Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 6
6 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Nýtt símkerfi lögreglunnar:
Örðugleikar á fyrsta degi
LÖGREGLAN Byrjunarörðugleikar
settu strik í reikninginn þegar
lögreglan í Reykjavík tók nýtt
símkerfi í notkun í gær.
Nýja kerfið sameinar öll síma-
númer og símakerfi embættisins
í eitt kerfi sem hefur fengið
símanúmerið 444 1000. Lögregl-
an segir fjarskipti veigamikinn
hluta af daglegum rekstri lög-
reglunnar og að kröfurnar um
greið símasamskipti séu stöðugt
að aukast, ekki aðeins innan lög-
reglunnar, heldur einnig við
borgarana.
Vandkvæði gerðu þó vart við
sig. Þegar Fréttablaðið hafði
samband við lögregluna í gegn-
um hið nýja símanúmer hringdi
þrisvar út áður en það var svarað
og eitthvað var um að gefið væri
samband við röng innanhúss-
númer. Starfsmaður skiptiborðs
lögreglunnar sagði byrjunar-
vandræði hafa vissulega sett sitt
mark á daginn, erfitt væri oft að
ná sambandi við ný númer og þar
fram eftir götunum. Þetta olli þó
ekki miklum vandkvæðum fyrir
utan óþægindin að sögn starfs-
mannsins sem gerði ráð fyrir að
þetta myndi lagast fljótt.
Einar Karl Kristjánsson
lögreglufulltrúi segist ekki hafa
orðið var við nein vandkvæði
sem tæki að nefna. ■
Segir Samherja
beygja fiskveiðilög
Formaður sjómannasambandsins segir Samherja fara í kringum lög með
„gervikaupum“ á togara. Forstjóri Samherja vísar gagnrýni á bug og segir
hana ómálefnalega. Sjávarútvegsráðuneyti sér ekkert athugavert við kaupin.
SJÁVARÚTVEGUR Samherji hf. fer í
kringum fiskveiðistjórnunarlög-
in og tekur veiðiréttinn af
íslenskum sjómönnum, að sögn
formanns Sjómannasambands
Íslands.
Samherji hf. hefur fest kaup á
frystitogaranum Akrabergi frá
Framherja spf. í Færeyjum, sem
Samherji á þriðjungshlut í. Til-
gangur kaupanna er að nýta út-
hafskarfaheimildir sem Sam-
herja hefur verið úthlutað utan
lögsögu Íslands. Í kaupsamning-
um er ákvæði um skilarétt skips-
ins innan þriggja mánaða frá
undirritun. Áhöfnin telur 28
menn, færeyska og íslenska.
Samherji gerði samskonar kaup-
samning við Framherja í fyrra
og gengu kaupin til baka að
tveimur mánuðum liðnum og
mun eins vera með þessi kaup
farið.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands,
kallar þetta „gervikaup“ og seg-
ir Samherja hf. fara í kringum
íslensk fiskveiðistjórnunarlög.
„Það er óeðlilegt að eitt stærsta
útgerðarfyrirtæki landsins skuli
láta útlenda sjómenn veiða
íslenskar veiðiheimildir og taka
þannig veiðiréttinn af íslenskum
sjómönnum.“ Sævar segir ekki
vita hvort hægt sé að sporna við
þessu með lagabreytingu, en
segist höfða til stjórnenda Sam-
herja fyrst og fremst.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja hf., vísar
gagnrýni Sævars á bug og segir
hana ómálefnalega. „Samherji
hefur í gegnum árin verið með
fjölda íslenskra sjómanna á er-
lendum skipum. Það er því óráð-
legt af hálfu Sjómannasam-
bandsins að fara út í þessa um-
ræðu, því tekjur íslenskra sjó-
manna á erlendum skipum eru
miklu meiri en tekjur útlendra
sjómanna á íslenskum skipum.“
Vilhjálmur Egilsson hjá sjáv-
arútvegsráðuneytinu segist
ekkert athugavert sjá við kaup-
in. „Mönnum er frjálst að eiga
viðskipti með þau skip sem þeir
vilja, svo lengi sem þeir uppfylla
öll ákvæði íslenskra laga og það
er ekkert í íslenskum lögum sem
kveður á um lágmarkseignar-
hald á skipum.“ Vilhjálmur telur
ennfremur ekkert athugavert
við að erlendar áhafnir séu á ísl-
enskum skipum, það sé ekkert í
lögum sem banni það og áhöfnin
sé á íslenskum kjarasamningum.
bergsteinn@frettabladid.is
Landsbankadeild
karla og kvenna:
Verðlaunfé
verði jafnt
ÍÞRÓTTIR Knattspyrnusamband
Íslands hefur ákveðið, fyrir tilstu-
ðlan Landsbanka Íslands, að
hækka verðlaunafé í Landsbanka-
deild kvenna í eina milljón.
Félög sem sigra í karla- og
kvennaflokki fá því jafnháa upp-
hæð að launum. Þetta kemur fram
í frétt frá Landsbankanum og KSÍ.
Knattspyrnusambandið hafði
sætt töluverðri gagnrýni fyrir að
úthluta ekki jafnháu verðlaunafé
til sigurvegara í kvennaflokki og
karlaflokki.
Jafnréttisstofa sendi frá sér
tilkynningu í gær þar sem ákvörð-
un Knattspyrnusambandsins og
Landsbankans er fagnað. ■
■ ÍRAK
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70,96 -0,56%
Sterlingspund 132,77 0,24%
Dönsk króna 11,86 0,00%
Evra 88,18 0,02%
Gengisvísitala krónu 122,72 0,09%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 140
Velta 949 milljónir
ICEX-15 3.074 0,05%
Mestu viðskiptin
Actavis Group hf. 171.105
Landsbanki Íslands hf. 170.987
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 156.929
Mesta hækkun
Actavis Group hf. 2,15%
Opin Kerfi Group hf. 1,19%
Landsbanki Íslands hf. 1,16%
Mesta lækkun
Íslandsbanki hf. -2,22%
Kaldbakur, fjárfestingarfélag hf -1,43%
Bakkavör Group hf. -1,12%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.076,2 -0,6%
Nasdaq * 1.872,7 -0,6%
FTSE 4.321,1 -0,4%
DAX 3.812,6 -0,9%
NIKKEI 11.270,7 -1.5%
S&P * 1.098,1 -0,3%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
VEISTU SVARIÐ?
1Hvar fer ráðstefna Alþjóðahvalveiði-ráðsins fram?
2Hvaða togari fékk tundurdufl í trolliðum helgina?
3Yfir hvaða hæð stökk Þórey EddaElísdóttir um helgina er hún setti
Norðurlandamet í stangarstökki?
Svörin eru á bls. 22
FYRSTA SÍMTALIÐ
Lögregluþjónn hringir fyrsta símtalið í nýja
kerfinu. Starfsmenn lögreglunnar gera ráð
fyrir að það margbæti fjarskipti embættisins.
Verðbólgan:
Meiri hér en
í Evrópu
EFNAHAGSMÁL Hagstofa Íslands birti í
gær samræmda vísitölu neysluverðs
á Íslandi og í EES-ríkjunum. Verð-
bólga mælist nú 2,9 prósent á árs-
grundvelli á Íslandi en meðaltalið á
EES-svæðinu er 2,3 prósent.
Mest er verðbólgan í Slóvakíu, 8,1
prósent, og í Ungverjalandi, 7,5 pró-
sent. Í Finnlandi lækkar verðlag því
þar er nú 0,1 prósent verðhjöðnun.
Í Morgunkorni greiningardeildar
Íslandsbanka í gær kom fram að
þetta er í fyrsta sinn síðan í nóvemb-
er 2002 sem verðbólga mælist meiri
á Íslandi heldur en að meðaltali í
EES-ríkjunum. ■
BANVÆN MISTÖK Skemmdar-
verkamanni sem hugðist spreng-
ja gasflutningalínu mistókst ætl-
unarverk sitt og sprengdi sjálf-
an sig í loft upp fyrir mistök.
Sprengjan sprakk of snemma
með þeim afleiðingum að mað-
urinn lést en línan skaddaðist
ekki.
ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON
Segir Samherja gera mun meira fyrir
íslenska sjómenn en erlenda.
SÆVAR GUNNARSSON
Segir Samherja taka veiðiréttinn af
íslenskum sjómönnum.
Lýðheilsustöð:
Sögð á
villigötum
HEILBRIGÐISMÁL Árangursríkasta
vopnið í baráttunni gegn offitu er
fræðsla og þess vegna er Lýðheilsu-
stöð hvött til
samvinnu við
samtök auglýs-
enda sem búa
yfir þekkingu á
viðhorfum og
atferli almenn-
ings. Þetta kem-
ur fram í frétta-
tilkynningu frá
stjórn samtaka
auglýsenda þar
sem bent er á
að Lýðheilsustöð sé á villigötum
hvað varðar skattlagningu á sykur-
vörur. Fræðimenn hafi bent á að
enginn einn þáttur stuðli að offitu
heldur sé um samspil margra þátta
að ræða. Ekki sé vænlegt að ráðast
gegn einni tegund matvæla eins og
raunin virðist vera. ■
Stjórn samtaka aug-
lýsenda óskar eftir
samvinnu við Lýð-
heilsustofnun.