana’’ i
Miinchen. Nú voru góð ráð dýr.
Ef einhverjir aðrir ætluðu að
fara að leika sama leikinn, varð
að stöðva þetta strax.
Þótt almenningur gæfi stórfé
til þessarar farar, var þaö ör-
ugglega ekki til þess að styrkja’
einhvern sportidjót, heldur til
þess að við islendingar gætum
sýnt, hve mikið við eigum af af-
ætum, lika á iþróttasviðinu.
Forystumenn okkar vita sem
er, að fólkiö vill minnst jafn-
marga fararstjóra og iþrótta-
mennirnir verða, enda sæmir
ekki minna, þegar slikir greifar,
sem við erum, eiga i hlut.
Iþróttamennirnir verða okkur
hvort eð er til skammar, og þvi
eins gott að fela þá i nógu stór-
um fararstjórahópi. Láta ekki
of mikið bera á þessum piltum,
sem iþróttaforystan þarf svo aö
bera kinnroöa fyrir.
Brundage yrði ekkert hrifinn
ef við sendum beztu iþrótta-
menn okkar út. Hann myndi
halda, að það væri laumuat-
vinnumenn. Og hvað kunna svo
þessir menn, sem iðka iþróttir
daginn út og daginn inn, að
meta góðar lystireisur?
Þvi ber okkur að búa til ennþá
æðra heiðursmerki en Fálka-
orðuna, til að heiðra með stjórn-
armenn 1S1 og Olympiunefnd
lslands, fyrir þeirra óeigin-
gjarna og fórnfúsa starf við að
rifa niður iþróttaáhugann. Enda
voru þeir snjallir, þegar þeir
völdu nokkra aukagemsa til að
jafna töluna á milli fararstjóra
og iþróttamanna.
1 sundi hafði einhver Sigurður
Ólafsson böðlazt við að setja
met á met ofan. Að verðlauna
slikan mann með ferð á
Olympiuleikana gat skapað
hættulegt fordæmi. Þvi var rétt
að strika hann út af listanum
yfir v«ntanlega þátttakendur.
Og sýnir ekki sagan um Guð-
mund Hermannsson hvilika
snillinga við eigum, er stjórna
iþróttamálum okkar? Þar sem
Guðmundur er búinn að keppa
og æfa i 25 ár, þrátt fyrir alvar-
leg veikindi og slys, og hefur
sýnt það, sem kallað er sanna
iþróttamennsku, er sjálfsagt að
hann haldi sig áfram hér heima
á Fróni. Þótt hann sé annar
bezti frjálsiþróttamaður okkar
samkvæmt alþjóða stigatöfl-
unni, gefur það honum engan
rétt til að keppa fyrir hönd Is-
lands.
Þarna kemur hin frábæra
réttsýni forystumanna okkar
bezt i ljós. Guðmundur er búinn
að gera of mikið að þvi að sigra i
landskeppni og öðrum stórmót-
um. Enda er hann farinn að
verða örlitið þekktur erlendis,
og slikt er erfitt að þola. Fyrir
nú utan það, að af einhverju
litillæti og góðsemi var búið að
skrá hann á „heimsmeistara-
mót öldunga”, sem fram fer i
Köln þremur dögum eftir
Olympiuleikana. Þar hefur
hann mikla möguleika á að
vinna i kúluvarpi, en vitaskuld
gæti það skaðað það álit, sem
við höfum i iþróttaheiminum,
sem áhugamenn. Einhver
Parry O.Brian vann þetta mót i
fyrra með þvi að grýta kúlunni
16,54 m. Það er um það bil 1 m
styttra en Guðmundur varpar
nú. Það væri hreinasta fásinna
að láta Islending sigra á svona
stórmóti.
Þar sem forystumenn okkar
eru allflestir svo frambærilegir,
og hafa mikla reynslu i utan-
landsferðum, fyrir nú utan það,
að vera aufúsagestir i
öllum veizlum, nær það ekki
nokkurri átt að fækka i farar-
stjórninni um einn mann, eða
skrapa saman nægu fé til þess
að Guðmundur komist með.
Hvað er hann lika að meina meó
að ná toppárangri ár eftir ár?
Eins og allir vita eru
Olympiuleikarnir haldnir i hinni
miklu bjór- og gleðiborg,
Miinchen, og maður eins og
Guðmundur, sem hvorki drekk-
ur né reykir, er svosem litil
landkynning á slikum stað. Þvi
skyldi heldur velja unga og efni-
lega menn til þessarar farar,
menn sem eru búnir að vera
efnilegir i mörg ár, strákar sem
kalla sko ekki allt ömmu sina.
Og svo þennan indælis hóp far-
arstjóra. A meðan slikir menn
ráða, þurfum við ekki að óttast
það, að við eignumst afreks-
menn á iþróttasviðinu. Þeir vita
hvernig á að stöðva slikan
ósóma.
Þvi mun ég fyllast lotningu,
þegar þessi friði hópur stigur á
þýzka grund ogsannar i verki þá
jafnréttishusjón, að i hverjum
iþróttahópi skulu helzt jafn-
margir fararstjórar og iþrótta-
menn, eöa a.m.k. einn fyrir
hverja tvo keppendur.
Og þeir geta borið höfuðið
hátt, þegar þeir ganga fyrir
auglit Avery Brundage, og með
sanni sagt: Herra, við fórum i
einu og öllu að yðar geðþótta, og
reyndum aðskilja sem flesta af-
reksmenn eftir heima. En þér
verðir aö skilja þá aðstöðu sem
við komumst i, þegar lyftinga-
mennirnir náðu þessu lágmarki
tvisvar, og einnig verðið þér að
skilja, að við urðum að hafa
nokkra iþróttamenn með til
þess að réttlæta ferð okkar á yð-
ar fund. f.k.