Fréttablaðið - 28.04.2004, Page 34
26 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
PÉTUR PAN kl. 3.20 og 5.40 M/ÍSL. TALI
PÉTUR PAN kl. 3.20 og 5.40 M/ENSKU TALI
STARSKY & HUTCH kl. 6, 8 og 10.10 B.i. 12
SCOOBY DOO 2 kl. 4 M. ÍSL. TALI
SCOOBY DOO 2 kl. 6 og 8 M. ENSKU TALIDAWN OF THE DEAD kl. 10.20 B.i. 16TAKING LIVES kl. 8 og 10.05 B.i. 16
kl. 6 og 10LES INV. BARBARES kl. 10.30 B.i. 12STARSKY & HUTCH
kl. 6 og 8WHALE RIDER
SOMETHING’S GOTTA GIVE kl. 5.40 og 8
50 FIRST DATES kl. 3.40, 5.50, 8 OG 10.15
PASSION OF ... kl. 8 og 10.40 B.i. 16
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.15 B.i. 12
Enginn trúir því að hann muni lifa af
þetta villta og seiðandi ferðalag.
Viggo Mortensen í magnaðri
ævintýramynd, byggðri á sannri sögu! SÝND kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.10
Til að tryggja réttan dóm
réðu þeir utanaðkomandi
sérfræðing. En það var einn
sem sá við þeim...
Það vilja allir vera hún, en hún vil vera
“frjáls” eins og allir aðrir.
Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um
forsetadóttur í ævintýraleit!
Hvernig er hægt að verða ástfangin
með augu alheimsins á þér?
Eftir metsölubók JOHN GRISHAM
Með stórleikurunum, John Cusack,
Gene Hackman, Dustin Hoffman og
Rachel Weisz
HHH
kvikmyndir.com
HHH1/2 kvikmyndir.com
HHH SV Mbl.
Frábærar reiðsenur, slagsmálaatriði, geggjaðir
búningar og vel útfærðar tæknibrellur!
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.15
SÝND kl. 5.10, 8 og 10.50 B.i. 16
LÚXUS kl. 5.10, 8 og 10.50 B.i. 16 HIDALGO kl. 6 og 8.30 B.i. 12
SÝND kl. 3.50, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12
Í LÚXUS VIP kl. 5.40, 8 og 10.20
SÝND kl. 8 og 10.40
HHH1/2
Skonrokk
BAFTA
verðlaunin:
Besta breska
myndin
Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ
SÖNN SAGA
HHHHH
„Gargandi snilld!“
ÞÞ FBL
HHH1/2
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
HHHHH
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
HHH
Skonrokk
HHHH
HP kvikmyndir.com
„Þetta er stórkostlegt meistaraverk“
HHHH ÓÖH, DV
„Án efa ein besta myndin í bíó í dag.“
KD, Fréttablaðið
■ KVIKMYNDIRFréttiraf fólki
www.nanathaistore.com
Sími: 896 3536 · 5881818
Ólíkt öllum öðrum vörumskemmtanaiðnaðarins, með
örfáum undantekningum þó, fá
tölvuleikir að eldast og þroskast
með neytendum sínum. Þannig
taka nýjar útgáfur af gömlum
leikjum við og fylgja þannig
leikjaspilurum fram eftir ævinni.
This is Football er dæmi um
einn þeirra leikja sem kemur sí-
fellt út í nýjum, endurbættum út-
gáfum. Nú er komin út ný útgáfa
fyrir þetta leikár með ýmsum
nýjum möguleikum.
Í leiknum er hægt að velja á
milli rúmlega 900 liða. Yfir 300
andlit skærustu stjarnanna í
knattspyrnuheiminum í dag hafa
verið skönnuð inn sem gefur
leiknum aukin raunveruleikablæ.
Þar fyrir utan inniheldur leikur-
inn 22 deildarkeppnir með 30
deildum og meira en 17.000 leik-
mönnum. Einnig er hægt að búa
til sín eigin lið og leikmenn.
Leikmenn geta stjórnað öllu
sem snýr að liðinu og spilað gegn
tölvunni eða sjö öðrum félögum
sínum. Í nýju útgáfunni geta leik-
menn loksins séð um knattspyrnu-
stjórnun. Keypt og selt leikmenn
á milli liða, eða byrjað með
utandeildarlið og reynt að stýra
því upp á toppinn. Leikurinn er
fáanlegur fyrir PlayStation 2. ■
Stuttmyndahátíðin í Oberhausen
í Þýskalandi verður haldin í
fimmtugasta sinn dagana 29.
apríl til 4. maí 2004. Hátíðin er
ein elsta og kunnasta stutt-
myndahátíð í heimi. Að þessu
sinni voru sendar inn 4000 mynd-
ir frá 87 þjóðlöndum í alþjóðlegu
keppnina. Valdar voru 68 myndir
frá 35 löndum til að sýna og
keppa í 10 flokkum.
Tvær íslenskar stuttmyndir
voru valdar til keppni í Ober-
hausen; myndin Burst eftir Reyni
Lyngdal, sem keppir í alþjóðlega
flokknum, og myndin Bjargvætt-
ur eftir Erlu Skúladóttur, sem
keppir í flokki barna- og unglinga-
mynda. Þess ber að geta að barna-
og unglingaflokkurinn er einn sá
vinsælasti meðal áhorfenda í
Oberhausen.
Reynir Lyngdal, leikstjóri
Burst, mun fylgja mynd sinni
eftir á Oberhausen stuttmynda-
hátíðinni. Frekari upplýsingar um
hátíðina er að finna á kurzfilm-
tage.de ■
Kvikmyndin Touching the Voidsem nú er sýnd í Háskólabíói
hefur vakið mikla athygli og þykir
allsvakaleg. Hún lýsir ótrúlegum
hrakförum fjallagarpanna Simon
Yates og Joe Simpson, en sá síðar-
nefndi náði á ótrúlegan hátt að
koma sér fótbrotnum niður úr 6000
metra háu fjalli. Í myndinni fáum
við hins vegar ekki að vita að þeg-
ar niður var komið var hrakning-
unum hvergi nærri lokið því félag-
ar Simpsons voru tvo daga að drös-
la honum þverbakt á asna niður til
byggða og þar var hann látinn bíða
í tvo daga til á meðan heilbrigðis-
starfsmenn í Perú fullvissuðu sig
um að hann væri með tryggingar
fyrir sjúkrahúsvistinni. Síðan tóku
við fjölmargar skurðaðgerðir þeg-
ar heim til Bretlands var komið.
Hremmingarnar drógu hinsvegar
ekki úr fjallaáráttu Simpsons og
hann hefur haldið áfram að klifra
fram á þennan dag og þykir með
merkustu fjallaklifrurum
sögunnar.
Á sérstakri forsýningu
Touching the Void, sagði Hallgrím-
ur Magnússon Everestfari frá
kynnum sínum af Simon Yates,
sem aldrei er kallaður annað með-
al fjallamanna en „maðurinn með
hnífinn“ en hann skar á reipið sem
hélt félaga hans Joe Simpson og
féll sá síðarnefndi um 50 metra
niður í jökulsprungu í kjölfarið.
Simpson hefur ævinlega varið
Yates og sagt að hann hefði sjálfur
gert það sama í stöðunni en Yates
fékk engu að síður á sig grimmi-
lega gagnrýni í samfélagi fjalla-
manna eftir atburðina. Yates ku
hafa gengið erfiðlega að fóta sig að
mörgu leyti eftir þetta og kunni
viðurnefninu illa.
Hann er hinsvegar með ólækn-
andi fjallabakteríu og þegar
Everestfararnir hittu hann var
hann nýtekinn við leiðangurs-
stjórn í hóp þar sem leiðangurs-
stjórinn hafði týnt lífi í fjöllunum.
Yates átti víst ekki fyrir bjórnum á
barnum í fjallahótelinu en var
samt staðráðinn í að halda förinni
áfram og fara í þriggja mánaða túr
um indverska hluta Himalaja-
fjalla. Það virðist vera alveg sama
hvað kemur fyrir svona kappa,
menn stórslasast eða drepast,
þeir gera allt til þess að komast á
fjöll og vera þar sem lengst. ■
Angelina Jolie þykir mjög sér-vitur stúlka. Hún kom af-
greiðslufólki búðar í Los Angeles
í opna skjöldu á dögunum þegar
hún bað um að fá að fara með
bunka af handklæðum frá Ralph
Lauren inn í skiptiklefann.
Ástæðan er sú að hún vill fá að
strjúka handklæðunum upp við
líkama sinn til þess að sjá hvort
þau séu nægilega mjúk fyrir sig.
Búðareigendurnir gætu eflaust
selt þau handklæði sem hún hafn-
ar. Og fyrir meira ef þau eru ekki
þvegin á milli.
■ TÖLVULEIKIR
„Maðurinn með hnífinn“
kann best við sig á fjöllum
TOUCHING THE VOID
Hrakningum félaganna sem segja sögu sína í heimildarmyndinni Touching the Void var hvergi nærri lokið þar sem myndin skilur við þá.
Samt kunna þeir best við sig á fjöllum.
THIS IS FOOTBALL 2004
Grafíkin er auðvitað betri en síðast
og í leiknum eru 300 þekkt andlit,
skærustu fótboltastjarna heims í dag.
Stafræna fótboltaárið 2004 Íslenskar stuttmyndir
keppa í Þýskalandi
REYNIR LYNGDAL
Fylgir stuttmynd sinni, Burst, eftir á
Oberhausen-stuttmyndahátíðinni.
■ KVIKMYNDIR