Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004 inn í pólitísk deilumál, réttinum til skaða. Óvandaðar lagasetningar Í umræðu um fjölmiðla- frumvarp sem ríkisstjórnin leggur fram á Alþingi og stefnt er að að verði að lögum fyrir vorið hafa verið uppi efasemdir um að frum- varpið standist eignarréttar- ákvæði stjórnarskrár. Meðal þeirra sem sett hafa fram efa- semdir um slíkt er Sigurður Líndal prófessor og Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður. Ragnar hefur einmitt rekið nokkur slík mál gegn ríkinu og haft betur. Uppbygging þings og dómstóla er með svipuðum hætti hér og á Norðurlöndunum, enda ræturnar í dönskum yfirráðum á landinu. Al- þingi Íslendinga hefur oftar feng- ið lagasetningu í hausinn, en þekk- ist á hinum Norðurlöndunum. Um ástæður þessa eru skiptar skoðan- ir. Ragnar Aðalsteinsson segir höf- uðástæðuna þá að hér sé ekki vandað nægjanlega til lagasetn- ingarinnar. „Aðdragandi löggjafar er óvandaður og ólýðræðislegur,“ segir Ragnar. Hann segir embætt- ismenn oftast vinna að löggjöf. „Þeim er ætlað að segja kosti á löggjöf eða lausn, en ekki löst.“ Hann segir annars staðar sé unnin skýrsla um tiltekið vandamál og skoðað hvernig löggjöf annars staðar sé háttað. Því næst sé unnin skýrsla þar sem lýst er kostum og göllum. Síðan sé komið fram með tillögur. „Þær tillögur fara síðan í ráðuneytið. Ráðuneytið semur svo sínar tillögur á grundvelli þessa.“ Ragnar segir að algengt sé að slík- ar tillögur hafi farið um hendur margra ólíkra álitsgjafa „sem hafa fengið nægan og eðlilegan tíma til þess að fjalla um málið“. Aðrar skýringar Davíð Þór Björgvinsson laga- prófessor sem átti sæti í nefndinni sem skilaði skýrslu um eignarhald á fjölmiðlum hefur fjallað um það hvers vegna Hæstiréttur hefur vísað lögum Alþingis heim. Í grein í Morgublaðinu í janúar síðastliðn- um veltir hann því fyrir sér hverj- ar geti verið meginskýringar sér- stöðu Íslands í dómum um lög Alþingis. Davíð útilokar ekki skýringar Ragnars, en telur tvær aðrar skýr- ingar líklegastar. „Að íslenskir dómarar og lögfræðingar hafi að einhverju leyti losað um tengsl sín við almenn norræn viðhorf í þess- um efnum og sæki fyrirmyndar sínar annað.“ Í því sambandi nefn- ir Davíð Þór Evrópudómstólinn, Mannréttindadómstól Evrópu og Bandaríkin, þar sem rík hefð er fyrir að dómur fjalli um og móti lög. Hin líklega skýringin að mati Davíðs Þórs eru breytingar á mannréttindakafla stjórnarskrár- innar sem gerðar voru 1995 og fólu í sér samþættingu mannrétt- indaverndar á Íslandi við þær kröfur sem felast í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum sem Ís- land er aðili að. Skiptar skoðanir eru um hvort þróunin sé æskileg. Sjónarmiðin togast á. Traustir dómstólar veita vernd gegn ofríki stjórnlyndra valdhafa. Davíð Þór gerir ekki lítið úr því viðhorfi, en bendir á að þeir sem bera endan- lega ábyrgð á umboði stjórnmála- manna eru kjósendur. ■ Kíktu á neti› www.das.is Hringdu núna 561 7757 ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S D A S 24 43 6 0 4/ 20 04 N‡tt happdrættisár byrjar í maí Missir flú af milljónum í hverri viku Kauptu mi› a núna! Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir! KJARAMÁL „Fyrir starfsmenn göngu- deildar mun þetta hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar, þar sem um er að ræða mjög reynda starfskrafta sem gengt hafa lykilhlutverki á göngu- deild BUGL,“ segir meðal annars í bréfi sem starfsmenn göngudeildar barna- og unglingageðdeildarinnar á Dalbraut hafa sent heilbrigðisyfir- völdum, landlæknisembættinu og stjórnendum Landspítala - háskóla- sjúkrahúss. Tilefni þessa bréfs er að í kjölfar sparnaðaraðgerða á BUGL hafa þrír hjúkrunarfræðingar á deildinni sagt upp og hætta 30. júní. Starfsmenn göngudeildarinnar lýsa í bréfinu áhyggjum sínum af þeirri stöðu sem skapast hefur vegna uppsagna hjúkrunarfræðinganna á deildinni. „Með verulegri kjaraskerðingu þessara reyndu hjúkrunarfræðinga sem allar hafa áratuga ómetanlega starfsreynslu, er svo komið að þær sjá sér ekki fært að starfa undir sviðsstjórn BUGL,“ segir enn frem- ur í bréfinu. „Við lýsum undrun okk- ar að á sama tíma og rætt hefur ver- ið um eflingugöngudeildar BUGL og ríkisstjórn Íslands ákveðið að veita auknu fjármagni til geðheilbrigðis- mála barna og unglinga sé gripið til slíkra ráðstafana.“ Eydís Svein- bjarnardóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á LSH, sagði að verið væri að skoða málið. Um væri að ræða minnkun á fastri yfirvinnu og sú ákvörðun sem slík yrði ekki dregin til baka. ■ Starfsfólk barna- og unglingageðdeildar harmar uppsagnir: Ófyrirsjáanlegar afleiðingar TOGSTREITA UM TÚLKUN Stjórnmálamenn hafa túlkað niðurstöður Hæstaréttar með ólíkum hætti og sumir talið að rétturinn teygði sig inn á svið löggjafans með dómum sínum. LÖGIN KÆRÐ Ragnar Aðalsteinsson hefur sótt mál sem hafa leitt til þess að Hæstiréttur hefur hafnað lögum frá Alþingi. Hann telur undirbúningi laga ábótavant.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.