Tíminn - 03.09.1972, Page 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 3. september 1972
allt í einu i hug a& fara ekki heim aftur. 1 stað þess að fara út, sneri ég
mer aö honum og sagði:
„Lofið mér að fara meö yöur. Ég hef ekkert annað aö gera. Ég get
beðið meðan þér skoöið sjúklinginn”.
,,En” — það var með naumindum að ég gat greint, hvað hann sagði
við ljósið frá mælaboröinu — ,,ég veit ekki, hve lengi ég kann að verða.
Verður fólkið ekki hrætt um yður?”
„Þaö heldur, að ég sé sofnuð. Rekið mig ekki inn aftur, læknir. Ég
skal ekki verða yður til trafala”.
Hann kinkaði kolli til samþykkis og renndi vagninum aftur á bak út
úr skýlinu. Svo stanza&i hann sem snöggvast og hagræddi tösku sinni á
gólfinu á milli okkar. Þótt aldarandinn breytist, þekkingin aukist og
nýjar lækningaaðferöir komi til sögunnar, eru þessar stóru, slitnu
leöurtöskur ætið einkenni þeirra, sem læknar eru. ösjálfrátt myndi ég
vantreysta lækni með nýja og fallega tösku. Þaö er eins og sérhver
skella og rispa á þessum töskum sé ör, sem vitni um einvigi læknisins
við sjálfan dau&ann.
Það var kyndugt að sitja þarna við hliðina á Merek Vance svo siöla
kvölds i litla vagninum, sem ég hafði átt svo margar skemmtilegar
stundir i, sumarið, sem viö Harrý trúlofuðumst. Bifreiö I myrkri er
heimur út af fyrir sig. Allt er hulið sjónum manns nema hiö takmark-
aða sviö, sem ljóskeilurnar ná að lýsa. Bifreiöin veröur i skynjun
manns eins konar skel, sem lykst um mann og knúin er orku þeirra,
sem hana byggja. Mér fannst það þetta kvöld, að bifreiöin fengi orku
sina frá okkur, og það værum við, sem brunuöum með hana utan á
okkur 6t úr borginni. Þyturinn lék um hana. Fram undan var auður,
steinsteyptur vegur — grá hella, sem flaug á móti ljósinu undir hjól
bifreiðarinnar. Ég sá ekki greinilega framan i Merek Vance. A andlitið
bar skugga af stórum kraganum á frakka hans, og af honum lagði
tóbaksþef og einhverja lykt, er ég gat ekki gert mér grein fyrir. Hann
hélt léttilega um stýrið. Ég hefði ekki getað greint orð hans i myrkrinu,
Háskóli íslands
Verkfræði- og
Raunvísindadeild
Stúdentar, sem skráðir eru á 1. námsár
við Verkfræði- og Raunvisindadeild Há-
skóla íslands, eru boðaðir til viðræðufund-
ar mánudaginn 4. september kl. 16 i I.
kennslustofu Háskólans.
Kennsla hefst almennt i Verkfræði- og
Raunvisindadeild þriðjudaginn 5. septem-
ber kl. 8.15 skv. stundaskrá, þó hefst
kennsla á 3. misseri i liffræði mánudaginn
4. september kl. 10 i stofu VII.
Xuglysingur, sem eiga aA koma í hlaðinu a suiinudöguin þurfa aö
berast fsrir kl. I a fösludögum.
\ugl.stola Timans er f Hankastræti 7. SluTar - 18300.
þótt hann hefði talað til min, og engin skiljanleg svör fengið við orðum
minum, þótt ég hefði ávarpað hann. Við mæltum þvi hvorugt orð frá
vörum.
Mér varð hugsað til þess, er ég sá Merek Vance fyrst. Það var furðu-
legt, að ég skyldi treysta honum eins og ég gerði, þrátt fyrir þá óbeit,
sem ég fékk á honum i upphafi. Þó vildi ég ekki viðurkenna það fyrir
sjálfri mér, að heimsóknir minar i litlu, fátæklegu lækningastofuna
hans væru að verða mér eins og vinjar i eyðimörk tilbreytingarlausra
og tilgangslausra daga, sem voru ömurlegri en nokkurt annað timabil
ævi minnar. Það var talsvert komið fram i desember, og nær tveir
mánuðir liðnir siðan lækningatilraunirnar hófust. Fyrst hafði ég verið
smeyk við að vitnast myndi um þær. En enginn veitti ferðum okkar
Tátu sérstaka athygli. Vinátta vandafólks mins og Weeks læknis olli
þvi, að engum fannst furðu sæta, þótt ég ætti leið i hús hans. Auðvitað
varð hann var við komur minar. En hann spurði einskis, enda vissi
hann erindi mitt, og ég treysti honum vel til að sefa Emmu frænku, ef
henni færi að þykja háttalag mitt einkennilegt. Miðaldra hjúkrunar-
kona, sem svaraöi simahringingum og aðstoöaði læknana, var óvenju-
lega þagmælsk og áreiðanleg manneskja. Sjúklingar, sem gengu til
Vance aö staöaldri, komu flestir á kvöldin eða þá þeir vitjuðu hans i
móttökusal sjúkrahússins. Ég sá þvi fáa sjúklinga á ferðum minum til
hans. Ég trúði ekki á bata og vildi ekki viðurkenna, að mér hefði
nokkurn tima dottið bati i hug. Hann vissi það sjálfur, en leitaðist þó
aldrei við aö telja mér hughvarf. Hann reyndi aldrei að mikla sjálfan
sig i minum augum, og það var aðeins örsjaldan, er hann var að prófa,
hvort einskis bata yrði vart hjá mér, að ákafinn hljóp með hann i gönur.
Samt hliðraöi hann sér aldrei hjá að tala við mig eða skaut sér undan
þvi með afsökunum, þótt heyrnarleysið torveldaði samtöl við mig.
Hann hélt áfram að tala einarðlega um baga minn og stundum jafnvel
harðýðgislega.
„Heyrnarlaust fólk reynir mikið á sig”, sagði hann einu sinni, „nema
þeir, sem þykjast heyra, þótt þeir heyri alls ekki. Raunar heyrir helftin
af fólki það eitt, sem það vill heyra, og-hinn helmingurinn lætur sér
það vel lika”.
„Og hvað svo um yöur sjálfan?”
Hann yppti öxlum. „Ég er læknir, en ekki þjóðfélagsfræöingur. En ef
við litum nokkur ár aftur i timann — getiö þér þá i hreinskilni sagt, að
þér hafið hlustað?”
„Auðvitað”, svaraöi ég. „Og mun gera það i framtiðinni, ef ég á
þesss nokkurn tima kost”.
„Ég efa þaö". Hann hristi höfuðið. „Sjálfum hefur mér ekki tekizt
það betur en gengur og gerist. Hvorugt okkar hlustar eftir öllu þvi, sem
við gætum heyrt”.
Lárétt
1) Land.- 5) Straumkast - 7)
Rödd.- 9) Verkfæri.- 11)
Komast.- 12) Trall - 13)
Gljúfur,- 15) Tjara,- 16)
Púka.- 18) Snögga,-
Lóðrétt
1) Villan - 2) Sog,- 3) TS.- 4)
UTS,- 6) Gróður,- 8) 011.- 10)
Æri.- 14) Allt.- 15) Bað,- 17)
Óa.-
Lóðrétt
1) Verzla,- 2) Oþrif.- 3)
Samtenging- 4) Fæðu,- 6)
Dökka - 8) Alasi,- 10) Strák-
ur,- 14) Happ.- 15) 01- 17)
Guð-
Ráðning á gátu Nr. 1196
Lárétt
1) Vestur,- 5) Ost.- 7) Lög,- 9)
Sær - 11) LL,- 12) Ró,- 13)
Ala,- 15) Bið,- 16) Lóa,- 18)
Staður,-
Við rætur hæðarinnar
féllurDrekii vatnið...
Dreki er maður — hann
dauður?
geturdáið —
hann er dauður!.
Getur
Dreki dáið?
Þannig deyja
allir óvinir
. okkar!
li ll lílliffi,
■
SUNNUDAGUR
3. september
8.00 Morgunandakt. Biskup
Islands flytur ritningarorð
og bæn.
10.25 Loft, láð og lögur. Páll
Bergþórsson veðurfræöing-
ur ber saman veðurfar i
Reykjavik, London og við-
11.00 Messa 1 Stafholtskirkju
(Hljóðrituð 12. f.m.). Prest-
ur: Séra Brynjúlfur Gisla-
son. Organleikari: Björn
Jakobsson.
13.30 Landslag og leiðir.Einar
Þ. Guðjohnsen talar um
öku- og gönguleiðir á Fjalla-
baksvegum.
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitiminn. Hljómsveit
Willis Boskovskys leikur
dansa frá Vinarborg.
17.00 íslandsmótið i knatt-
spyrnu: Útvarp frá
La uga rd a ls velli. Atli
Steinarsson lýsir fyrri hálf-
leik i keppni Fram og KR.
17.45 Framhaldssaga barn-
anna: „Hanna Maria”
19.30 Mörg eru dags augu.
Matthias Johannessen skáld
les úr nýrri ljóöabók sinni.
19.45 Frá ólympiuleikunum i
Munchen. Jón Asgeirsson
lýsir fyrst viðburðum dags-
ins og siðan siðari hálfleik i
handknattleikskeppni Is-
lendinga og Túnismanna,
sem fram fer.
20.25 Frá listahátið i Reykja-
vik. André Wats leikur á
tónleikum i Háskólabiói
21.00 Vindsór-konurnar kátu
og llinrik fjórði (fyrra leik-
ritið).Ævar R. Kvaran leik-
ari les og tengir saman
kafla úr leikritunum i þýð-
ingu Helga Hálfdánarsonar.
21.30 Arið 1945, siðara misseri.
Kristján Jóhann Jónsson
rifjar upp helztu tiðindi á
þeim tima.
22.00 F’réttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.25 F'réttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
3. september
16.30 Endurtekið efni Setn-
ingarathöfn ólympiuleik-
anna i MunchenÁður á dag-
skrá siðastliðinn mánudag.
18.10 Frá Ólympiuleikunum
Kynnir Ómar Ragnarsson
(Evrovision)
Hlé.
20.00 Fréttir
20.20 Veður og Auglýsingar.
20.25 Ain og eldurinn Vatn og
eldur hafa mótað þetta land,
öðrum náttúruöflum frem-
ur. öviða sjást þess gleggri
merki en i Skaftafellssýslu-
um, þar sem landslag hefur
breytzt svo, að landnáms-
menn myndu varla þekkja
það að nýju.
Sjónvarpsmenn brugðu sér i
sumar austur á Siðu, þar
sem vatnsfjöll og eldhraun
hafa umbylt héraðinu á sið-
ustu öldum. Umsjón Magn-
ús Bjarnfreðsson. Kvik-
myndun Orn Harðarson.
Hljóðsetning Oddur Gúst-
afsson.
21.00 Böl jarðar Framhalds-
leikrit frá danska sjónvarp-
inu. 5. þáttur, sögulok.
21.40 Aberdeen Fréttakvik-
mynd frá heimsókn sjón-
varpsmanna til Aberdeen,
þar sem rætt var við for-
ystumenn sá sviði fiskveiða
og fiskiðnaðar. Umsjónar-
maður Eiður Guðnason.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.15 Frá heimsmeistaraein-
viginu i skák. Umsjónar-
maður Friðrik Ólafsson.
22.40 Að kvöldi dags Biskup
Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson. flytur kvöldhug-
vekju.
22.50 Dagskrárlok