Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 40

Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Bakþankar SIGURJÓNS M. EGILSSONAR Þrælsótti á þingi SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Einn af boðberum frelsisins, Guð-laugur Þór Þórðarson, sem er ný- liði á Alþingi, sagði í umræðunni þegar hann var að tala um fjölmiðla að hann hefði enga trú á að menn, það er blaða- menn, færu að kæra vinnuveitendur sína, menn hefðu fyrir fjölskyldu að sjá og yrðu að hugsa um atvinnu sína. Sneiðin er auðvitað ósmekkleg, en ef- laust talar sá sem þekkir og kannski er þetta skýringin á hinum ótrúlega þrælsótta sem er á Alþingi. Skýring á viljaleysi þingmanna. HANN ER SKRÝTINN heimur þessi þingheimur. Áður en frumvarpið hans Davíðs var samþykkt af ríkis- stjórninni töluðu nokkuð margir þing- menn stjórnarflokkanna við blaða- menn. Vildu aldrei láta hafa neitt eftir sér. Óttuðust. En sögðu samt fram- sóknarmenn vera of frjálslynda til að taka þátt í að setja lög til þess eins að geðjast skapi Davíðs, aldrei kæmi til greina að samþykkja lög byggð á hatri eins manns, ekki kæmi til greina að ganga lengra en aðrir þjóðir. Ísland á að ganga skemmra, sagði þingmaður Sjálfstæðisflokks. Ákveðnin rann af þingmönnunum öllum eftir að Davíð og Halldór hittu þá og lögðu línurnar. Það sem fyrir fáum dögum var fáræði, ofsi, klikkun er í dag hið mætasta mál. FORMENNIRNIR DUGA eflaust til starfa í þingsölum. Þingmenn eru í liði sem formennirnir stjórna og eng- inn þingmaður setur sig upp á móti formanninum. Þetta kallast víst þing- ræði. Tveir menn ráða öllu, láta þjóð- ina taka þátt í stríði, ráðast gegn tján- ingarfrelsinu og þrælarnir kyngja skoðunum sínum og sannfæringu. Þrælsóttinn er algjör. ÞEGAR ÞINGIÐ afgreiðir fýlu- frumvarpið dugar að þeir mæti Hall- dór og Davíð. Davíð með spjald sem á stendur 22, það er hann greiðir at- kvæði fyrir þingmenn síns flokks, síns liðs, og Halldór með spjald með töl- unni tíu. Aðrir þingmenn eru óþarfir. Þeir æmta hvorki né skræmta. Þeir bera sig vel þegar foringjarnir heyra ekki til, segjast aldrei ganga erinda reiðra manna. En það er bara í plati. Foringjarnir ráða og þeir einir duga. Þingmenn hafa svo sem sagt að skoð- anir þeirra skipti engu. Liðsheildin eigi að ráða. Þetta er víst þingræði. Hópur þingmanna mun ljá málinu atkvæði sitt þvert á lífsskoðanirnar. Þetta er víst þingræði. ■ – OG SVO VINNA, VINNA, VINNA! F í t o n / S Í A F I 0 0 9 3 5 7 KÍKTU Á XY.IS Ef flú leggur sumarlaunin inn á XY reikning á tímabilinu 1. júní til 3. ágúst 2004 gætir flú fengi› sumargla›ning! VINNUR fiÚ 60.000 KR? VINNINGAR: SKÓLINN ER A‹ KLÁRAST OG SUMARVINNAN FRAMUNDAN. fiRETTÁN SVÍNHEPPNIR KRAKKAR SEM LEGGJA SUMARLAUNIN SÍN INN Á XY REIKNING HJÁ ÍSLANDSBANKA FÁ PENINGAVER‹LAUN. ÍSLANDSBANKI BENDIR XY FÉLÖGUM, OG ÖLLUM Ö‹RUM UNGLINGUM, Á A‹ fiA‹ MARGBORGAR SIG A‹ SPARA SUMARPENINGANA. MEIRA UM VEXTI, TILBO‹ OG FRÍ‹INDI Á XY.IS NÁNARI UPPL†SINGAR UM ÚTDRÁTTINN MÁ FINNA Á XY.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.