Fréttablaðið - 28.04.2004, Síða 38
30 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
Rocky
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
NÝ SENDING
LÉTTIR SÍÐIR SUMARKJÓLAR
Hrósið
... fær Halldór Runólfsson fyrir
að segja að dýr eigi ekki að líða
fyrir stjórnsýslu.
Dansarinn Gunnlaugur Egils-son hefur tyllt niður tánum
víða um heim. Sautján ára gamall
hélt hann til Svíþjóðar til að
leggja stund á ballett og síðan hef-
ur hann meðal annars dansað með
kanadíska ballettinum í Toronto,
Genfarballettinum í Sviss og við
konunglega ballettinn í Stokk-
hólmi þar sem
hann starfar um
þessar mundir.
„Sem stendur er
ég að dansa í
verki eftir Mats
Ek, sem heitir
Lägenhet eða
Íbúðin. Verkið
fjallar um sam-
skipti íbúðareig-
anda við hlutina
í íbúðinni hans
og ég túlka ang-
ist barns sem
íbúðareigandinn
stingur inn í bakarofn þegar hann
er orðin gegnsósa af of miklu
sjónvarpsglápi.“
Í vetur dansaði Gunnlaugur
meðal annars hlutverk Þyspu í
Draumi á Jónsmessunótt: „Ég
þurfti að bregða mér í táskó og
ballettkjól fyrir hlutverkið. Við
strákarnir dönsum venjulega ekki
í táskóm og ég þurfti því sér-
stakra æfinga við. Þetta var
skemmtileg reynsla, en stundum
dálítið sárt fyrir tærnar.“
Konunglegi ballettinn hefur
nýverið lokið sýningum á frum-
sömdu dansverki eftir Gunnlaug,
„Taskig spådom“ sem einnig var
valið til sýningar á menningar-
hátíð í Dramaten. Auk þess að
dansa eitt hlutverkið í verkinu
sjálfur, spilaði hann einnig á
klarinett í sýningunni með hljóm-
sveit sinni sem nefnist Stackars
Lajka eða Aumingja Lajka.
Þessi fjölhæfi listamaður
dvelur hér heima í sumar til að
taka þátt í söngleiknum Fame
með öðru hæfileikafólki í Vetr-
argarðinum. „Leikstjórinn,
Bjarni Haukur, hafði samband
við mig og ég ákvað að slá til,
enda er þetta góð afsökun til að
eyða sumarfríinu heima á Ís-
landi,“ segir Gunnlaugur. Áður
mun hann þó taka þátt í upp-
færslu konunglega sænska
ballettsins á Svanavatninu. „Við
erum að æfa Svanavatnið núna
og stefnum á frumsýningu eftir
þrjár vikur. Um leið og síðasta
sýningin er búin kem ég heim til
að æfa með krökkunum í Fame.
Ég hef trú á að Fame verði bráð-
skemmtileg sýning. Það verður
þarna skemmtilegt og hæfi-
leikaríkt fólk, ég nefni bara
séníið Ólaf Egil, bróður minn
sem dæmi.“ Ólafur Egill Egils-
son sér um leikmyndina í sýn-
ingunni. ■
Stungið inn í bakaraofn
eftir óhóflegt sjónvarpsgláp
Ballet
GUNNLAUGUR EGILSSON
■ kemur glóðvolgur heim úr
Svanavatninu til að taka sporið í
sumarsöngleiknum Fame.
GUNNLAUGUR EGILSSON
dansar hér í Íbúðinni eftir Mats Ek en konunglegi
ballettinn í Svíþjóð hefur einnig nýverið lokið
sýningum á frumsömdu verki eftir Gunnlaug.
„Það verður
þarna
skemmtilegt
og hæfileika-
ríkt fólk, ég
nefni bara
séníið Ólaf
Egil, bróður
minn sem
dæmi.
Skrýtið... hún vildi frekar
borða heima hjá mér en fara
út að borða, og frekar fara í
bíó en á pöbbinn! Það þýðir að
ég verð allavega fimmþúsund-
kalli undir áætlun þegar við
erum búin að gera það!
Svo virðist hún vera með góðan
húmor, hún átti alla Ren og
Stimpy-þættina á spólu!
Fyrirgefðu að ég spyr,
en áttu íbúð?
Já, ég á þriggja herbergja
íbúð í miðbænum!
Ég er ástfanginn!
Já, ég er í
bíó, fín mynd
maður...
GUNNLAUGUR EGILSSON
Hefur meðal annars dansað með kanadíska ballettinum í Toronto, Genfarballettinum í Sviss og við konunglega ballettinn í Stokkhólmi.
Gunnlaugur er sonur Tinnu Gunnlaugsdóttur og Egils Ólafssonar.