Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 22
Átta ungmenni hafa ákveðið að setja upp verkið Dýrðlegt fjöldasjálfs- morð á nýja sviðinu í Borgarleik- húsinu. „Við höfðum öll verið í Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík en erum nú flest útskrif- uð og stofnuðum í sumar leikhópinn Landsleikur,“ segir Saga Sigurðar- dóttir, en Landsleikur er styrktur af Ungu fólki í Evrópu, Hinu húsinu, Menningarsjóði félagsmiðstöðva og Norræna húsinu. „Styrkirnir gerðu okkur kleift að gera leiklistina að sumarvinnu en í hópnum er að finna fólk sem stefnir á nám í leiklist, dansi og búningahönnun. Tvær okk- ar úr hópnum voru að dansa í Línu langsokk í Borgarleikhúsinu í vetur og þar kynntumst við leikaranum Bergi Þór Ingólfssyni sem við feng- um til liðs við okkur. Hann ætlar að leikstýra verkinu en svo fengum við vilyrði hjá Guðjóni Petersen Borg- arleikhússtjóra til að fá að sýna þetta á nýja sviðinu.“ Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð er eftir Arto Paasilinna. „Okkur fannst skáldsagan, sem er finnsk, svo skemmtileg að okkur langaði til að setja hana á svið. Það hefur verið gerð finnsk kvikmynd upp úr Dýrð- legu fjöldasjálfsmorði en verkið hefur ekki verið leikið áður á sviði svo við vitum til. Við brugðum því á það ráð að fá Ólaf Egil Egilsson til að skrifa leikgerð upp úr skáldsög- unni og höfum svo þróað hana áfram með leikstjóranum.“ Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð fjall- ar um tvo menn sem ætla að binda endi á líf sitt en ákveða að auglýsa eftir hóp af fólki sem er í sjálfs- morðshugleiðingum. „Þau ákveða að fyrirfara sér í sameiningu á sem stórkostlegastan hátt. Þegar ákvörðunin hefur verið tekin verða allir mjög uppveðraðir og fara að lifa fyrir þetta dýrðlega og drunga- lega markmið. Það sem heillaði okkur við Dýrðlegt fjöldasjálfs- morð er mótsögnin sem felst í því að vera orðin full af lífsgleði en ætla samt að drepa sig og segja má að verkið sjálft sé allt svona frekar grátbroslegt.“ Arto Paasilinna var gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík í fyrra og Dýrðlegt fjöldasjálfs- morð hefur verið ein vinsælasta bók síðari tíma í Finnlandi. Lands- leikur frumsýnir verkið 28. júlí í Borgarleikhúsinu og heldur svo þrjár sýningar á Nýja sviðinu 19., 20. og 22. ágúst. Verkið verður ein- nig sýnt á Akureyri, í Hveragerði og á Höfn í Hornafirði. ■ 14 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR EDMUND HILLARY Ævintýramaðurinn sem alla jafna er talinn fyrsti maðurinn til þess að komast upp á tind Everest- fjalls fæddist á þessum degi árið 1919. JARÐARFARIR 13.30 Björg Gunnlaugsdóttir, hjúkrun- arheimilinu Grund, áður til heimil- is í Melgerði 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju. 13.30. Rósa Þorsteinsdóttir frá Lang- holti, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 14.00 Guðrún Ingólfsdóttir verður jarðsungin frá Hafnarkirkju. ANDLÁT Karl Friðrik Karlsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Skeljatanga 3, lést 17. júlí. Að drepa sig fullur af lífsgleði Á þessum degi árið 1944 gerðu hátt- settir þýskir embættismenn tilraun til þess að ráða Adolf Hitler af dög- um. Sprengju var komið fyrir í fundarherbergi Hitlers en ekki tókst betur til en svo að foringinn slapp lifandi, að vísu særður og í nokkru uppnámi. Hann brást auð- vitað hinn versti við og nokkrir samsærismannanna voru teknir af lífi í snarhasti og hann gekk harka- lega fram gegn andstæðingum sín- um sem enduðu margir hverjir í fangelsum eða gröfinni. Morðtilræðið var neyðarúrræði samstarfsmanna Hitlers sem sáu fram á að hann væri að herða róð- urinn á tveimur vígstöðvum í fyrir- fram töpuðu stríði. Eina lausnin sem þeir sáu var valdarán í kjölfar morðsins á foringjanum. Claus von Stauffenberg, yfir- maður heraflans, var fenginn til þess að koma skjalatösku með sprengju í fundarherbergi Hitlers en þegar hann var að skoða kort af austurvígstöðvunum færði Heinz Brant ofursti töskuna fjær foringj- anum til þess að komast nær kortinu. Sprengjan sprakk síðan eins og ráð var fyrir gert og fjórir þeirra sem staddir voru í herberginu biðu bana. Hitler komst lífs af og var ekki verr á sig kominn en svo að hann tók á móti Benito Mussolini síðar um daginn og sýndi honum leifarnar af tilræðisherberginu. ■ ÞETTA GERÐIST BANATILRÆÐI VIÐ HITLER MISTEKST 20. júlí 1944 „Það klífur enginn fjöll í vísindaskyni. Vísindin eru notuð til þess að afla fjár fyrir leiðangrana en þú klifrar í raun og veru bara vegna ánægjunnar.“ - Edmund Hillary, afmælisbarn dagsins, fer ekki leynt með það að fjallaklifur er fyrst og fremst sport. TÍMAMÓT NÝSTOFNAÐ ÁHUGALEIKFÉLAG SETUR UPP VERKIÐ DÝRÐLEGT FJÖLDASJÁLFSMORÐ ADOLF HITLER Tilraun náinna samstarfsmanna hans til að koma honum fyrir kattarnef fór úrskeiðis þegar hann komst lífs af úr sprengju- tilræði. Þeir sem stóðu að baka tilræðinu þurftu vitaskuld ekki að kemba hærurnar. Ófeigum Hitler ekki í hel komið LANDSLEIKUR Leikfélag sem á rætur sínar að rekja til Herranætur setur upp Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð á nýja sviði Borgarleikhússins. Sævar Þór Sigurgeirsson, Unnur Magnúsdóttir Hafdís Sigurgeirsdóttir, Sigmundur Stefánsson Barnabörn og barnabarnabörn. Sérstakar þakkir til starfsfólks göngudeildar krabbameinslækninga á Landspítalanum, hjúkrunarfræðinga í Karítas og Líknardeild Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LÁRU INGU LÁRUSDÓTTUR Bergstaðastræti 28, Reykjavík verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík, miðvikudaginn 21. júlí og hefst athöfnin kl. 13:30. Karl R. Guðfinnsson, Geir Jón Karlsson, Heiða Björk, Karl Reynir, Andrea, Hafdís og systkyni hinnar látnu. Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og systir Hafdís Jónsdóttir Rauðalæk 36 Reykjavík Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, SNORRI RÖGNVALDSSON Kríuhólum 2, Reykjavík, sem lést 9. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. júlí kl. 10.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Guðni Þ. Snorrason, Inga Dröfn Jónsdóttir Guðný H. Jakobsdóttir, Guðjón Jóhannesson The Times tók á dögunum hús á Ólafi Jóhanni Ólafssyni í tilefni af útkomu bókar hans, Höll minning- anna, í Bretlandi. Bókin hefur fengið ágæta dóma hjá gagn- rýnendum þar í landi en áður hafa afbragðsdómar í bandarískum fjölmiðlum birst. Höll minning- anna kom út hér á landi fyrir jólin árið 2000 og hlaut góðar viðtökur. Blaðamaður The Times hitti Ólaf Jóhann fyrir í einum af skýja- kljúfum fjölmiðlarisans Time Warner í New York en rithöfund- urinn gegnir eins og kunnugt er varaforstjórastöðu hjá fyrir- tækinu. Það vakti eðlilega forvitni blaðamannsins að maður í þessari stöðu gefi einnig út skáldsögur. Í viðtalinu segir blaðamaðurinn einnig að augljóst sé skrifin eigi hug Ólafs allan og að viðskiptin séu aukabúgrein. Aðrir fjölmiðlar í Bretlandi hafa farið lofsamlegum orðum um bókina; má þar nefna blöð á borð við Independent og Daily Tele- graph. ■ ÓLAFUR JÓHANN Bók hans, Höll minninganna, hefur fengið frábærar viðtökur í Bretlandi. Viðskiptin aukabúgrein BÆKUR ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON ■ rithöfundur var í viðtali við The Times á dögunum. Blaðamanninum þótti athyglisvert að rithöfundurinn gegnir aðstoðarforstjórastöðu hjá fjölmiðlarisanum Time Warner samhliða skrifunum. Okkar ástkæra Kristborg Kristinsdóttir, Borgarbraut 12, Stykkishólmi Egill Egilsson, Kristinn Ólafur Smárason, Egill Egilsson, Þórhildur Magnúsdóttir, Kristinn Ólafur Jónsson, systkini og aðrir aðstandendur. lést miðvikudaginn 14. júlí á kvennadeild Landspítalans við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 24. júlí kl. 14:00. Þem sem vildu minnast hennar er bent á að láta kvennadeild Landspítalans njóta þess.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.