Fréttablaðið - 28.04.2004, Page 14
Alþingi hefur verið gert aftur-reka með lagasetningu í
Hæstarétti í nokkrum stórum mál-
um, þar sem lögin hafa ekki verið
talin standast stjórnarskrá. Fræg-
ust þessara mála eru tveir dómar
sem ógiltu ákvörðun um tekju-
skerðingu öryrkja árið 2000 og
2003, kvótadómurinn sem laut að
réttindindum til atvinnuþátttöku
og féll í desember 1998 og dómur
um gagnagrunn á heilbrigðissviði
sem viðurkenndi rétt konu til þess
að leggja bann við að gögn um föð-
ur hennar væru flutt í gagna-
grunninn. Sá dómur féll í fyrra. Í
þessum dómum voru lög frá Al-
þingi talin stangast á við ákvæði
stjórnarskrár. Öryrkjadómurinn
og kvótadómurinn tengdust há-
værum pólitískum deilumálum og
stjórn og stjórnarandstaða tókust
á um hvernig bæri að túlka niður-
stöðu Hæstaréttar. Málið gekk svo
langt að forseti Hæstaréttar sendi
bréf þar sem hann svaraði spurn-
ingum um dóm Hæstaréttar. Bréf-
ið olli miklum deilum, talið eins-
dæmi og þótti mörgum lögfræð-
ingum að Hæstiréttur væri dregin
14 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Evrópa
NEYTENDUR Olíufélagið Esso hefur
undanfarið kynnt nýjar sjálfsaf-
greiðslustöðvar undir nafninu
Ego. Á heimasíðu félagsins er
sagt að stefna þess sé að bjóða
verð sambærilegt við það sem
best gerist á hverju markaðs-
svæði fyrir sig. Þrátt fyrir þessa
yfirlýsingu félagsins er bensín-
verð hjá þeim sambærilegt hjá
öðrum sjálfsafgreiðslustöðvum
hinna olíurisanna, ÓB og Orkunni,
og fimm krónum dýrara en hjá
Atlantsolíu.
Bergþóra Þorkelsdóttir, deild-
arstjóri markaðsdeildar Ego, seg-
ir hugmyndina vera þá að vera
samkeppnishæf við aðrar sjálfs-
afgreiðslustöðvar á sama svæði.
Hún fellst ekki á að Atlantsolía,
sem einnig rekur stöð í Kópavogi,
sé ein af þeim.
„Við erum að sjá fyrir okkur að
viðskiptavinurinn fái meira en
gott eldsneytisverð og einnig að
þó að stöðin sé mannlaus þá sé
engu að síður gott viðmót sem
mæti fólki sem verslar við
okkur.“ ■
Hæstiréttur Ísraels:
Blaðamenn
fá skírteini
JERÚSALEM, AP Hæstiréttur Ísraels
úrskurðaði í gær að stjórnvöldum
landsins hafi ekki verið heimilt að
neita palestínskum fréttamönnum
um opinber blaðamannaskírteini.
Alþjóðleg samtök fréttamanna
fagna þessari ákvörðun.
Fyrir um það bil tveimur árum,
þegar um ár var liðið frá því upp-
reisn Palestínumanna gegn her-
námi Ísraelsstjórnar hófst, hætti
fjölmiðlastofnun Ísraels að gefa
út blaðamannaskírteini til palest-
ínskra blaðamanna. Af öryggis-
ástæðum, að því er sagt var.
Skírteinin auðvelda þeim að
komast í gegnum farartálma, sem
ísraelski herinn hefur komið upp
víða á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. ■
www.kbbanki.is
Ver›trygg›ur sparireikningur, sem ber 6% vexti.
Innstæ›an ver›ur laus til úttektar vi› 18 ára aldur.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
1
2
0
0
2
•
s
ia
.i
s
fia› sem flér finnst fjarlægur draumur núna getur or›i› a› veruleika me› a›sto› Framtí›arbókar.
Ef flú leggur 25.000 krónur e›a meira inn á Framtí›arbók eftir fermingardaginn flinn fær›u 3.000 króna peningagjöf
inn á bókina frá KB banka.
ÁVAXTA‹U FERMINGARPENINGANA Á FRAMTÍ‹ARBÓK OG LÁTTU DRAUMA fiÍNA RÆTAST!
ÉG Á MÉR
DRAUM
OPNUN EGO
Töluverðum fjármunum hefur verið eytt til kynningar og markaðsstarfs á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum Ego. Bensínverð hjá þeim er hið sama og hjá samkeppnisaðilum,
að Atlantsolíu frátaldri.
BENSÍNVERÐ
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Sjálfsafgreiðsla 95 okt. dísil
Esso 98,70 41,10
Olís 98,70 41,10
Skeljungur 98,70 41,10
Atlantsolía 92,50 35,-
Orkan 97,40 39,80
ÓB 97,50 39,90
Ego 97,50 39,90
Full þjónusta 95 okt. dísil
Esso 103,70 46,10
Olís 103,70 46,10
Skeljungur 103,70 46,10
Nýjar bensínstöðvar Ego með sama verð og aðrir:
Lægsta verðið hjá Atlantsolíu
BLÓMAHAF
Túlípanarnir blómstra í garði Fjallahallar-
innar í Dresden í austurhluta Þýskalands.
Höllin, sem er í barokkstíl, var byggð sem
sumardvalarstaður Ágústs konungs af
Saxlandi á fyrri hluta 18. aldar.
Fréttaskýring
HAFLIÐI
HELGASON
■
fjallar um lagasetningu
Alþingis sem Hæsti-
réttur hefur hafnað.
Slíkir dómar eru mun
algengari hér en á
Norðurlöndunum.
Höfnun Hæstaréttar
á lögum Alþingis
LÖGUM HAFNAÐ
Hæstiréttur hefur í fleiri tilvikum
dæmt gegn lögum sem sett hafa
verið á Alþingi en þekkist á Norður-
löndunum. Dómar Hæstaréttar hafa
snúið að því að lögin hafi stangast
á við greinar í stjórnarskrá Íslands.
TVEIMUR SLEPPT Breska lögregl-
an sleppti í gær tveimur mönn-
um af tíu sem voru handteknir í
aðgerðum gegn meintum hryðju-
verkamönnum í síðustu viku.
Áður hafði þremur einstakling-
um verið sleppt án ákæru. Fimm
liggja enn undir grun um aðild að
undirbúningi hryðjuverka.