Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 10
20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
WASHINGTON, AP Rannsókn á mál-
efnum orkufyrirtækisins Enron
hefur leitt í ljós umfangsmikil
tengsl félagsins við bandaríska
Repúblikanaflokkinn. Í tölvu-
póstum á milli stjórnenda fyrir-
tækisins sem birtir hafa verið er
á opinskáan hætt rætt um hvern-
ig fjárframlög til stjórnmála-
manna geti skilað mestum ávinn-
ingi.
Stjórnmálaskýrendur í Banda-
ríkjunum, og hópar sem láta sig
gagnsæi í stjórnmálum varða,
hafa sagt að gögnin í Enron-
málinu lyfti hulunni af því sem í
raun gerist í samskiptum stjórn-
málamanna og stjórfyrirtækja.
Tom Delay, þingmaður frá
Texas og einn af leiðtogum repú-
blikana í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings, hefur verið formlega
ásakaður um að hafa látið fjár-
stuðning orkufyrirtækisins ráða
málatilbúnaði sínum á þingi.
Að sögn Tom Fitton, formann
stofnunar sem fylgist með fjár-
öflun bandarískra stjórnmála-
flokka, gefa tölvupóstssamskipti
forráðamanna Enron til kynna
hvað búi að baki stuðningi fyrir-
tækja við flokkana; bæði demó-
krata og repúblikana. ■
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
6.100kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.400kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.300 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
21. til 27. júlí
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
3.500kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
GRÍMSEYJAR
3.500 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
53
53
07
/2
00
4
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
Rannsókn á Enron leiðir margt í ljós:
Mikil tengsl fyrirtækja
og stjórnmálaflokka
TOM DELAY
Einn áhrifamesti þingmaður Repúblikana-
flokksins í Bandaríkjunum er ásakaður um
að hafa átt óeðlileg samskipti við stór-
fyrirtæki sem studdu framboð hans með
fjárframlögum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
MÓTMÆLI Þrjátíu manna baráttu-
hópur Náttúruvaktarinnar mót-
mælti náttúruspjöllum vegna virk-
virkjanaframkvæmda að Kára-
hnjúkum á degi hálendisins í gær.
Fánum lýðveldisins var flaggað í
hálfa á fánastöngum stjórnstöðvar
Landsvirkjunar, kveikt var á
neyðarblysum og erindi flutt.
Elísabet Jökulsdóttir, einn tals-
manna hópsins, segir mótmælin
árleg þar til hægt verði að draga
fánann að húni. „Ef þeir hættu
núna þá yrðu minni spjöll heldur
en ef verkið væri klárað,“ segir
Elísabet. Í ræðu sinni á mótmæla-
fundinum sagði Elísabet frá því að
Vestfirðingar litu á bjartsýni sem
sína auðlind. Þeir kysu ekki stór-
iðjulausn ríkisstjórnarinnar. „Svo-
kölluð auðlind stjórnvalda og
Landsvirkjunar er hins vegar
dimm og uppurin kolanáma þar
sem aðeins er hægt að grafa upp
skammsýni. Þar er auðvitað ekki
hægt að ganga uppréttur.“
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, mótmælti notkun
Náttúruvaktarinnar á fánastöng-
um Landsvirkjunar. Hann sagði
Landsvirkjun starfa samkvæmt ís-
lenskum lögum sem þjóðkjörið Al-
þingi hefði samþykkt. „Okkur
hefur verið fullkomlega ljóst að
það hafa verið deildar skoðanir um
það sem við höfum verið að gera.
Við höfum lagt áherslu á það að
við þurfum að nýta okkar lands-
gæði til þess að halda uppi þeim
lífskjörum sem við viljum að séu
hér á landi. Þeim lífskjörum sem
við sjáum hjá öðru fólki í öðrum
löndum.“
Katrín Jakobsdóttir, vara-
formaður Vinstri hreyfingarinnar-
græns framboðs og varaborgar-
fulltrúi, tók þátt í mótmælunum.
Hún segir Kárahnjúkavirkjun til
háborinnar skammar fyrir þjóðina.
„Við viljum minna á það að mót-
mælin eru ekki bara út af þessum
framkvæmdum heldur líka út af
þeim afleiðingum sem mótmæli
landvarða höfðu fyrir ári sem og
öllu vinnulaginu við þetta.“
gag@frettabladid.is
Flögguðu í hálfa
á fánastöngum
Landsvirkjunar
Um þrjátíu manns mótmæltu náttúruspjöllum vegna virkjunar-
framkvæmda við stjórnstöð Landsvirkjunar á degi hálendisins.
Fólkið er ósátt við vinnubrögð stjórnvalda. Það segir auðlind
stjórnvalda dimma og uppurna kolanámu.
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
„Það er eins og við þurfum nýtt tungumál
til að á okkur sé hlustað því að stjórnvöld
og Landsvirkjun eru hætt að skilja ísl-
ensku. Þau eru hætt að búa á Íslandi. Svo
hvaða mál eigum við að tala? Kannski eig-
um við að tala eins og landið sem segir:
stjúpp opp aaa baaa hisss,“ sagði Elísabet.
FRIÐRIK SOPHUSSON
Hlýddi á erindi og tók við fánum í hálfa
stöng ásamt gjafabréfi frá mótmælendum.
SÓLRÚN SUMARLIÐADÓTTIR
Kom á svæðið til sýna samhug. Hún er
ekki sátt við framkvæmdir við Kárahnjúka.
„Nei, engan veginn. Mér finnst þetta
hræðilegt hneyksli og ótrúlegt að þetta sé
að ganga í gegn.“ Helst vildi hún sjá fram-
kvæmdirnar stöðvaðar þó þær séu komnar
þetta langt. „Maður bara vonar það besta.“
SÓLVEIG SIGFÚSDÓTTIR
„Ég er að mótmæla þessari eyðileggingu
á landinu. Það er verið að sökkva þarna
gróðurlandi. Ég er nýbúin að ganga um
þetta gróðurlendi.“ Sólveig segir að það
land sem eigi að friða sé alls ekki
nægilega stórt svæði.
HJALTI HUGASON
„Mér finnst framtíðarsýn íslenskra
stjórnvalda alltof takmörkuð. Það er
einungis gert út á stjóriðjuframkvæmdir
og til þess þurfum við þessar stóru
virkjanir sem eru óþarfar ef við gerðum
út á meiri þekkingariðnað.“