Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 10

Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 10
HAMFARIR „Við látum okkur fátt um finnast enda breytir það engu hvort við höfum áhyggjur eður ei,“ segir Einar Þorsteinsson, bóndi að Sólheimahjáleigu í Mýr- dalshreppi. Bærinn sá stendur einna næst Mýrdalsjökli af sveitabýlum í hreppnum en sér- staklega er fylgst með jöklinum þessa dagana þar sem leiðni hefur mælst óvenjuhá í Múla- kvísl og megn brennisteinsfýla er við upptök Jökulsár við Sól- heimasand. Hefur þeim tilmæl- um verið beint til ferðafólks að sýna ýtrustu aðgát við ferðir á þessum slóðum enda er um eitur- efni að ræða sem auðveldlega geta orðið fólki að fjörtjóni. Undir Mýrdalsjökli er eld- stöðin Katla sem vísindamenn hafa áhyggjur af enda tæplega 80 ár síðan þar gaus síðast. Það er sami tími og lengsti tíminn milli gosa úr Kötlu síðan á land- námsöld en hún hefur gosið um 20 sinnum frá þeim tíma. Einar hefur búið í nágrenni við jökulinn undanfarin 50 ár en óttast ekki sérstaklega gos á næstunni. „Við sofum rólega hér um slóðir enda þótt langt sé síðan gaus síðast á þessum slóðum. Einhver brennisteinsfýla er við Jökulsá eins og er en ég set það ekkert í samhengi við eldgos eða einhvern óróa. Það er algengt að finna slíka lykt við árnar hér og þarf ekki að merkja neitt.“ Kötlugos eru öflug þeytigos og þeim getur fylgt mikið gjóskufall og gífurleg jökul- hlaup sem geta reynst fólki einna hættulegust. Vatn kemst þá að goskviku í gosrásinni og tætist kvikan þá í sundur og þeytist upp í loft. Gosmökk- ur getur orðið allt að 20 kíló- metra hár og sést víða. A l m a n n a - varnir ríkisins hefur samið viðamikla áætl- un um hvað til brags skal taka hefjist eldgos í Mýrdalsjökli enda skapar slíkt hættu fyrir fjölda fólks í ná- grannasveitum og jafnvel víðar. Neyðarstigi Almannavarnar- nefndar er lýst yfir ef ótvíræð- ur gosórói sést með berum aug- um eða á skjálftamælum, gosmökkur sést á veðursjá eða ef flóðs verður vart á Mýrdals- sandi eða í öðrum ám frá jöklin- um. Flókið net sjálfvirks efna- vöktunarkerfis og skjálftamæla er á Mýrdalsjökli og verða vísindamenn þess fljótt varir ef eitthvað óeðlilegt er á seyði. albert@frettabladid.is 10 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Fyrsta ár bandaríska hersins í Írak: Meira mannfall en í Víetnam STRÍÐ Samkvæmt opinberum tölum Bandaríkjastjórnar féllu innan við fjögur hundruð bandarískir her- menn fyrsta árið sem þjóðin tók þátt í Víetnamstríðinu. Þegar ár er liðið síðan Íraksstríðið hófst er tala fallinna Bandaríkjamanna tæplega 800 manns. Þetta hafa andstæðing- ar George Bush, forseta Bandaríkj- anna, haldið að forsetanum undan- farið en mótmæli gegn stríðsrekstri landsins fara vaxandi í landinu. Hefur öldungadeildarþingmaðurinn Ted Kennedy farið hvað harðast fram í gagnrýni sinni á forsetann og segir stríð forsetans gegn hryðju- verkamönnum hafa farið fyrir lítið með innrásinni í Írak. „Meðan forsetinn háir stríð sitt í Írak nota raunverulegir hryðju- verkamenn tímann til að koma fyrir hópum manna víðs vegar í heimin- um sem láta til sín taka eins og dæmið í Madríd sannar. Þetta er sannarlega Víetnam forseta vors.“ ■ Félög hjartasjúklinga: Skora á ráðherra LYFJAMÁL Félög hjartasjúklinga í Þingeyjarsýslum og á Vesturlandi hafa sent frá sér áskorun til heil- br igðisráðherra þess efnis að hann endurskoði ákvörð- un sína um viðmið- unarverð lyfja. Segir í tilkynn- ingu frá félögunum, að þessi sparnaðar- aðgerð muni leiða til mikils skrifræð- is, óvissu og verð- hækkana hjá fjölda hjartasjúklinga. Mörg dæmi séu um að lyf hækki langt yfir 100 prósent. Er vísað í samþykkt Landssamtaka hjarta- sjúklinga sem hafi mótmælt þess- um aðgerðum ríkisstjórnarinnar og telji ákvörðunina lítt ígrundaða. ■ Meltingarlæknar: Mismunandi lækninga- máttur LYFJAMÁL Félag sérfræðinga í melt- ingasjúkdómum hefur sent frá sér áskorun til heilbrigðisráðherra um að hann taki ekki ákvörðun um við- miðunarverð lyfja við meltingar- sjúkdómum án samráðs við félagið. Félagið telur sjálfsagt að velja ódýrasta lyfið þegar það eigi við, en bendir jafnframt á að lækning- armáttur lyfjanna sé ekki alltaf sá sami og að tilteknir sjúklingar nái ekki viðunandi meðferðarárangri með ódýrasta lyfinu. Félagið telur að forsendur heilbrigðisráðu- neytisins um sambærileg með- ferðaráhrif séu ekki byggðar á nægjanlegum faglegum eða vís- indalegum rökum og að breyting- in geti leitt til óhagræðis og auk- ins lyfjakostnaðar sjúklinga. ■ KONUNGLEG GJÖF Friðrik krónsprins og unnusta hans, Mary Donaldson, þurfa ekki að bíða í óvissu um hvað þau fái í brúðkaupsgjöf frá skipu- leggjendum hátíðahalda í tilefni 200. ártíð- ar Hans Christian Andersen á næsta ári. Þau fá forláta matarstell með mynd- skreytingum úr ævintýrum höfundarins. SAMANBURÐUR Á STRÍÐUNUM Stríðið í Írak 1 ár Stríðið í Víetnam 10 ár Írak 800 hermenn Bandaríkjanna látnir 10.000 almennir borgarar látnir Víetnam 58.000 hermenn Bandaríkjanna létust 5,2 milljónir borgara létust Skjöldur og Kormákur kaupa Guðjón Samúelsson – hefur þú séð DV í dag? JÓN KRISTJÁNSSON Hjartasjúklingar skora á ráðherra að endurskoða ákvörðun sína. LÍKHÚSIN FYLLAST Fjöldi fallinna í stríðinu í Írak eykst dag hvern og enginn endir í augsýn. Vísindamenn fylgjast afargrannt með Mýrdalsjökli þessa dagana enda ýmislegt sem bendir til að Katla sé að vakna af blundi sínum,“ segir Sigurður Reynir Gíslason, jarðfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. „Ekki er það eingöngu vegna þess að hún er komin á tíma heldur benda allar almennar vís- bendingar til þess að eitthvað sé í nánd. Leiðni í Múlakvísl, brennisteinslykt í Jökulsá og jarðhræringar á þessu svæði eru með því móti að flesta renn- ir í grun að gamla konan sé að vakna af 80 ára blundi.“ Sigurður bendir á að brenni- steinslykt sú er finnst gjarna fyrir hlaup og er megn við Jökulsá á Sólheimasandi getur verið banvæn fólki enda er það svo að þegar hún er mjög megn þá hættir lyktarskyn fólks að nema hana. Reynslan er sú að vegna þessa hafi fólk ekki varann á sér og þá er stórhætta fyrir hendi þó enginn geri sér grein fyrir því.“ Helstu einkenni eitrunar er sviði í augum og óþægindi í öndunarfærum ásamt ógleði og höfuðverk. ■ SÓLHEIMAJÖKULL Tæp 80 ár eru síðan eldgos varð á þessum slóðum og vísindamenn telja að brátt fari að draga til tíðinda á ný. Sigurður Reynir Gíslason jarðfræðingur: Vísindamenn á varðbergi Katla komin á steypirinn Katla í Mýrdalsjökli er komin á steypirinn ef miðað er við söguna en tæplega 80 ár eru síðan gos varð síðast í Mýrdalsjökli. Það er sami tími og lengst hefur liðið milli gosa Kötlu frá landnámsöld en íbúar sofa rólegir. M YN D /O D D U R SI G U RÐ SS O N „Einhver brennisteins- fýla er við jökulsá en ég set það ekkert í sam- hengi við eld- gos eða ein- hvern óróa. Virt bandarískt ferðatímarit: Ísland í úrvalsflokki FERÐAMÁL Ísland á fjóra fulltrúa á lista hins virta, bandaríska ferða- tímarits „Condé Nast Traveler“ yfir bestu nýju hótelin, veitingastaðina og barina í heiminum. Áætlað er að um fimm milljónir lesi tímaritið í hverjum mánuði. 101 Hótel í Reykjavík og Hótel Búðir á Snæfellsnesi eru í hópi 100 bestu nýju hótelanna. Sjávarkjallar- inn í Aðalstræti er á listanum yfir 66 bestu nýju veitingastaði veraldar og barinn á 101 Hótel er einn af þrjátíu bestu börunum. Allir stað- irnir fá talsverða umfjöllun í blað- inu þar sem helstu kostir þeirra eru tíundaðir. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.