Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004 Hringdu í fljónustudeild DHL í síma 535-1122. DHL sendir ekki bara hra›sendingar og frakt milli landa. Me› jafn glö›u ge›i fljótum vi› me› sendinguna flína flvert yfir landi› e›a til næsta bæjar. fiú n‡tur flví árei›anlegrar fljónustu lei›andi alfljó›legs flutningsfyrirtækis og flæginda innanlandsflutninga. www.dhl.is Meiri fljónusta innanlands. Afhendum flínar sendingar um allt land. Ma›kur á Krókinn. Hlíðasmára 9 - Kópavogi Að eiga stafræna myndavél og kunna ekki á Photoshop er eins og að eiga bíl og kunna ekki að keyra! Síðdegisnámskeið. Kennt frá kl. 13-17. Byrjar 4. og lýkur 18. maí. Kvöldnámskeið. Kennt frá kl. 18-22. Byrjar 10. og lýkur 26. maí. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Á þessu námskeiði er lögð áhersla á þá hluti sem mest eru notaðir af þeim sem eiga stafræna vél eða skanna. Ótrúlega áhugavert og skemmtilegt 30 stunda námskeið í þessu frábæra forriti. NÁTTÚRA Íbúum Vestmannaeyja hefur fjölgað um hundruð þús- unda á degi hverjum að undan- förnu þar sem lundinn hefur snú- ið aftur í varpstöðvar sínar. Um sjö mánuðir eru liðnir frá því að lundarnir yfirgáfu Ísland og héldu til vetrarstöðva, að því er fram kemur á vef Vestamanna- eyjabæjar. Lundinn er táknmynd Vest- mannaeyja og því er það ávallt mikið ánægjuefni þegar hann kemur þangað til að dvelja yfir sumarið. Talið er að í Vestmanna- eyjum séu um fjórar milljónir lunda yfir sumartímann. Lundinn þykir afar sérstakur og skemmti- legur fugl og laðar að sér fjölda ferðamanna á hverju ári. ■ LÖGREGLUMÁL „Ástandið hjá lög- reglunni í Reykjavík er afar slæmt og í raun óásættanlegt fyrir lögreglumenn og almenning í landinu,“ segir Hermann Karls- son, varaformaður Landssam- bands lögreglumanna, en félagið lýsir yfir miklum áhyggjum vegna vinnuálags rannsóknar- deildar sakamála í Reykjavík. Var ályktað á aðalfundi félagsins að beina því til yfirvalda að draga með einhverjum hætti úr vinnu- álagi en mál safnast upp á meðan sá tími sem rannsóknarmenn hafa til vinnslu þeirra hefur verið skertur. „Þetta er í raun eina deildin þar sem mál safnast saman og daga jafnvel uppi. Á landsbyggð- inni er ástandið í þessum málum mun betra og afgreiðsla tekur stuttan tíma. En þar sem þörfin er kannski brýnust er vinnuálagið alltof mikið á fáa aðila og tími til kominn að fá þar úrlausn yfir- valda.“ ■ Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík: Óásættanlegt vinnuálag RANNSÓKNARDEILD LÖGREGLUNNAR Í REYKJAVÍK Hefur engan veginn mannskap til að sinna þeim fjölda mála er koma inn á borð hennar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Lundinn kominn til Eyja: Íbúum fjölgar um milljónir LUNDI Í EYJUM Um fjórar milljónir lunda halda til í Vestmannaeyjum yfir sumartímann.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.