Fréttablaðið - 20.07.2004, Side 4

Fréttablaðið - 20.07.2004, Side 4
4 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR Deilur Palestínumanna um stjórn öryggismála halda áfram: Óvissa í heimastjórninni PALESTÍNA, AP Ekkert lát var í gær á deilum meðal Palestínumanna um stjórn öryggismála. Jasser Arafat, forseti Palestínu, neyddist til að bakka með skipan náfrænda síns í stöðu yfirmanns öryggissveita Palestínumanna og Ahmed Qureia, sem starfar enn sem forsætis- ráðherra þrátt fyrir afsögn sína, þrýsti á hann að flýta umbótum á öryggissveitum Palestínumanna. Moussa Arafat gegndi ekki lengi stöðu æðsta yfirmanns öryggis- sveitanna. Frændi hans, Jasser Arafat, vék honum úr starfi í gær og fékk fyrrum yfirmann öryggis- sveitanna til að snúa aftur, nokkrum dögum eftir að hafa beðið þann hinn sama að víkja. Abdel Razek Majaide verður því aftur yfirmaður Moussa Arafat en óljóst er hversu mikil völd hans verða. Óljóst var í gærkvöldi hvað verður um Ahmed Qureia forsætis- ráðherra. Hann sagðist í gær að afsögn sín stæði enn enda hefði hann engin formleg viðbrögð fengið við henni frá Jasser Arafat. Arafat hefur sagt að hann taki af- sögnina ekki gilda en talið er að Qureia vilji slíka yfirlýsingu skrif- lega auk þess að fá aukin völd. ■ Engin takmörk á eignarhaldi fjölmiðla Engin takmörk verða sett á eignarhald fjölmiðla og verða lögin sem forseti synjaði staðfestingar afturkölluð í breyttu frumvarpi ríkis- stjórnarinnar. Af þjóðaratkvæðagreiðslu verður því ekki. FJÖLMIÐLALÖG Þingmenn Sjálfstæð- isflokksins sem Fréttablaðið ræddi við sögðu að vonast væri til þess að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um afturköllun fjölmiðlalaganna yrði til þess að hægt væri að fara að ræða efnislega um málið er það yrði tekið upp að nýju. Allir væru sammála um að þörf væri á því að setja lög um fjölmiðla þótt spurn- ing væri um útfærslu á þeim. Tvö ákvæði munu standa eftir í breyttu fjölmiðlafrumvarpi sem kynnt verður ríkisstjórninni í dag. Annars vegar er varðar breytingu á skipan í útvarpsréttarnefnd og hins vegar að fella á brott fjöl- miðlalögin sem forseti synjaði staðfestingar 2. júní. Af þjóðar- atkvæðagreiðslu um fjölmiðla- lögin verður því ekki. Meirihluti allsherjarnefndar greiddi atkvæði gegn því að af- greiða frumvarp stjórnarand- stöðunnar um lög um þjóðarat- kvæðagreiðslu í gær. Að auki verður að finna í frumvarpinu ákvæði um gildistöku laganna. Öll ákvæði er takmarka eignar- hald á fjölmiðlafyrirtækjum hafa því verið tekin út. Engin lög verða sett um fjölmiðla að þessu sinni. Fjölmiðlanefndin mun taka til starfa að nýju í haust og munu fulltrúar stjórnarandstöðunnar einnig taka sæti í nefndinni. Stefnt er að því að ná þver- pólitískri sátt um hvaða lög eigi að setja um fjölmiðla. Í nýja fjölmiðlafrumvarpinu sem ríkisstjórnin lagði fram í júlíbyrjun er svohljóðandi ákvæði um skipun útvarpsréttarnefndar: „Menntamálaráðherra skipar þrjá menn í útvarpsréttarnefnd til fjögurra ára og jafnmarga til vara. Tveir skulu skipaðir sam- kvæmt tilnefningu Hæstaréttar en einn skipar ráðherra án til- nefningar og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt og skal varamaður formanns jafnframt vera varaformaður nefndarinnar. Nefndarmenn og varamenn þeirra skulu uppfylla starfsgengisskilyrði héraðs- dómara. Nefndinni er heimilt að kalla sér til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða aðila eftir því sem hún telur þörf á“. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins mun þetta ákvæði standa sem næst óbreytt í nýrri útgáfu frumvarpsins er kynnt verður í dag. sda@frettabladid.is Viðmiðunarverð lyfja: Málið enn reifað HEILBRIGÐISMÁL Viðræður standa yfir milli heilbrigðisráðuneytisins og Félags íslenskra stórkaup- manna hvort tekið verður upp við- miðunarverð lyfja um mánaðamót- in eður ei. Heilbrigðisráðherra frestaði sem kunnugt er gildistöku nýrrar reglugerðar um viðmiðun- arverð lyfja í dýrustu flokkunum en hún tekur gildi í byrjun næsta mánaðar að öllu óbreyttu. Kostn- aðarhlutdeild Tryggingastofnunar verður þannig bundin við ódýrasta lyfið í hverjum flokki fyrir sig en stofnuninni er ætlað að spara hundruð milljóna króna með þessari aðgerð. ■ STELPUSTRÁKAR Arnold Schwarzenegger, ríkis- stjóri í Kaliforníu, er búinn að fá sig fullsaddan á andstöðu demó- krata við fjárlagafrumvarp sitt. Hann sagði þá ekki geta risið upp gegn sérhagsmunahópum og upp- nefndi þá stelpustráka. Demó- kratar sögðu það til vitnis um kvenfyrirlitningu ríkisstjórans. NADER Á KJÖRSEÐILINN Mánuði eftir að óháði forseta- frambjóðandinn Ralph Nader gafst upp á því að safna undir- skriftum til að komast á kjör- seðilinn í Michigan var nær tvö- falt fleiri undirskriftum en þörf er á skilað inn. New York Times segir repúblikana standa að baki söfnuninni í von um að Nader taki atkvæði frá John Kerry. ■ 18 mánaða fangelsi: Dæmd fyrir kókaínsmygl DÓMSMÁL Tæplega þrítug kona frá Nígeríu var dæmd í Héraðsdómi Reykjaness í gær í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla tæp- lega hálfu kílói af kókaíni til landsins fyrir tæpum hálfum mánuði síðan. Um 330 grömm faldi konan innvortis en 155 grömm fundust við líkamsleit á konunni á Keflavíkurflugvelli. Refsing konunnar var miðuð við að hún hafi verið burðardýr þar sem í málinu liggur ekkert fyrir um að konan hafi ætlað að taka þátt í sölu kókaínsins en and- virði efnisins er um tuttugu millj- ónir króna. Konan játaði brot sín skýlaust en þetta er mest magn fíkniefna sem nokkur hefur verið tekinn með innvortis hér á landi. ■ ■ BANDARÍKIN Hefurðu áhyggjur af byggðaþróun á landsbyggðinni? Spurning dagsins í dag: Eiga Íslendingar að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 32,11% 67,89% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is GEORGE W. BUSH Skilgreindi Íran sem eitt af öxulveldum hins illa ásamt Írak og Norður-Kóreu. 11. september: Rannsaka þátt Írana WASHINGTON, AP „Við höldum áfram að skoða málið til að sjá hvort Íranar hafi verið viðráðnir þetta,“ sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti aðspurður um hugsanlega aðkomu íranskra stjórnvalda að hryðjuverkaárás- unum 11. september. Samkvæmt frétt tímaritsins Time skipaði Íransstjórn landamæravörðum að hleypa al- Kaída liðum athugasemdalaust inn í landið frá Afganistan auk þess sem embættismenn hafi ósk- að eftir samstarfi við al-Kaída. Íranar hafa neitað þessu. John McLaughlin, yfirmaður CIA, sagði að engin tengsl hefðu verið milli Írana og árásanna. Málið verður þó skoðað nánar. ■ Þriðjudagskvöldið 6. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Einars Gunnlaugssonar jarðfræðings. Jarðfræði Elliðaárdals er stórbrotin. Í dalnum má t.d. finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma, sjávarhjalla og merkileg setlög. Gangan hefst við Minjasafnið í Elliðaárdal kl. 19:30 og verður gengið í tvo klukkutíma. Jarðfræði Elliðaárdalsins Göngu- og fræðsluferð á vegum Orkuveitu Reykjavíkur www.or.is Fuglar í Elliðaárdal Þriðjudagskvöldið 20. júlí verður farin fuglaskoðunarferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Gunnars Hallgrímssonar fuglaskoðara. Mikill fjöldi fugl er í Elliðaárdal og fj lbreytileikinn miki l. Þátt- takendur eru hvattir til að taka með sé sjónauka. Gangan hefst kl. 19:30 við Minjas fnið í Elliða- árd l og stendur í rúma tvo tíma. Dæmdur fyrir smygl: Með kókaín í skónum FÍKNIEFNASMYGL Maður sem reyndi að smygla 50 grömmum af kóka- íni til landsins síðastliðinn föstu- dag var dæmdur í héraðsdómi Reykjaness í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í gær. Fíkniefnin fundust á mannin- um við hefðbundið eftirlit á Kefla- víkurflugvelli en hann hafði falið efnin í skónum sínum. Áætlað söluverðmæti efnanna er um 600 þúsund krónur. Maður játaði brot sitt skýlaust og hefur hann þegar hafið afplánun refsingar. ■ TIL STUÐNINGS ARAFAT Þúsundir mótmæltu Jasser og Moussa Arafat um helgina. Í gær gengu lögreglumenn til stuðnings Moussa. SAMKEPPNISMÁL „Við gerum athuga- semdir við framsetningu Heklu á nið- urstöðum árekstrarprófana í aug- lýsingum sínum,“ segir Helga Guð- rún Jónasdóttir, kynningarfulltrúi hjá B&L, en fyrirtækið hefur sent Sam- keppnisstofnun kvörtun vegna aug- lýsingaherferðar Heklu á nýjum Golf. Er bifreiðinni lýst sem þeirri ör- uggustu samkvæmt árekstarprófun- um Euro NCAP og telur Helga að þar sé ekki farið rétt með staðreyndir. „Í auglýsingunni er Golf kynntur sem öruggasti bíllinn í sínum flokki með alls tólf stjörnur. Okkar mat er það að óheimilt sé að leggja saman með þessum hætti útkomu úr þremur ólíkum prófunum eins og Hekla gerir.“ Helga segir að áhyggjur B&L varði misnotkun á þeim upplýsingum sem úr þessum virtu prófunum koma. „Ef hver og einn túlkar þessar próf- anir samkvæmt sínu eigin höfði hverfur trúverðugleiki þeirra eins og dögg fyrir sólu og það er fyrst og fremst það sem við viljum sporna gegn.“ Euro NCAP er samstarfsverkefni nokkurra Evrópuríkja auk bílgreina- sambanda og áhugamanna víða í Evrópu en þar fara fram ítarlegar prófanir á öryggisþáttum bifreiða. Hæsta einkunn vegna öryggis bif- reiðar eru fimm stjörnur og tekið fram á heimasíðu samtakanna að nið- urstöður skuli aðeins bera saman inn- an hvers flokks fyrir sig. ■ B&L sendir Samkeppnisstofnun kvörtun vegna Heklu: Saka forsvarsmenn Heklu um misvísandi auglýsingar RÉTT SKAL VERA RÉTT B&L hefur sent Samkeppnisstofnun kvörtun vegna auglýsinga Heklu. DAVÍÐ ODDSSON Forsætisráðherra mun í dag kynna ríkisstjórninni frumvarp þar sem ríkisstjórnin hverfur frá takmörkunum á eignarhaldi á fjölmiðlum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.