Fréttablaðið - 22.06.2004, Side 19
3ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 2004
Sterkir lærvöðvar koma jafnvægi á búkinn og leiða
þannig af sér betri golfsveiflu.
Á vorin og sumrin taka allir
golfáhugamenn sér frí í vinn-
unni og eyða öllum frítímanum
sínum líka á golfvellinum að
æfa sveifluna fyrir golfmót
sumarsins. Það er staðreynd að
golfarar með sterkari lærvöðva
eru með lægri forgjöf og ná
betri og lengri höggum en þeir
sem eru með veikari lærvöðva.
Sterkir lærvöðvar koma jafn-
vægi á búkinn og styrkja hand-
leggina, sem leiðir af sér frá-
bæra golfsveiflu.
Hér er góð æfing til að
styrkja lærvöðvana fyrir þá
sem eru þreyttir á því að tapa og
ná ekkert að lækka forgjöfina.
Fyrir stuttu horfði ég dáleiddur á
matreiðslumann sem vann á
ótrúlegum hraða við að fram-
reiða morgunmat handa við-
skiptavinum sínum í New York.
Maðurinn hafði ótrúlegt vald á
því sem hann var að gera. Hann
hafði tamið sér gott verklag og
það skilaði sér í hraðri og öruggri
þjónustu. Hann vann hratt en leit
alls ekki út fyrir að vera stress-
aður. Þvert á móti virtist hann
hafa mjög gaman af vinnunni og
gantaðist stöðugt við samstarfs-
menn sína og viðskiptavinina. Ég
hugsaði með mér að þarna væri
alls ekki um meðfæddan eigin-
leika að ræða. Með góðu verklagi
og réttu viðhorfi getur öll vinna
orðið létt og skemmtileg. Það er
alltof sjaldgæft að sjá fólk sem
sýnir metnað í vinnu sinni. Þegar
að ég sat þarna við borðið og beið
eftir morgunmatnum mínum var
ég ánægður vegna þess að mér
finnst ég aldrei vinna. Ég hef svo
gaman að því sem ég er að gera.
Ég áttaði mig líka á því að allt er
erfitt þangað til að það verður
auðvelt og ef ég byrja á því að
temja mér gott verklag þarf ég
aldrei að upplifa leiðinlegan dag
á ævinni, jafnvel þótt þeir eigi
margir eftir að vera erfiðir.
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
VERKLAG OG GLEÐI
Gott verklag skilar sér á öllum sviðum
gbergmann@gbergmann.is.
STYRKING LÆRVÖÐVA
Leggstu á hliðina með lærin hvert
ofan á öðru og hvíldu höfuðið á
handleggnum.
Hafðu fótleggina um 45 gráður fyrir
framan þig upp á jafnvægi að gera.
Lyftu efri fótleggnum um þrjá
sentímetra. Haltu honum samhliða
neðri fætinum og snúðu fætinum.
Láttu efri fótlegginn lyftast upp og niður
varlega án þess að hann snerti neðri fót-
legginn.
Endurtaktu þetta tíu til fimmtán
sinnum. Passaðu að missa ekki stelling-
una. Skiptu svo um fót og endurtaktu.
! HEILSURÁÐ LEIKFIMI Á HVERJUM DEGIMargir kannast við það vandamál að koma leikfimitímanumekki fyrir í annasamri dagskrá. Gott ráð við því er að fara í leik-fimi árla morguns, áður en farið er í vinnu. Ef sú leið er farin er
tvennt sem hafa þarf að í huga: annars vegar að fara snemma
að sofa og hins vegar að standa strax á fætur um leið og klukk-
an hringir, vera búin/n að taka til leikfimisdótið og drífa sig af
stað. Samningaviðræður um að liggja í rúminu í fimm mínútur
í viðbót enda yfirleitt með því að ekkert verður úr.
Betri golfsveifla:
Sterkir lærvöðvar
eru lykillinn
Reykingamenn sem hætta að
reykja fyrir 35 ára aldur geta náð
sama heilbrigði og þeir sem aldrei
hafa reykt. Þetta er niðurstaða
nýrrar bandarískrar rannsóknar.
Það tekur samt tímann sinn að
jafna sig og í rannsókninni kom í
ljós að einungis þeir sem höfðu
ekki reykt í 15 ár eða meira höfðu
náð jafnöldrum sínum í heilbrigði
og hreysti.
Dr. Donald H. Taylor, prófessor
við Duke-háskóla í Norður-
Karólínu, sem stýrði rannsókn-
inni varar við að fólk taki niður-
stöðunum sem svo að það sé í lagi
að reykja til 35 ára aldurs.
„Vandamálið er að um leið og
maður byrjar að reykja þá verður
erfitt að hætta.“
Í skýrslunni segja Taylor og
félagi hans dr. Truls Ostbye að
margir einblíni aðeins á það að
reykingar drepi en gleymi að
hugsa um að þær hafa líka afar
slæm áhrif á árin sem maður lifir.
Í rannsókninni töluðu Taylor og
Ostbye við yfir 20.000 manns,
miðaldra og eldri. Þeir komust að
því að reykingarfólk missir fyrr
heilsu en þeir sem ekki reykja.
Þeir komust einnig að því að fólk
sem hafði hætt að reykja 15 árum
áður en rannsóknin var gerð, og
hafði hætt á aldrinum 35–45 voru
jafn heilbrigð og þeir sem aldrei
höfðu reykt. ■
Þeir sem reykja:
Nauðsynlegt að hætta
fyrir 35 ára aldur
Dreptu í fyrir 35 ára aldur segja fræðimennirnir. Það fylgir
sögunni að best sé auðvitað að byrja aldrei.
Ástralía:
Óléttar konur
halda í sér
Óléttar ástralskar konur flykkj-
ast nú til lækna sinna og biðja þá
um aðstoð við að fresta fæðingu
barna sinna. Ástralska ríkis-
stjórnin hefur nefnilega sam-
þykkt að hefja greiðslur á fæð-
ingarstyrk til nýbakaðra for-
eldra. Styrkurinn nemur um
200.000 íslenskum krónum. Gall-
inn er sá að greiðslur á þessum
styrk hefjast ekki fyrr en 1. júlí.
Konur sem eiga að fæða börn sín
í lok júní er mikið í mun að þau
komi ekki í heiminn fyrr en
nokkrum dögum síðar. Þær fá
nefnilega einungis tæpar 50.000
krónur.
Gagnrýnendur nýju greiðsl-
unnar segja hana aðeins vera
auma tilraun stjórnvalda til að
kaupa sér vinsældir. Hvert sem
markmiðið er þá hefur tekist vel
til – greiðslurnar eru mjög vin-
sælar.
Formaður félags ástralskra
kvensjúkdómalækna segir að svo
margar beiðnir frá konum hafi
borist að hann hafi farið fram á
það við áströlsk stjórnvöld að
flýta greiðslunum. Stjórnvöld
segja tímaskort hins vegar koma í
veg fyrir slíkt. ■
Ástralskar konur vilja ekki eiga börn
fyrr en eftir 1. júlí. Myndin tengist ekki
efni greinarinnar.
- mest lesna blað landsins
Á MIÐVIKUDÖGUM
sparnaður, hlutabréf, lífeyrir o.fl.
auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is