Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 25
Í upphafi fjölmiðlamálsins sagði formaður Samfylkingarinnar að það kæmi í ljós með afstöðu Fram- sóknar hvort beinin í leggjum Hall- dórs Ásgrímssonar væru forsætis- ráðherrabein eða úr brauði. Nú er það komið í ljós. Eftir digurbarka- legar yfirlýsingar um að Framsókn taki ekki þátt í að takmarka eignar- hald á fjölmiðlum með afturvirkum hætti hefur formaður flokksins lyppast niður og látið Davíð Odds- son kúga sig enn einu sinni í máli sem varðar grundvallaratriði. Framsókn blaktir eins og fífan í Flóanum þegar blásið er úr Stjórn- arráðinu. Opinberlega hófst áhlaupið með því að forsætisráðherra lagði fram á einum og sama ríkisstjórnarfundi bæði hina frægu fjölmiðlaskýrslu og frumvarpið um takmörkun á eignarhaldi fjölmiðla. Í kjölfarið var upplýst að frumvarpið hafi verið unnið af ráðherrum Sjálf- stæðisflokksins og að Framsókn hafi hvergi fengið að koma nærri. Davíð Oddsson fór því gróflega á bak við Framsóknarflokkinn. And- spænis svona meðferð hefðu allir flokkar með sjálfsvirðingu brugðist ókvæða við og lagt sjálfa sig undir frekar en láta lítilsvirða sig með þessum hætti. Það voru líka fyrstu viðbrögð framsóknarmanna, meðal annars formannsins. Í samtali við fréttastofu RÚV í kvöldfréttum 30. apríl lofaði Halldór fjölmiðlaskýrsluna og sagðist eftir vandlega yfirferð vera þeirrar skoðunar að það ætti að setja lög og reglur á grundvelli nið- urstaðna úr henni. Í ljósi þessara ummæla Halldórs er athyglisvert að skoða helstu niðurstöðu hennar. Höfundar skýrslunnar segja bein- línis að ef fyrirtæki þurfi að breyta uppbyggingu sinni með þungbær- um eða kostnaðarsömum hætti til að laga sig að fyrirmælum nýrra laga fæli það í sér afturvirkni, sem gæti reist álitamál varðandi ákvæði stjórnarskrár um atvinnufrelsi og vernd eignarréttar. Þeir klykkja út með því að segja að af „þessum ástæðum yrði því fyrst og fremst að horfa til áhrifa þeirra til fram- tíðar“. Það tók Davíð Oddsson ekki nema hálfa helgina að snúa Halldór niður. Frumvarpið felur í sér aftur- virknina sem skýrslan varar við. Tilgangur þess er sá einn að ganga milli bols og höfuðs á Norðurljós- um. Það er því út í hött þegar Hall- dór Ásgrímsson segir að frumvarp- ið byggist á fjölmiðlaskýrslunni. Önnur mikilvæg atriði úr skýrsl- unni er heldur ekki að finna í frum- varpinu. Frumvarpið byggist ekki á lykilatriðum úr skýrslunni og geng- ur í berhögg við sum. Staðreyndin er sú að forsætisráðherra er að jafna sakir við fyrirtæki sem fer í taugarnar á honum. Það kemur hins vegar á óvart að Framsókn skuli lyppast algerlega niður í málinu. Menn verða að geta staðið í lapp- irnar ef þeir ætla að verða alvöru forsætisráðherrar. ■ 17MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004 Selja á ríkisfyrirtækin Sverrir Jóhannesson skrifar: Við birtingu fjölmiðlaskýrslunnar og frum- varps forsætisráðherra um takmarkaða eignaraðild að fjölmiðlum sýnist mér hann opinbera framar öllu öðru veikleika sinn, þ.e. að ef honum ekki líkar það sem er að gerast í kringum hann þá setji hann bara ný lög í krafti valds síns. Verði frum- varpið að lögum þá liggur beint við að þeir einu sem geta átt hlut í fjölmiðli verði heimavinnandi húsmæður og launþegar, aðrir en þeir sem eru eigendur fyrirtækja, og ríkið. Það er óheilbrigt að ríkið eigi og reki sjónvarps/útvarpsstöð og eigi og reki fjarskiptafyrirtæki (Símann). Það á að selja þessi fyrirtæki svo fljótt sem auðið er. Ríkisstjórnin og Alþingi eru kosin til þess að setja leikreglur til að fara eftir og skapa fyrirtækjum aðstöðu til að dafna í heilbrigðri samkeppni. Ríkið á ekki að vera atvinnurekstri. Ríkisfyrirtæki eru illa rekin, og þjónustan fyrir neðan allar hell- ur. Ég er t.d. alveg hættur að horfa á ríkis- sjónvarpið annað en fréttaþáttinn á kvöld- in, ég kýs að horfa á BBC Prime í staðinn og það tók mig þrjá mánuði að losna undan oki Símans sem er að mínu viti verst rekna fyrirtæki á sínu sviði í hinum vestræna heimi. Gerum góðverk Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, skrifar: Það er frábært til þess að vita að á Íslandi er fjöldi manna sem veit ekki aura sinna tal. Aðrir eiga ekki jafn mikið en hafa samt yfirdrifið nóg og eru því aflögufærir og því er við hæfi að beina orðum til þeirra sem nóg hafa umleikis að gera góðverk með því að styrkja verkefnið „Hlúum að ís- lenskum börnum“. Söfnunin hófst 15. apríl og lýkur 3. maí nk. Hún er fyrir börn sem koma frá efnalitlum heimilum og búa því við þrengri kost en gengur og ger- ist í okkar góða landi. Þetta eru heimili þar sem örorka, skyndileg veikindi, skiln- aður, atvinnuleysi, andlát eða annars kon- ar erfiðar aðstæður hafa bankað óvænt á dyr. Veruleikinn á Íslandi er því miður sá að of stór hópur barna á þess ekki kost að njóta æskuáranna með minningar að hausti um yndislegar stundir frá dvöl í sumarbúðum eða þátttöku í leikjanám- skeiðum nýliðins sumars. En nú á að bæta úr því. Í raun geta allir stutt þetta verkefni því möguleikarnir eru nokkrir. Fyrir þá sem minna hafa er hægt að hringja í söfnunarsímann 901 5050, en hver hringing kostar 500 krónur. Þeir sem efnameiri eru geta styrkt eitt barn til dvalar í sumarbúðir með því að leggja 27.000 krónur inn á reikninga Fjölskyldu- hjálpar Íslands í Landsbanka Íslands 101- 26-66090 eða á reikning 0546-26-6609 hjá Íslandsbanka. Það er sú upphæð sem greiða þarf fyrir vikudvöl í Vindáshlíð eða Vatnaskógi með ferðum, en að sjálfsögðu ráða börnin hvert þau fara og gildir þetta fyrir börn á öllu landinu. Samvinna verður höfð við presta sem hjálpa munu til þess að réttu börnin fái notið þessa. Gerum góðverk og tökum þátt. Bókhald verkefn- isins verður gert opinbert. BRÉF TIL BLAÐSINS BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN FJÖLMIÐLA- FRUMVARPIÐ Framsóknarmenn lyppast niður Framsókn blaktir eins og fífan í Flóanum þegar blásið er úr Stjórnarráðinu. ,, Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og segja skoðun sína á fréttum blaðsins, viðhorfum sem birtast í blaðinu eða leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Bréf skulu vera stutt og gagnorð, 50–200 orð að lengd. Vinsamlega sendið efnið í tölvupósti á netfangið greinar@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.