Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 153 stk. Keypt & selt 25 stk. Þjónusta 50 stk. Heilsa 7 stk. Skólar & námskeið 4 stk. Heimilið 10 stk. Tómstundir & ferðir 5 stk. Húsnæði 28 stk. Atvinna 24 stk. Tilkynningar 6 stk. 50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí Stokkaðu upp fjármálin Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar- bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign. Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13A, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is – með hagstæðu fasteignaláni Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 5,95% 6,50% 7,50% 8,00% 8,50% 30 ár 5.960 6.320 6.990 7.340 7.690 40 ár 5.470 5.850 6.580 6.950 7.330 4.960 5.420 6.250 6.670 7.080 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Afborgun- arlaust H im in n o g h a f/ 90 40 12 4 Krakkar læra af fjáröflun BLS. 2 Góðan dag! Í dag er miðvikudagur 28. apríl, 119. dagur ársins 2004. Reykjavík 5.09 13.25 21.44 Akureyri 4.43 13.10 21.40 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Þú færð líka allt sem þig vantar á „Ég gerði gríðarlega góð kaup þegar ég keypti íbúðirnar mínar,“ segir Gunnar Helgason leikari, sem hefur keypt sér tvær íbúðir í gegnum tíðina. „Fyrri íbúðin mín hækkaði um þrjár og hálfa milljón á tæp- lega sjö árum, en seinni íbúðin hefur hækk- að enn meira eða um sex milljónir á tæp- lega þremur árum.“ Gunnar segist hafa tekið til hendinni innanhúss ásamt eiginkonu sinni, en telur að það eitt og sér hækki ekki verð eigna svo mikið. Það er svo margt annað sem kemur til,“ segir hann. Aðspurður segist Gunnar vera lítið fjár- málaséní og allt að því fjármálahálfviti. „Ég held ég sé samt nískur þó ég spari síst í matarinnkaupum. Föt kaupi ég ekki á meira en 3000 kall, fer bara á útsölurnar og er hallærislegur eftir því,“ segir hann og hlær. „Ég neyddist samt til að kaupa mér svarta lakkskó um daginn og þurfti að borga fyrir þá 13.000 krónur. Það var rosa- legt.“ Skórnir voru þó brýn nauðsyn því Gunni er að veislustýra um allan bæ og verður að vera fínn í tauinu í vinnunni. „Smókinginn er hægt að leigja, en skóna ekki,“ segir Gunnar. „Annars kann ég ekkert á peninga, enda var manni ekkert kennt um fjármál í skóla. Mitt mottó er að skulda sem minnst og þannig hefur þetta gengið.“ ■ Bestu kaupin: Tvær fasteignir sem borguðu sig heimili@frettabladid.is Fimmtán námsmenn eiga möguleika á því að hljóta styrk frá námsmannalínu KB banka. Námsstyrkirnir eru að upphæð 200.000 kr. hver og eru ætlaðir útskriftarnemum úr háskólum hérlendis og námsmönnum í há- skólum erlendis. Umsóknarfrestur fyrir næstu úthlutun rennur út á laugardag, 1. maí. Laun í bankann er viðfangs- efni leikjar sem settur hefur verið inn á vef vaxtalínunnar hjá KB banka, vaxtalinan.is, sem mun standa yfir í allt sumar. Leikurinn snýst um að koma sumarlaunum í bankann. Allir sem klára leikinn eiga möguleika á að vinna flotta vinninga. Dregið verður úr hópi þátttakenda í lok sumars. Fjármálaþjónusta í Leifsstöð eykst í kjölfar nýs samnings flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Landsbanka Íslands hf. um leyfi til reksturs fjármála- þjónustu í Flugstöðinni til næstu sjö ára. Lands- bankinn mun reka gjald- eyrisþjónustu fyrir ferða- menn sem leið eiga um Flugstöðina og alhliða fjármálaþjónustu fyrir starfsmenn og fyrirtæki á flugstöðvarsvæðinu. Landsbankinn hefur starf- rækt gjaldeyrisafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli allt frá árinu 1973. Nýi samningurinn tekur til reksturs banka- og gjald- eyrisþjónustu í komusal á 1. hæð Flugstöðvarinnar og sérstakrar gjaldeyrisafgreiðslu á frísvæðinu á 2. hæð. Gjaldeyrishraðbönkum fjölgar um tvo, en þeir bjóða bæði upp á erlendan gjaldeyri og íslenskar krónur. Viðskiptavinir Landsbankans munu einnig eiga þess kost að panta gjaldeyri fyrir- fram hjá þjónustuveri bankans sem afhentur er í Leifsstöð við brottför. Krabbameinsfélagið og KB banki hafa tekið upp samstarf um söfnun velunnara fyrir Krabba- meinsfélagið. Viðskiptavinum KB banka og öðrum býðst að bætast í hóp þeirra sem nú þegar styrkja félagið með reglulegu framlagi. Hægt er að fylla út eyðublað á afgreiðslustöðum bankans. Við- skiptavinirnir geta ákveðið upp- hæð framlagsins og valið hve oft og lengi verður tekið út af reikn- ingi þeirra. . Lækkun símgjalda Síminn boðaði 20 prósenta verðlækkun í gær á símtölum frá GSM- síma í borðsíma eða úr 10 krónum í 8 krónur. Einnig lækkar SMS- gjald innan kerfisins um 11 prósent. Þessi áskriftarleið nefnist Ás- inn. Hún felur í sér að eitt gjald er innheimt fyrir símtöl og sending- ar í borðsíma, GSM- og SMS-kerfum fyrirtækis- ins. Mánaðargjaldið lækkar líka um 30 pró- sent frá því sem gullá- skriftin bauð upp á, eða úr 1.800 krónum í 1.290 krónur. Við breytinguna verður númerabirting einnig gjaldfrjáls. Gunnar Helgason gerði góð kaup þegar hann keypti íbúðirnar sínar. Smáauglýsingar á 750 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í FJÁRMÁLUM Háls í Kjós – til sölu mjög góður bjálka- sumarbústaður með húgögnum. Eign- in skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi uppi. Rafmagn, heitt vatn. S. 847 7510. Þessi bátur er til sölu. Storebro Royal cruiser 31. Vélar: tvær Volvo penta 136hp. Mikið endurnýjaður. Uppl. veitir Jóhann í s. 553 1708 & 892 2392. Amerískur húsbíll til sölu. Ford E450 með Fleetwood Tioga húsi. Vél V10 310 Hö. Nýskr. 05/2001, ekinn 7.700 mílur. Verð 4.900.000. Upplýsingar í síma 892 0382. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Það er af sem áður var þegar menn voru með löng og vegleg seðlaveski í rassvasanum. Á korta- tímum hefur seðlaveskjat- ískan breyst til muna, enda orðið æ sjaldgæfara að fólk noti ávísanahefti. Nú eru langvinsælustu veskin þau sem taka allt frá þremur upp í tólf debet- og kreditkort. Í þeim er og pláss fyrir seðla og lítil rennilása- budda sem tekur við klinkinu. Einnig eru svokallaðar afabudd- ur, eða skeifulaga klinkbuddur, vinsæll kostur hjá þeim sem eru sniðugir og vilja ekki eyðileggja vasa sína með smápeninga- þunga. Tíska og smekkur breytist lítillega með hækkandi aldri og sömu- leiðis er kynjamunur í vali seðlaveskja. Þannig vilja karlarnir lítil, nett korta- veski sem hægt er að smeygja í alla vasa, en konur ívíð skrautlegri og veglegri seðlaveski. Brúnt, svart og rautt leður er sívinsælt, smekkur landsmanna er látlaus og algengt verð á seðlaveskj- um er 2000–6000 krónur. ■ Seðlaveski nútímans: Kortaveski og afabuddur Vinsæl seðla- og kortaveski.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.