Fréttablaðið - 28.04.2004, Síða 9
■ Evrópa
9MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
PRESTASTEFNA Í Grafarvogskirkju
stendur nú yfir prestastefna undir
yfirskriftinni „Samfélag í trú og
gleði“.
Prestastefnan hófst með
synodusmessu í Dómkirkjunni
klukkan ellefu í gærmorgun en
formleg setningarathöfn fór fram
klukkan tvö. Japanski guðfræðing-
urinn, skáldið og myndlistarmað-
urinn Yushi Nomura er sérstakur
gestur prestastefnunnar og flutti
hann erindið „Auði krossinn –
japanskt sjónarhorn“ að loknum
setningarræðum síðdegis í gær.
Þema fyrsta dagsins var borg-
arsamfélagið og var Þórólfi Árna-
syni borgarstjóra, Trausta Vals-
syni, prófessor í skipulagsfræði,
og Þórhildi Líndal, umboðsmanni
barna, boðið að flytja erindi. Í dag
verður fjallað um yfirskrift
prestastefnunnar, kynntar nýjar
upplýsingar um afstöðu Íslendinga
til kirkjunnar og messuhalds og
rætt um skipan prestsþjónustunn-
ar og endurskoðun prestakalla.
Prestastefnunni lýkur á morgun
en þá stendur til að kynna kirkju-
tónlistarstefnuna sem lögð verður
fyrir kirkjuþing í október.
Í kvöld klukkan átta verður
opið hús í Grafarvogskirkju undir
yfirskriftinni „Ég get sungið af
gleði“. Sr. Vigfús Þór Árnason
stýrir samkomunni og Ómar Ragn-
arsson fréttamaður flytur hug-
vekju. ■
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Horfur á
Íslandi góðar
HAGVÖXTUR Spá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins um hagvöxt hér á landi
næstu ár er samhljóða spá Seðla-
banka Íslands. Hagvaxtarspáin
hljóðar upp á 3,5 prósenta hag-
vöxt á þessu ári og gert er ráð fyr-
ir að vöxtur landsframleiðslunnar
verði 4,6 prósent á næsta ári.
Greining Íslandsbanka segir
spár Seðlabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins lægri en spá
þeirra, en spáin er aðeins hærri
en spá fjármálaráðuneytisins.
Spárnar séu þó samhljóða að því
leyti að hagvaxtarhorfur séu góð-
ar í sögulegum og alþjóðlegum
samanburði. ■
HEIM MEÐ DÝNUNA
Spánverjar yfirgáfu bækistöðvar sínar í Írak
í gær og héldu heim á leið. Bandarískir
hermenn tóku við verkefnum þeirra.
Írak:
Spánverjar
farnir
ÍRAK, AP Spænsku hermennirnir
sem hafa verið í Írak frá því í
ágúst á síðasta ári héldu í gær
heim á leið. Einu spænsku her-
mennirnir sem eru eftir í Írak eru
þeir sem vinna að skipulags-
málum og þurfa að ganga frá
flutningi herbúnaðar heim til
Spánar. Alls voru 1.300 spænskir
hermenn sendir til Íraks í tíð fyrri
stjórnar en Sósíalistar, undir
stjórn nýja forsætisráðherrans
Jose Luis Rodriguez Zapatero,
hétu því í kosningabaráttunni að
kalla alla hermenn heim svo fremi
sem Sameinuðu þjóðirnar tækju
ekki við friðargæslu í Írak.
„Frá og með klukkan 16 í dag
verður enginn spænskur meðlim-
ur Plus Ultra II eftir í Írak,“ sagði
Zapatero þingheimi í gær. Plus
Ultra II er heiti hersveitarinnar
sem var send til Íraks. Ellefu
Spánverjar féllu í Írak, þeirra á
meðal sjö njósnarar. ■
Dæmdur til sektargreiðslu:
Braut
vopnalög
DÓMSMÁL Rúmlega fimmtugur
maður var dæmdur til að greiða
680 þúsund krónur í sekt í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir brot gegn
tolla- og vopnalögum. Greiði mað-
urinn ekki sektina innan fjögurra
vikna kemur 64 daga fangelsi í
stað sektarinnar.
Maðurinn tilgreindi ekki í að-
flutningsskýrslum að bifhjól,
blómahitakassi, hnífar og áfengi
væru í búslóð sem hann flutti
hingað til lands frá Kanada. Hlut-
irnir voru gerðir upptækir. ■
VILJA ÞJÓÐARATKVÆÐI Þrír af
hverjum fjórum Frökkum vilja fá
að greiða atkvæði um stjórnar-
skrá Evrópusambandsins, fjórð-
ungur vill að franska þjóðþingið
samþykki eða hafni stjórnar-
skránni. Jacques Chirac Frakk-
landsforseti hefur ekki tekið
ákvörðun um hvort stjórnar-
skráin verði lögð undir þjóðar-
atkvæði.
HÆLISLEITENDUM FÆKKAR Þriðj-
ungi færri sóttu um hæli í
Hollandi í fyrra en árið áður. Hæl-
isleitendum fækkaði úr 18.700 í
13.400, 6.600 manns var veitt hæli,
2.500 færri en árið áður.
Prestastefna stendur yfir í Grafarvogskirkju:
Samfélag í trú og gleði
PRESTASTEFNA HEFST
Fulltrúar prestastefnu gengu frá safnaðarheimili Dómkirkjunnar að kirkjunni
klukkan ellefu í gærmorgun til að taka þátt í synodusmessu.