Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 28. apríl 2004
„Nei. Ég eyði peningunum mínum bara jafn-
óðum.“
Jón Hjartarson
Lyfjakönnun:
Töluverður
verðmunur
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði í síðustu viku
verð sex lyfsseðilsskyldra lyfja í tíu lyfja-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Apótekin voru Lyf og heilsa Kringlunni,
Apótekarinn Mjódd Þönglabakka, Apó-
tekið Iðufelli, Lyfja Smáralind, Árbæjar-
apótek Hraunbæ, Garðsapótek Sogavegi,
Hringbrautarapótek Hringbraut, Laugar-
nesapótek Kirkjuteigi, Rimaapótek Langa-
rima og Skipholtsapótek Skipholti.
Búin voru til tvö tilfelli, annars vegar
38 ára kona á þremur lyfjum, einni getn-
aðarvarnarpillu og lyfjum vegna sýkingar.
Hins vegar þriggja ára barn á þremur lyfj-
um, tveimur við astma og einu vegna
sýkingar.
Í tilfelli konunnar gat hlutur sjúklings
hæstur orðið 12.518 krónur ef apótekin
gæfu engan afslátt. Í öllum apótekum var
boðið ódýrara samheitalyf. Þykir það
merki um góða þjónustu. Munur á hæsta
og lægsta heildarverði sem konan varð
að greiða var 2.056 krónur. Alls voru sex
apótek af tíu undir 11 þúsund krónum
fyrir pakkann og ódýrast var í Rima-
apóteki 10.318 krónur.
Í tilfelli barnsins gat hlutur sjúklings
hæstur orðið 6.937 krónur ef enginn af-
sláttur var gefinn. Munur á hæsta og lægs-
ta heildarverði var 1.096 krónur. Lægsta
verð fyrir pakkann var í Rimaapóteki 5.550
krónur og alls voru fimm apótek með
pakkann undir 6.000 krónum.
Könnunin gefur aðeins vísbendingu
um stöðu mála á þessum markaði, en
endurspeglar ekki verðlag á lyfjum al-
mennt. ■
Spurningin
Leggurðu
reglulega fyrir?
Neytendur geta sparað nokkuð með því
að afla sér upplýsinga um hagstæðustu
kjörin hverju sinni.