Fréttablaðið - 28.04.2004, Síða 29
21MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
Nú gerum við enn betur
- fyrir þig og þína
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig
Erum í 170 löndum og á 5000 stöðum - fyrir þig.
Hringdu í AVIS í síma 591-4000
www.avis.is
Við
gerum
betur
Munið Visa afsláttinn
Verð erlendis háð breytingu á gengi.
A
vi
s
DANMÖRK
Frír tankur af bensíni.
Ekkert skilagjald
Miðað við 7 daga leigu A
vi
s
ÞÝSKALAND
Frítt GPS - Þú týnist ekki í Þýskalandi
(ef þú bókar flokk H Opel Astra
eða sambærilegan).
Miðað við 7 daga leigu
Frír tankur af bensíni í Danmörku og USA í öllum flokkum
ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004
Opel Corsa kr. 2.140, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.Spánn
Opel Corsa kr. 2.400, - á dag m.v. B flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.Ítalía
Opel Corsa kr. 2.700, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.
H flokkur Opel Astra fylgir frítt GPS ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004.Þýskaland
Opel Corsa kr. 3.600, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.
Frír tankur bensín ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004 á öllum flokkum.Danmörk
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
KÖRFUBOLTI Detroit Pistons vann
góðan útisigur, 92-109, á Mil-
waukee Bucks í fyrstu umferð úr-
slitakeppnni NBA-deildarinnar í
körfuknattleik. Liðið leiðir einvíg-
ið því 3-1, hefur unnið báða útileik-
ina í einvíginu og getur tryggt sig
áfram með sigri á heimavelli í
næsta leik. Detroit, sem er af flest-
um talið besta varnarlið deildar-
innar, sýndi að það getur líka spil-
að frábæran sóknarleik. Liðið var
yfir 68-71 þegar langt var liðið af
þriðja leikhluta en hrökk þá í gang
svo um munaði og skoraði 18 stig á
móti aðeins 7 stigum heimamanna
sem áttu erfitt uppdráttar eftir
það. Vítahittni Detroit var frábær
en liðið hitti úr 20 af 21 og auk þess
var hittni liðsins utan af velli góð
en þar fóru 41 af 72 skotum ofan í
(57%). Richard Hamilton var
stigahæstur Detroit-manna með 27
stig og Rasheed Wallace bætti við
20 og hirti 9 fráköst. „Við gáfum
þeim of mörg auðveld tækifæri.
Við gáfum þeim 28 stig og slíkt
bara gengur ekki. Þegar lið spilar
þannig lendir það í vandræðum og
sú varð raunin hjá okkur,“ sagði
Terry Porter, þjálfari Milwaukee.
Damon Jones og Joe Smith voru
stigahæstir liðsmanna með 17 stig
hvor. Toni Kukoc kom af bekknum
og skoraði 15 stig en framlag ann-
arra bekkjarbræðra var ekki eins
gott því samtals töpuðu þeir bolt-
anum 16 sinnum og leiddi það til 28
stiga gestanna. ■
KÖRFUBOLTI Sacramento Kings þarf
nú aðeins einn sigur í viðbót til að
slá út Dallas Mavericks í fyrstu
umferð úrslitakeppni NBA-deild-
arinnar í körfuknattleik. Liðið
vann mikilvægan útisigur, 92-94,
þar sem úrslitin réðust ekki fyrr
en í blálokin. Steve Nash tókst
ekki að koma boltanum á Dirk
Nowitski, sem reyndar hafði að-
eins skorað eina körfu í síðari
hálfleik, og neyddist því til að
taka erfitt skot með Peja Stoja-
kovic í andlitinu, sem mistókst.
Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir
Sacramento og Peja Stojakovic
20, þar af 16 í síðari hálfleik.
Chris Webber var með 17 stig og 9
fráköst og Doug Christie setti 13
stig og tók 15 fráköst. „Við náðum
takmarki okkar sem var sigur á
útivelli og nú getum við klárað
einvígið á heimavelli í næsta leik.
Það verður þó langt frá því að
vera auðvelt og þetta er ekki búið
fyrr en þetta er búið,“ sagði
Webber. Hjá Dallas var Dirk
Nowitski atkvæðamestur og skor-
aði 21 stig og hirti 14 fráköst.
Michael Finley skoraði 16 stig en
lið Dallas hitti aðeins úr 34 af 98
skotum sínum (35%) auk þess sem
liðið tók aðeins 55 fráköst á móti
68 hjá Sacramento. ■
FÓTBOLTI „Öllum leikjum ætti að
ljúka með því að einhver sigrar,“
sagði Sepp Blatter, forseti FIFA,
við þýsku fréttastofuna SID. „Í
spilum, eða hvaða leik sem er,
vinnur einhver og einhver tapar.
Við ættum að hafa hugrekki til að
fá endanlega niðurstöðu í öllum
fótboltaleikjum.“
Blatter sagði að besta lausnin
væri vítaspyrnukeppni en aðrir
möguleikar kæmu til greina.
„Vítaspyrnur eru enn besta leiðin
til að útkjlá leiki sem lýkur með
jafntefli en ef einhver hefur betri
hugmynd er ég tilbúinn að
hlusta.“ Fyrr í vetur ákvað Al-
þjóðanefndin, laganefnd FIFA, að
fella niður reglur um gullmörk og
silfurmörk og beita að nýju víta-
spyrnukeppni til að fá fram úrslit
í leikjum sem lýkur með jafntefli.
„Leikur snýst um tilfinningar,
að ástríðan sé fyrir hendi og þetta
getur orðið dramatískt. Leikjum
lýkur næstum alltaf með harm-
leik,“ sagði Blatter. „Við getum
ekki verið sátt við jafntefli,“ sagði
Blatter og hafnaði því að í íþrótt-
um skipti þátttaka meira máli en
sigur. „Þetta er ekki rétt. Allir
hafa markmið í lífinu og í íþrótt-
um eiga allir markmið sem þeir
vilja ná.“
Blatter segist heldur ekki hrif-
inn af framlengingum. „Það er
ekki alveg sanngjarnt að tveggja
leikja viðureign ljúki með fram-
lengingu,“ sagði Blatter. „Það ætti
að vera vítaspyrnukeppni að lokn-
um venjulegum leiktíma í seinni
leiknum. Framlenging er eins og
annar heimaleikur fyrir liðið sem
er á heimavelli.“
Sepp Blatter sagði einnig að
hann væri á móti því að styðjast
við myndbandsupptökur eða aðra
tækni til að hjálpa dómurum að
ákvarða um vafaatriði. „Svo lengi
sem ég lifi fá dómarar ekki tækni-
lega hjálp,“ sagði Blatter. „Við
verðum að lifa við óvissuna í
íþróttinni og mistök dómara. Ég vil
aldrei sjá að sjónvarpsupptökuvél-
ar ákveði hvort um rangstöðu var
að ræða eða hvort brotið átti sér
stað fyrir innan en utan vítateig.“
Í viðtalinu kom einnig fram að
ekki væri útilokað að Sepp Blatter
sæktist eftir endurkjöri þegar
kjörtímabilinu lýkur árið 2007.
Hann stakk þó upp á því að Franz
Beckenbauer gæfi kost á sér í em-
bætti forseta FIFA. „Starfi hans
sem forseta Heimsmeistara-
keppninnar 2006 lýkur strax eftir
úrslitaleikinn. Það verður kosið í
embætti forseta FIFA. Mér finnst
að hann ætti að gefa kost á sér
jafnvel þó Michel Platini hafi
áhuga. Mér finnst að þeir sem
hafa starfað innan knattspyrn-
unnar ættu að hafa áhrif innan
knattspyrnuheimsins.“ ■
Burt með jafnteflin
Sepp Blatter vill fá úrslit í öllum leikjum. Víta-
keppnir eru enn besta lausnin að mati forseti FIFA.
SEPP BLATTER
Forseti FIFA hefur oft áður viðrað róttækar breytingar á knattspyrnunni. Nú vill hann útkljá
alla jafnteflisleiki með vítaspyrnukeppni.
LOKASKOTIÐ
Steve Nash reynir hér að jafna metin en
Peja Stojakovic gerir sitt til að koma í veg
fyrir það.
Þarf aðeins einn sigur í viðbót til að slá Dallas út:
Þriðji sigur Sacramento
Detroit vann öruggan útisigur á Milwaukee:
Frábær sóknarleikur hjá
besta varnarliðinu
RE/MAX-deildin:
Valur, Haukar og ÍBV unnu
HANDBOLTI Valur, Haukar og ÍBV
sigruðu í fyrstu leikjum RE/MAX-
deildanna í handbolta. Valur vann
ÍR og Haukar unnu KA í keppni
karlanna en í keppni kvennanna bar
ÍBV sigurorð af FH í Eyjum.
ÍBV náði strax frumkvæðinu í
leiknum og hafði níu marka forystu,
19-10, í hléi. FH-ingar byrjuðu síð-
ari hálfleikinn vel og minnkuðu
muninn 20-16 en Eyjastúlkur tóku
við sér að nýju og unnu öruggan sig-
ur, 33-28.
Valur vann ÍR 29-25 að Hlíðar-
enda í jöfnum og spennandi leik.
Staðan var jöfn, 24-24, þegar um
fjórar mínútur voru eftir. Valsmenn
voru sterkari á lokakaflanum og
sigruðu með fjögurra marka mun.
Baldvin Þorsteins-
son var markahæst-
ur Valsmanna með
níu mörk en Einar
Hólmgeirsson skor-
aði tíu mörk fyrir ÍR.
Haukar unnu KA
36-30 að Ásvöllum.
Haukar höfðu
fjögurra marka for-
ystu í hléi, 19-15, en
KA tókst að minnka
forskot þeirra niður
í tvö mörk, 30-28,
þegar langt var liðið á seinni hálf-
leik. Þórir Ólafsson skoraði átta
mörk fyrir Hauka og Arnór Atlason
og Andreus Stelmokas skoruðu átta
mörk fyrir KA. ■
ÍBV
Vann FH með
fimm marka
mun í undan-
úrslitum.