Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 39
31MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004 ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Eggjum. Um 80 þúsund manns. Sharon Stone. LÖGFRÆÐINGAFÉLAG ÍSLANDS EFNIR TIL HÁDEGISVERÐARFUNDAR UM: Eignarhald á fjölmiðlum í Sunnusal Hótel Sögu fimmtudaginn 29. apríl nk. kl. 12:00 Í skýrslu nefndar um eignarhald á fjölmiðlum er komist að þeirri niðurstöðu að fjölmiðlamarkaður hér á landi hafi ýmis þau einkenni sem talin eru óeðlileg út frá þeim alþjóðlegu viðmiðunum sem byggt er á í skýrslunni og lagt til að brugðist verði við með lagasetningu. • Hvaða einkenni eru þetta? • Hvers vegna eru þau óeðlileg? • Hvaða alþjóðlegu viðmið er hér um að ræða? • Hvernig er hægt að bregðast við? Þessum og fleiri spurningum um niðurstöðu nefndarinnar mun formaður hennar, prófessor Davíð Þór Björgvinsson, leitast við að svara í framsögu um málið, en að erindi hans loknu fara fram almennar umræður undir stjórn varaformanns félagsins, Benedikts Bogasonar héraðsdómara. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, en tilkynna þarf þátttöku til skrifstofu Lögfræðingafélags Íslands í síma 568-0887 fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 28. apríl. Einnig má tilkynna þátttöku í bréfsíma 568-7057 og á tölvupóstfangið logfr@logfr.is Verð kr. 2.500 greiðist við innganginn. ÓDÝRT HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 en gott Við bjóðum 14 34 / T A K T ÍK n r. 4 0 C Stærð: D: 50 cm B: 30/40 cm H: 180 cm Stál- skápar fyrir vinnustaði kr. 7.719,- Verð frá Stálskápar (Fyrsti skápur kr. 8.840,-) Vegna flutninga ætlum við að rýma verslunina. Veitum því góðan afslátt af öllum vörum miðvikudag og fimmtudag. Glæsibæ Þetta er ákveðið skref í að sigraheiminn,“ segir Árni Þór Jóns- son, leikstjóri auglýsingarinnar Flash Mob, en tímaritið Shots valdi hana sem eina af sautján sjón- varpsauglýsingum sem eiga að sýna það besta sem er að gerast í þessum geira á Norðurlöndunum. Auglýsingin var gerð í sam- starfi Góðs fólks og Sagafilm og er þetta í annað sinn sem Shots velur auglýsingu Sagafilm í hópi áhuga- verðustu sjónvarpsauglýsinga. Sú fyrri, auglýsingin Beautiful wom- an sem gerð var fyrir Thule bjór, var valin árið 2002. Tímaritið kynnir einnig Árna Þór Jónsson sérstaklega sem nýj- an og áhugaverðan leikstjóra. „Þetta þýðir að ég er kominn í ákveðinn flokk og kem mér áfram í Bretlandi þar sem þetta tímarit er mikið lesið. Þó svo að ég sé bú- inn að vera í leikstjórn í slatta af tíma, bæði heima og erlendis, þá hef ég bara ekki verið í þessum stóru löndum eins og Bretlandi. Þar er ég nýr og ferskur á mark- aðinum. Þetta opnar því möguleika fyrir mig að fá svona umfjöllun,“ segir Árni og drífur sig svo aftur í tökur á tónlistarmyndbandi fyrir rússneska rokkhljómsveit sem er í kúrekaleik í Moskvu. ■ Auglýsingar FLASH MOB ■ Önnur íslenska auglýsingin sem hlýtur útnefningu Shots. ÚR AUGLÝSINGUNNI FLASH MOB Auglýsing þessi var valin af tímaritinu Shots sem ein áhugaverðasta auglýsing Norðurlanda í ár. 1 5 6 7 8 13 14 16 17 15 18 2 3 11 9 1210 4 Lárétt: 1 tímarit, 5 tónn, 6 gras, 7 tveir eins, 8 tíni, 9 óvandað verk, 10 ullarhnoðri, 12 arinn, 13 væta 15 verkfæri, 16 hægt, 18 ónotaðir. Lóðrétt: 1 þakklætisvottur, 2 málmur, 3 í röð, 4 menntastofnanir, 6 fáka, 8 skordýr, 11 vá, 14 stefna, 17 goð. Lausn: Lárétt: 1vera,5eis,6há,7rr, 8 les, 9fúsk,10ló,12stó,13agi, 15al, 16unnt,18nýir. Lóðrétt: 1 verðlaun,2eir, 3rs,4háskól- ar, 6hesta,8lús,11ógn,14inn,17tý. Nýr og ferskur á stóru mörkuðunum Einn fremsti kvikmyndaklippariÍslendinga, Valdís Óskarsdóttir, klippti nýjustu kvikmynd leik- stjórans Michel Gondry, Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Val- dís hefur klippt margar stórmyndir í gegnum tíðina og af þeim erlendu má nefna myndir eins og Festen, Mifunes sidste sang og Finding Forrester. Eternal Sunshine of the Spotless Mind fjallar um Joel Barish, sem Jim Carrey leikur, en hann kemst að því að kærasta hans, Clementine Kruczynski, leikin af Kate Winslet, til tveggja ára hefur gengist undir skurðaðgerð til að eyða öllum minn- ingum um hann. Joel gengur illa að lifa með þessari staðreynd og ákveður sjálfur að gangast undir svipaða aðgerð. Leikstjórinn Michel Gondry hef- ur átt mikilli velgengni að fagna við leikstjórn á tónlistarmyndböndum og kann greinilega vel að starfa með íslenskum kjarnakonum því hann leikstýrði meðal annars mynd- bandi Bjarkar Guðmundsdóttur, Human Behavior, á sínum tíma. Handrit myndarinnar er eftir höfundinn Charlie Kaufman, sem skrifaði meðal annars Being John Malkovich, Confessions of a Dangerous Mind og Adaptation. Kaufman, Gondry og Valdís hafa ekki valdið aðdáendum sínum von- brigðum í þetta skiptið því myndin hefur hlotið lofsamlega dóma gagn- rýnenda í Bandaríkjunum og verður frumsýnd í Bretlandi á morgun. ■ Kvikmyndir VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR ■ Leikstjórinn Michel Gondry vill starfa með íslenskum kjarnakonum. ELÍFT SÓLSKIN Eternal Sunshine of the Spotless Mind er strax komin í 46. sæti yfir bestu myndir allra tíma á heimasíðunni Internet Movie database en myndin verður frumsýnd á Ís- landi þann 7. maí. VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Eternal Sunshine of the Spotless Mind hefur nú bæst við í safn þeirra stórmynda sem Valdís hefur klippt. Valdís klippir Carrey og Winslet

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.