Tíminn - 18.08.1972, Blaðsíða 15
Föstudagur 18. ágúst 1972
TÍMINN
15
lagði sig alla fram. En ég brosti ekki, er hún lét bakkann á lága borðið
fvrir framan lækninn. I leyndum hugans óskaði ég þess, að Manga
hefði haft talsvert meira hóf á gestrisni sinni.
„Þetta kom sér vel”. Vance læknir rétti fram bollann sinn til þess að
fá hann fylltan i annað sinn. ,,Ég fékk óvænta kvaðningu i morgun og
varð að fara út i sveit, svo að ég sleppti hádegisverðinum”.
Mér varð litið á hönd hans, og enn einu sinni gat ég ekki annað en
veitt þvi athygli, hve sterklegar og mjúklegar þær voru, hve fingurnir
voru langir og vel hirtir og hvernig þeir mjókkuðu fram til gómanna. í
huganum sá ég hann handleika læknistæki sin og áhöld. Ég gleymdi
alveg að gefa gætur að hreyfingum vara hans.
„Litið upp”. Hann hallaði sér fram yfir borðið og neyddi mig til þess
að lita framan i sig. „Við höfum aftur kastazt á kuldalegum orðum i
dag. Við skulum gleyma þvi,og fitja upp á nýrri og betri kynningu. Þvi
fyrr sem við gerum það, þvi auðveldara verður það fyrir okkur bæði.
Ég kom af þvi, að mig langaði til þess að hitta yður eina. Nú ætla ég að
tala, en þér skuluð hlusta á mig — hvort sem yður likar betur eða
verr”.
Hönd min titraði, þegar ég setti bollann á undirskálina. Ég gerði mig
liklega til þess að risa á fætur, og mér hefði sennilega tekizt að flýja út
úr stofunni, ef borðið befði ekki verið i vegi fyrir mér.
„Nei”. Hann hélt áfram og leit ekki af mér. Þetta er skylda min. Ég
er læknir, og ef ég sæi einhvern hökta á hækjum og vissi, hvað gera ætti
til þess að hann fengi bót meina sinna, en léti hann samt afskiptalausan
— væri það ekki glæpur?”
„Þaðylti á þvi”, sagði ég hikandi, ,, hvað maðurinn'sjálfur vildi”.
„Þér vitið, hvað ég er að fara i kringum: Ég er að hugsa um yður og
mein yðar”.
„Ég vildi komast hjá þvi aö tala um bol mitt, ei pess er noKKur kusi-
ur”.
„En ef ég get hjálpað yður?”
„Þér getið það ekki. Gerið svo vel að ijúka teinu yðar — og fariö svo„
Aftur reyndi ég að risa á fætur, en mig skorti mátt til þess að ná mér
upp úr stólnum.
„Þér getið ekki visað mér á bug á þennan hátt”. Hann hallaði sér
fram á borðið. Svipur hans var harðlegur og augnaráðið hvasst.
„Hvers vegna komuð þér hingað?” Ég vonaði, að rödd min væri
þrungin eigi minni beiskju en hugur minn. „Hvers vegna getið þér ekki
látið mig i friði? Ég hef ekki beðið um meðaumkun eða miskunn yðar
né nokkurs annars manns”.
En hann hristi aðeins höfuðið.
„Jú, þaðhafið þér gert. Að visu ekki með orðum.en þá á annan hátt”,
sagði hann. „Þegar þér eruð að streitast við að nema það, sem aðrir
segja, og þegar yður fatast að skilja mál manna, þá biðjið þér um hjálp
með svipbrigðum yðar”.
„Hvi leyfið þér yður að segja þetta? Haldið þér, að ég hafi glatað
heyrninni af ásettu ráði?”
Enn hristi hann höfuðið.
„Látið ekki skapið hlaupa með yður i gönur, ungfrú Blair. Þér skuluð
ekki rugla saman hjálp og meðaumkun, þótt þér gerið ekki greinarmun
á ást og meðaumkun”.
Ég rauk upp eins og naðra hefði bitið mig og ætlaði að hlaupa á dyr,
en áður en mér ynnist ráðrúm til að forða mér, fann ég, að hann læsti
sterkri, magurri hönd sinni um handlegg minn og dró mig til baka. Mig
langaði mest til að slita mig af honum, en ég var allt of ringluð til þess
að geta það. Hann neyddi mig til að horfa framan I sig og hélt siðan
áfram:
„Þér verðið aðhlusta. Eftir þetta komizt þér ekki hjá þvi. — Nei, ekki
gripa fram i. Þetta er skylda min. Mér hefur tekizt að lækna fólk, sem
hefur verið lengur heyrnarlaust en þér”. Ég gerði enn eina tilraun til
þess að komast á brott, en hann herti takið um handlegg minn. „Þér
hafið aldrei reynt þá aðferð, sem ég beiti — hana fann ég sjálfur upp
ásamt öðrum lækni. En ég ætla ekki að skýra fyrir yður læknisfræðileg
viðfangsefni, þér munduð vera jafn nær, og auk þess er lækningaaðferð
okkar enn á tilraunastigi. En við erum ekki neinir þöngulhausar. Við
erum báðir vel menntaðir læknar, og við erum komnir á rétta braut”.
É sleit mig loks lausa og fór að tina saman eigur minar. Ég vildi ekki
veita honum þá ánægju að tala meira við hann og ákvað að hundsa
hann alveg. En ég hafði ekki haldið, að hann væri jafnþrákelkinn og
hann var. Ég var likt sett og brúðkaupsgesturinn i sögunni,sem gamli
farmaðurinn með gljáaugun valdi sér að fórnardýri: ég fékk engum
vörnum við komið. Það stoðaði ekki, þótt ég þyldi nöfn þeirra sérfræð-
inga, sem ég hafði leitað til og allir höfðu gefizt upp við að ráða bót á
meini minu. Þá fór hann aðeins að segja mér af uppgötvun sinni. Mér
skildist, að hann hefði i félagi við annan lækni gert hana af einskærri
tilviljun, er þeir voru að rannsaka kirtlaveiki i járnsmiðum. Tveir
mannanna voru heyrnarlausir, og er þeir höfðu reynt lækningar sinar
á þeim i nokkrar vikur, brá svo við, að þeir fóru að greina hljóð. „Þeir
náðu svo miklum bata, að við sáum, að ekki gat verið um slembilukku
eina að ræða, sagði hann við mig. „Við höfðum hitt ár úrræði, sem kom
að haldi. Við héldum tilraunum okkar siðan áfram vetrarlangt i stóru
i fjórðu grein fimmtarþrautarinnar —
kringlukastinu — var aðalkeppnin
einnig milli Telamons og Orsippes.
Spartverjinn var frekar taugaóstyrkur
og heimtaði m.a. að flautuleiknum se.m
var fastur liður i hverri keppni skyldi
hætt. svo hann gæti einbeitt sér betur.
En það dugði skammt, og Telamon vann
sigur i þessari grein, og voru þeir
Telamon og Orsippes já jafnir i
fimmtarþrautinni — og aðeins ein grein
cftir.
II llijliil
FÖSTUDAGUR
18. ágúst.
7.00 Morgunútvarp
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðjón Sveinsson les
framhald sögu sinnar um
„Gussa á Hamri” (3). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milliliða. Spjallað við bænd-
ur kl. 10.05. Tónleikar kl.
10.25: Jacques Abram og
hljómsveitin Fílharmónia i
Lundúnum leika Páinókon-
sert nr. 1. i D-dúr op. 13 eftir
Benjamin Britten: Herbert
Menges stjórnar. Fréttir kl.
11.00. Kússnesk tónlist:
Suisse Romande hljóm-
sveitin leikur Prelúdiu og
Dans persnesku þrælanna
eftir Mússorgský: Ernest
Ansermet stj. / Boris
Christoff syngur nokkur lög
eftir Glinka/Hljómsveitin
Fiharmónia leikur
„Francesca da Rimini”,
hljómsveitarfantasiu op. 32
eftir Tsjaikovský; Carlo
Maria Giulini stj.
13.00 Eftir hádcgið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdegissagan: „Þrútið
loft" eftir P.G. Wodchouse
Jón Aðils leikari les (5).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdcgistónleikar:
Bandarisk tónlist
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Kcrðabókarlestur: Frá
e y ð i m ö r k u m M i ð - A s i u
Rannveig Tómasdóttir les
úr bók sinni „Andlit Asiu".
18.00 Frcttir á cnsku
18.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Frcttaspcgill
19.45 Við bókaskápinn Jónas
Sigurðsson skólastjóri talar.
20.00 Einsön gur :• Lconic
Kysanck syngur ópcruariur
20.30 Mál til mcðfcrðar Árni
Gunnarsson fréttamaður
sér um þáttinn.
21.00 Strcngjakvartett i C-dúr
op. 59 nr. 3 eftir Bccthoven
Amadeuskvartettinn leikur.
21.30 útvarpssagan: ,,I)ala-
lif” eftir Guðrúnu frá Lundi
Valdimar Lárusson les (12).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Maðurinn, scm
hreytti um andlit” eftir
Marccl AymcKristinn Reyr
les (11).
22.35 Danslög i 300 ár Jón
Gröndal kynnir.
23.05 A tólfta tiinanum Létt
lög úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
ilBililli
FÖSTUDAGUR
18. ágúst 1972
20.00 Frcttir
20.25 Vcður og auglýsingar
20.30 Gömiu skipin Mynd frá
danska sjónvarpinu um
varðveizlu og endursmið
gamalla tréskipa. Sýnd eru
skip ýmissa tegunda og rætt
við skipasmiðinn, sem haft
hefur forgöngu um að
bjarga þessum minjum
gamalla tima frá glötun.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið) Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
20.55 Einleikur i sjónvarpssal
Rögnvaldur Sigurjónsson
leikur á pianó verk eftir
Hummel, Schumann, Chop-
in og Prókoffieff.
21.20 Ironside Merktur fyrir
morð Þýðandi Sigriður
Ragnarsdóttir.
22.10 Erlcnd málefni Um-
sjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.40 Frá heimsmeistaraein-
viginu i skák Umsjónar-
maður Friðrik Ólafsson.
23.00 Dagskrárlok