Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 24
FÓTBOLTI FH-ingar komust á topp Landsbankadeildarinnar í fyrsta sinn í sumar þegar þeir lögðu Fylkismenn, 1-0, í Kaplakrika í gærkvöld í uppgjöri toppliða deildarinnar. Þetta var jafnframt fyrsti sigur FH-inga á Fylki í deildinni í sex leikjum og fjórði leikurinn í röð sem Fylkis spilar án sigurs. Fylkismenn hófu leikinn af miklum krafti og Björgólfur Takefusa var hársbreidd frá því að koma þeim yfir tvívegis á fyrstu fjórum mínútum leiksins. Fyrst varði Daði Lárusson, mark- vörður FH, frá honum úr dauða- færi og síðan átti hann skot beint úr aukaspyrnu rétt yfir. Eftir snarpa byrjun fór allur kraftur úr leikmönnum liðanna og erfitt var að sjá að tvö af bestu lið- um landsins væru að etja kappi saman. Fylkismenn voru meira með boltann en þeim gekk illa að skapa sér færi. Að sama skapi áttu FH-ingar erfitt með að finna taktinn sóknarlega fyrsta hálf- tímann. Þeir fengu sitt fyrsta almenni- lega færi eftir 36 mínútur en þá skallaði Emil Hallfreðsson yfir úr góðu færi eftir fallega sendingu frá Heimi Guðjónssyni. Jónas Grani Garðarsson fékk síðan dauðafæri til að koma FH-ingum yfir á 40. mínútu en hann skaut beint í fang Bjarna Þórðar Hall- dórssonar, markvarðar Fylkis, af stuttu færi eftir góðan undirbún- ing Atla Viðars Björnssonar. Stað- an var því markalaus í hálfleik, hálfleik sem var tvískiptur því Fylkismenn réðu ferðinni fyrri hlutann í hálfleiknum en FH-ingar seinni hlutann. FH-ingar hófu seinni hálf- leikinn af miklum krafti og á 54. mínútu átti danski framherjinn Allan Borgvardt þrumuskot sem Bjarni Þórður Halldórsson varði vel. Hinn ungi og efnilegi Emil Hallfreðsson kom FH-ingum síð- an yfir á 63. mínútu með þrumu- skoti frá vítateig sem Bjarni í marki Fylkis réð ekki við. Þetta mark reyndist vera eina mark leiksins, FH-ingar réðu ferðinni mest allan síðari hálf- leikinn og þótt Fylkismenn hefðu pressað nokkuð undir lokin þá tókst þeim aldrei að ógna marki FH-inga að neinu ráði. ■ Við hrósum... ...Knattspyrnusambandi Íslands fyrir að hafa séð ljósið með hjálp Landsbankans og jafnað verðlaunafé í Landsbankadeild karla og kvenna. Fyrri áætlanir voru móðgun við konur almennt enda hafa þeir snúið frá villu vegar og í dag er allt jafnt. Jafnrétti kynjanna í sinni fögrustu og tærustu mynd. 16 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 17 18 19 20 21 22 23 Þriðjudagur JÚLÍ  61!& $.-2-7 !!!   !! * 5. 8    $  " *9:.     !!  8 61!& $ !!!     8       "   61 8   -;;-  !!!    LEIKIR GÆRDAGSINS HETJAN EMIL HALLFREÐSSON Sést hér í baráttu við Fylkismanninn Eyjólf Héðinsson en Emil skoraði sigurmark FH-inga í leiknum. Við mælum með... ...að KA, Fram og Grindavík, liðin sem skrapa botninn á Landsbankadeildinni í fótbolta fari til Englands og finni sér nokkra leik- menn úr unglingaliði Stoke. Tveir slíkir hafa í það minnsta komið Víkingum úr botnsætinu upp í miðja deild á mettíma og félagar þeirra gætu vafalaust híft hin liðin þrjú upp. 0–1 Ratka Zivkovic 74. BEST Á VELLINUM Ratka Zivkovic Fjölni TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 14–7 (4–5) Horn 4–4 Aukaspyrnur fengnar 9–10 Rangstöður 3–0 MJÖG GÓÐAR Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Stjörnunni Ratka Zivkovic Fjölni GÓÐIR Auður Skúladóttir Stjörnunni Jóna S. Jónsdóttir Stjörnunni Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni Anna Margrét Gunnarsdóttir Stjörnunni Anna Rún Sveinsdóttir Fjölni Edda María Birgisdóttir Fjölni Andrea Rowe Fjölni 0-1 STJARNAN FJÖLNIR 0–1 Erna Björk Sigurðardóttir 1. 0–2 Ólína Guðrún Viðarsdóttir 4. 0–3 Erla Hendriksdóttir 41. 0–4 Sandra Sif Magnúsdóttir 45. 0–5 Erla Hendriksdóttir 47. 0–6 Erla Björk Sigurðardóttir 62. 0–7 Erla Hendriksdóttir 83. 0–8 Erna Björk Sigurðardóttir 90. BEST Á VELLINUM Erla Hendriksdóttir Breiðabliki TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–14 (4–10) Horn 1–6 Aukaspyrnur fengnar 11–3 Rangstöður 0–5 MJÖG GÓÐAR Erla Hendriksdóttir Breiðabliki Erna Björk Sigurðardóttir Breiðabliki GÓÐIR Guðrún Soffía Viðarsdóttir Þór/KA/KS Hildur Sævarsdóttir Breiðablik Ólína G. Viðarsdóttir Breiðabliki 0-8 ÞÓR/KA/KS BREIÐABLIK Valur 9 8 1 0 32–4 25 ÍBV 9 6 2 1 47–7 20 KR 9 6 2 1 37–10 20 Breiðablik 9 4 0 5 19–23 12 Stjarnan 9 1 4 4 11–28 7 Þór/KA/KS 7 1 3 3 8–21 6 Fjölnir 9 1 1 7 4–20 4 FH 8 1 1 6 6–43 4 MARKAHÆSTAR Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 18 Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 12 Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 10 Olga Færseth, ÍBV 10 Guðlaug Jónsdóttir, KR 8 Elín Anna Steinarsdóttir, ÍBV 7 NÆSTU LEIKIR FH – Þór/KA/KS mán. 26. júlí 20.00 [ STAÐAN ] ■ ■ LEIKIR  19.15 Þróttur og Þór leika í 1. deild karla í fótbolta. ■ ■ SJÓNVARP  20.30 Fákar á Sýn. Þáttur um hesta og hestamenn.  20.15 Sterkasti maður heims á Sýn. Hrikaleg átök.  00.35 Suður Ameríku-bikarinn á Sýn. Bein útsending frá leik Argentínu og Kólumbíu í undan- úrslitum keppninnar. Drogba til Chelsea: Loksins klár FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Didier Drogba er loksins á leiðinni til enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea en hann hefur verið orð- aður við félagið í nokkurn tíma. Franska liðið Marseille sam- þykkti 24,5 milljóna punda tilboð Chelsea í kappann og kemur hann til Englands í dag til að ganga frá samningi við félagið og gangast undir læknisskoðun. Miklar vænt- ingar eru gerðar til kappans og sagðist Drogba, sem fer með Chelsea-liðinu til Bandaríkjanna á morgun, vonast til að standa und- ir væntingum en hans bíður hörð keppni um framherjastöðuna við Eið Smára Guðjohnsen, Adrian Mutu og Mateja Kezman. ■ DIDIER DROGBA Kominn til Chelsea fyrir 24,5 milljónir punda Emil skaut FH–ingum á toppinn Skoraði sigurmark sinna manna í toppuppgjörinu gegn Fylki í gær- kvöld og kom liðinu á toppinn í fyrsta sinn í sumar. Jafntefli staðreynd í leik Grindavíkur og ÍA í gær: Grétar og Grétar á skotskónum FÓTBOLTI Grindavík og ÍA skildu jöfn, 1-1, í leik liðanna í Lands- bankadeildinni í Grindavík í gær- kvöld. Grindvíkingar mættu til leiks í sínum fyrsta leik undir stjórn nýrra þjálfara og það má segja að breytingar hafi strax sést á leik liðsins. Sinisa Kekic, annar þjálfara liðsins, var kominn aftur í vörnina og við það styrktist varnarleikur- inn en að sama skapi veiktist sóknarleikurinn verulega við brotthvarf Kekic þaðan. Grind- víkingar eru enn í fallsæti en frammistaða þeirra í gærkvöld hlýtur að gefa þeim von um betri tíð. Leikurinn var jafn til að byrja með en ef eitthvað þá voru Skaga- menn sterkari aðilinn. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins sem Grétar Ólafur Hjartarson kom Grindvíkingum yfir á 22. mínútu úr vítaspyrnu eftir að Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna, hafði brotið á honum. Skagamenn létu markið ekki á sig fá og uppskáru jöfnunarmark á 58. mínútu þegar Grétar Rafn Steinsson skoraði eftir góðan undirbúning Stefáns Þórðarsonar. Eftir markið datt leikurinn niður en Grindvíkingar pressuðu síðustu tíu mínútur leiksins án þess að ná að tryggja sér sigurinn sem hefði gefið þeim þrjú dýr- mæt stig í botnbaráttunni. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.