Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 2
2 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR „Ég er alltaf tilbúinn þegar kallið kemur.” Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga, var á leik- mannalista KR þegar liðið keppti í Færeyjum um helgina. Willum hefur ekki leikið með meistara- flokki karla síðan hann þjálfaði Hauka í þriðju deildinni árið 2000 en var reyndar á leikmanna- skrá í bikarnum ári síðar án þess að koma inn á, rétt eins og í Færeyjum. Spurningdagsins Willum, ertu leikfær? ■ Lögreglufréttir FJÖLMIÐLAFRUMVARP Stjórn Norður- ljósa hf. hefur falið lögmönnum fyrirtækisins að undirbúa mál- sókn á hendur íslenska ríkinu ef fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnar- innar verður að lögum. „Við fórum yfir frumvarpið á stjórnarfundi í dag og komumst að þeirri niðurstöðu að það myndi hafa umtalsverð áhrif á rekstur fé- lagsins,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa. Í ályktun frá stjórn Norðurljósa er bent á að frumvarp- ið feli í sér verulegar þrengingar á heimild til að eiga og reka fjöl- miðla á Íslandi og með samþykkt þess verði fótunum kippt undan rekstri félagsins. „Ef þetta nær fram að ganga verða Norðurljós ólöglegt félag,“ segir Skarphéðinn. Stjórn Norðurljósa heldur því fram að frumvarpið ógni hags- munum lánardrottna, starfs- manna og viðskiptamanna félags- ins. „Það eru gjaldfellingar- ákvæði í mjög mörgum lánasamn- ingum félagsins og við óttumst að þær breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir muni hafa í för með sér kostnaðarsamt óhagræði fyrir félagið og lánveitendur,“ segir Skarphéðinn. Allri vinnu við skráningu Norðurljósa á hluta- bréfamarkaði hefur verið frestað vegna frumvarpsins. Skarphéðinn segir það einnig ljóst að þetta hafi áhrif á atvinnu- öryggi starfsmanna félagsins. „Það starfsöryggi sem við höfðum vonast til að yrði tryggt með sam- runanum í vetur er ekki lengur til staðar. Við erum að kanna hvernig við getum brugðist við því.“ Á fundi stjórnarinnar var farið yfir mál sem snúa að réttindum hluthafa. Í fyrrnefndri ályktun er því haldið fram að með frumvarp- inu gangi ríkisvaldið freklega á réttindi smærri hluthafa í félag- inu. Þeir séu nú í þeirri stöðu að geta tapað verðmætum vegna andúðar ríkisvaldsins á stærri hluthöfum félagsins. „Við höfum falið lögfræðingum félagsins að undirbúa lögsókn og ef frumvarpið verður að lögum munum við stefna ríkinu. Við telj- um að þetta brjóti í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi, eignarrétt og at- vinnufrelsi. En auðvitað vonum við að frumvarpið verði ekki sam- þykkt og það þurfi ekki að koma til málaferla,“ segir Skarphéðinn. bb@frettabladid.is ÚA leggur rækjutogara og segir upp starfsmönnum: Verðmætið eins og hjá trillu SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er eina rækju- frystiskipið sem eftir er, hinir eru annað hvort hættir eða farnir út úr þessu,“ segir Guðmundur Krist- jánsson, útgerðarmaður og stjórn- arformaður ÚA. Öllum yfirmönnum á rækjutogaranum Rauðanúpi hef- ur verið sagt upp þar sem grund- völlur þessarar útgerðar er brost- inn. „Hann var að koma úr mánaðar túr með rúmar tíu milljónir í afla- verðmæti, það er allt of lítið. Við erum að fiska minna en trillurnar.“ Guðmundur segir að veiðin og útlitið hafi glæðst í febrúar og mars. Menn hafi talið að rækjuverð- ið gæti ekki lækkað meira. „Maður fyllist alltaf bjartsýni þegar vel veiðist. Þetta helvíti fer alltaf neðar og neðar og við tókum þá ákvörðun að þetta gengi ekki.“ Guðmundur keypti ÚA í upphafi árs. Hann segist bjartsýnn á rekst- urinn og skipulagsvinna gangi vel. ÚA mun skipta um nafn á næstunni og heita Brim í framtíðinni. Guð- mundur gerir ráð fyrir að nafn- breytingin verði í maí. Rauðinúpur er farinn á rækju- veiðar og það gæti orðið síðasti rækjutúr togarans. ■ Fjömiðlafrumvarpið: Engin áhrif á Breiðvarpið ÚTVARPSLÖG Fjölmiðlafrumvarpið sem nú liggur fyrir Alþingi mun ekki hafa áhrif á Breiðvarp Sím- ans. Síminn er markaðsráðandi fyrirtæki í öðrum rekstri og má því samkvæmt frumvarpinu ekki reka útvarps- og sjónvarpsstöð. Eva Magnúsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, segir að um sé að ræða endurvarp á sjónvarpsefni frá Evrópska efnahagssvæðinu sem sent sé út í heilu lagi. „Ákvæði útvarpslaga á ekki við ef um óstytt endurvarp heildardag- skrár erlendrar sjónvarpsstöðvar er að ræða.“ Samkvæmt EES-samningnum ber íslenska ríkinu að tryggja frelsi á útsendingum frá ríkjum EES. Lögsaga útvarpslaga nær ekki til sjónvarpsstöðva sem starfræktar eru á svæðinu og er dreift hér á landi. Sjónvarpsstöðv- ar utan EES sem nota innlent dreifikerfi eru hins vegar háðar útvarpslögum. ■ STJÓRNENDUR NORÐURLJÓSA Óvissa ríkir um framtíð Norðurljósa vegna fjölmiðlafrumvarps ríkisstjórnarinnar. Hundruð starfa í húfi: Mikið áhyggjuefni FJÖLMIÐLAFRUMVARP „Við höfum fylgst með þessari umræðu og það er okkur vissulega áhyggju- efni ef þetta verður til þess að veikja starfsöryggi félagsmanna okkar,“ segir Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, um fjölmiðlafrum- varp ríkisstjórnarinnar. Óvissa ríkir um störf hundraða félagsmanna VR sem starfa hjá Norðurljósum hf. ef frumvarpið verður að lögum. „Við höfum ákveð- ið að blanda okkur ekki í þetta mál með beinum hætti að svo stöddu en ef starfsmenn einstakra fyrirtækja óska eftir því munum við að sjálf- sögðu hugleiða það,“ segir Gunnar Páll. ■ GEKK EKKI Guðmundur Kristjánsson segir að ekkert sé upp úr rækju að hafa og því ekkert annað að gera en að leggja Rauðanúpi og segja upp yfirmönnum togarans. Ógnar hagsmunum fjölda starfsmanna Norðurljós hf. undirbúa málsókn gegn ríkinu. Segja fótunum kippt undan rekstrinum og því muni það hafa áhrif á lánasamninga, atvinnu- öryggi starfsmanna og skráningu félagsins á hlutabréfamarkaði. Í FLOKKI HERMANNA Sharon, við hlið Moshe Katsav, forseta Ísraels, fagnaði þjóðhátíðardegi Ísraela með fyrrum hermönnum. Heimdallur: Mótmælir frumvarpi FJÖLMIÐLAFRUMVARP Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mótmælir fjölmiðla- frumvarpinu harðlega. Í tilkynningu frá félaginu segir að löggjöfin muni skapa slæmt for- dæmi. Heimdallur harmar það ef menn beita fjölmiðlum í annarleg- um tilgangi en telur að fólkið í land- inu eigi að ákveða hvernig fara eigi um þessa hluti í frjálsum viðskipt- um sínum. Fólk hafi hingað til ákveðið það sjálft hvað það vilji lesa og horfa á. Taki ríkisvaldið að sér að ákvarða hvað sé nægileg fjölbreytni sé það samkvæmt vilja stjórnvalda en ekki vilja fólksins. ■ ÁTAK GEGN HRAÐAKSTRI BER ÁR- ANGUR Lögreglan á Siglufirði segir að átak gegn hraðakstri í bæjar- félaginu hafi skilað árangri og öku- menn séu teknir að hægja á sér. Hátt í fimmtíu ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur innan bæjarmarkanna það sem af er þessu ári. Hámarkshraðinn á göt- um bæjarins er 35 kílómetrar á klukkustund en margir hafa verið stöðvaðir á sextíu til sjötíu kíló- metra hraða. Varar Palestínumenn við: Harkan get- ur enn aukist JERÚSALEM, AP Viðbrögð Ísraela við árásum Palestínumanna verða enn harðari en þau hafa verið til þessa ef Palestínumenn halda áfram árásum á Ísraela eftir brotthvarf þeirra frá Gaza-svæð- inu. Þetta sagði Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, í sjón- varpsviðtali á þjóðhátíðardegi Ísraela. Þar varði hann þá ákvörð- un sína að binda einhliða enda á landtökuna á Gaza-svæðinu. Sharon sagði að eftir brott- hvarf Ísraela gætu Palestínu- menn ekki lengur afsakað árásir sínar með því að þeir væru að hefna fyrir landnám Ísraela á landi Palestínumanna. Sharon hyggst þó innlima landnema- byggðir Ísraela á Vesturbakkan- um í Ísrael. ■ FJÖLMIÐLAFRUMVARP „Þetta er heft- un á frelsi manna í atvinnu- rekstri,“ segir Haraldur Haralds- son, eigandi Áburðarverksmiðj- unnar, um frumvarp forsætisráð- herra um eignarhald á fjölmiðl- um. „Það má túlka fjölmiðlalögin þannig að við mættum ekki kaupa hlut í Stöð 2, ef við hefðum áhuga á því, vegna þess að við erum markaðsráðandi fyrirtæki í áburði. Markaðsráðandi fyrirtæki má ekki vera í fjölmiðlarekstri,“ segir Haraldur. Hann bendir á að frumvarpið geri menn ekki jafna fyrir lögun- um. „Lög eiga að vera jöfn fyrir alla. Það er í lagi að setja leikregl- ur en þær eiga að gilda fyrir alla. Lög eiga ekki bara að vera sniðin að einhverjum ákveðnum í sam- félaginu,“ segir hann. Hann spyr jafnframt að því hvort stjórnmálamenn séu eitt- hvað betri menn heldur en menn í viðskiptalífinu. „Mér hefur ekki virst það. Er stjórnmálamönnum treystandi til að reka RÚV? Ætti þá ekki minni- hlutinn, stjórnarandstaða, að vera í meirihluta í RÚV þannig að stjórnin sé ekki að misnota fjöl- miðilinn?“ spyr Haraldur einnig. Haraldur keypti ásamt nokkrum kaupsýslumönnum Stöð 2 árið 1990. „Það hefði ekki mátt nú. Ég var í stjórn Íslenska útvarpsfélagsins í ein átta eða níu ár þannig að ég þekki mjög vel samband frétta- manns og eigenda. Sambandið er verra en ef maður ætti ekki í fé- laginu. Ef mér fannst ég vera með eitthvað fréttnæmt úr Áburðar- verksmiðjunni var mér sagt að fara með það á RÚV,“ segir Har- aldur. ■ HARALDUR HARALDSSON „Það má túlka fjölmiðlalögin þannig að við mættum ekki kaupa hlut í Stöð 2, ef við hefðum áhuga á því, vegna þess að við erum markaðsráðandi fyrirtæki í áburði. Markaðsráðandi fyrirtæki má ekki vera í fjölmiðlarekstri.“ Haraldur Haraldsson um fjölmiðlafrumvarpið: Heftun á frelsi í atvinnurekstri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.