Fréttablaðið - 20.07.2004, Síða 13
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 108 stk.
Keypt & selt 20 stk.
Þjónusta 35 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 9 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 21 stk.
Atvinna 11 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Sojavörur eru hollar
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 20. júlí,
202. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.57 13.34 23.09
Akureyri 3.17 13.19 23.18
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Ég var sko aldrei í neinum íþróttum þegar
ég var lítil. Ég var alveg ömurleg í svo-
leiðis. Ég var svona frekar lítil eitthvað
þannig að ég var alltaf kleina í öllum leikj-
um. Ég var eiginlega vonlaus í íþróttum,“
segir María Heba Þorkelsdóttir leikkona.
„Ég var nú reyndar í dansi frá tíu ára
aldri og uppúr og það er svona mín hreyf-
ing. Ég er náttúrulega að dansa í Fame núna
og dansaði eitthvað í Leiklistarskólanum
þegar ég var þar þannig að ég hef haldið
þessu við. Síðan hef ég farið á námskeið í
dansskólanum hennar Birnu Björnsdóttur.
Þar hef ég farið á námskeið fyrir fullorðna.
Þau eru fyrir fólk sem er orðið aðeins of
gamalt og kannski kann ekkert voðalega
mikið en ég hef skemmt mér mjög vel á
þeim,“ segir María.
„Síðan fór ég í flamengó-dansnámskeið í
Kramhúsinu einu sinni og það var rosalega
gaman. Ég lét sauma á mig flamengó-kjól
sem er nú frekar látlaus og síðan keypti ég
mér mjög fallega flamengó-skó,“ segir
María Heba sem var aldeilis bitin í rass-
gatið af flamengó-bakteríunni. „Það er nú
alltaf á áætluninni minni að fara á flam-
engó-námskeið á Spáni. Það gerist samt
ekki í sumar en kannski næsta sumar. Ég er
of upptekin núna í að sýna í Fame og í öðr-
um málum. Ég hef lært Sevillana-dansa í
flamengó en auðvitað eru til milljón
tegundir,“ segir María Heba en spurning er
hvaða dans verður fyrir valinu þegar hún
ákveður að leggja land undir fót og ná
tengslum við sígaunablóðið í sér.
lilja@frettabladid.is
Var vonlaus í íþróttum:
Fann sig í dansinum
heilsa@frettabladid.is
Þyngdaraukning er áhyggju-
efni nýbakaðra mæðra sam-
kvæmt nýrri könnun í Bretlandi
og forgangsverk að grennast
eftir meðgöngu.
80% þeirra kvenna
sem tóku þátt í
könnuninni kenndu
stjörnunum um, sem
virðast ekkert þurfa
að hafa fyrir því að
ná fyrra útliti eftir
barneignir. Victoria
Beckham, Liz Hurley
og Madonna voru
meðal þeirra sem
nefndar voru. Margar
mæðranna óttuðust það mest
að ná aldrei að verða eins og
þær voru fyrir þungunina.
Börn sem horfa mikið á
sjónvarp eru líkleg til að þjást af
offitu á fullorðinsárunum. Þau
eru líka líklegri til að reykja og
greinast með of hátt kólesteról.
Þetta kemur fram í nýlegri rann-
sókn sem vísindamenn á Nýja
Sjálandi gerðu á 1000 börnum
fæddum 1972 og 1973. Vísinda-
mennirnir fylgdust með börnun-
um frá þriggja ára aldri og upp í
26 ára. Þau börn sem horfðu á
sjónvarp meira en tvo tíma á
dag þjáðust af offitu, voru farin
að reykja og voru almennt í lé-
legu formi. Vísindamennirnir
vara foreldra við að leyfa börn-
um sínum ótakmarkaðan að-
gang að sjónvarpinu og mæla
með að börn séu hvött til að
útileikja.
Yfirlæknir átröskunardeildar
danska ríkissjúkrahússins varar
konur sem glíma við átröskun-
arsjúkdóma við þeim hættum
sem ógna börnum
þeirra en í Dan-
mörku hefur færst í
vöxt að konur með
slíka sjúkdóma
eignist börn, segir
á danska frétta-
vefnum Politiken.
„Þegar konurnar
skynja ekki sjálfar
hvenær þær ættu
að nærast kemur
af sjálfu sér að það
sama á við um börnin þeirra,
mæðurnar eiga það til að fá
samviskubit yfir því að næra
börnin, sem þá verða of létt eða
þær gera sér ekki grein fyrir því
hversu oft þurfi að næra börn-
in,“ segir Marianne Hertz, yfir-
læknir deildarinnar. Á deildina
sækja sífellt fleiri þungaðar kon-
ur og nýbakaðar mæður, sem
þjást af anorexíu og öðrum
alvarlegum átröskunarsjúk-
dómum.
B-3-vítamín sem finnst í fjöl-
mörgum algengum fæðuteg-
undum getur hugsanlega vernd-
að heilann fyrir alzheimer-sjúk-
dómnum, segja vísindamenn.
Þetta kemur fram á vefsíðunni
doktor.is. Hópur sérfræðinga hjá
Chicago Institute for Healthy
Aging, komst að því að níasín,
eða B-3-vítamín, getur verndað
heilann fyrir sjúkdómnum en
einnig er talið að vítamínið
minnki líkur á fleiri tegundum
heilasjúkdóma sem hrjá aldr-
aða. B-3-vítamín er í mjólkur-
afurðum, hvítu kjöti, fiski, hnet-
um, eggjum og mögru kjöti.
Hópurinn, sem birti niðurstöður
sínar í Journal of Neurosurgery
and Psychiatry, segir að þær
geti hjálpað við að stöðva
þróun alzheimer.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í HEILSU
Vantar þig bát, mótor, mæla, lúgur, fest-
ingar, öryggisbúnað eða annað tengt
bátum? Bátaland ehf., Óseyrarbraut
Hafnarfirði, S. 565 2680, www.
bataland.is
Ýmsar tegundir fótstiginna dráttarvéla,
einnig úrval af allskonar búleikföngum.
Vélar og þjónusta. Reykjavík, sími 5
800 200. Akureyri, sími 461 4040.
„Erum búnir að fá hin geysivinsælu
garðhúsgögn aftur”. Viðarkó Dalvegi 28,
Kópavogi. Sími 517 8509.
Dú
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
þú færð líka allt sem
þig vantar á
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Veður getur haft afgerandi
áhrif á höfuðverk og komið
af stað mígreniköstum, eru
niðurstöður rannsókna sem
birtar eru í nýjasta hefti
tímaritsins Headache. Vís-
indamenn fundu út að veður
hafði áhrif á höfuðverkjaköst
í helmingi þeirra tilfella sem
rannsökuð voru. Flestir þátt-
takendur í rannsókninni
reyndust ofurviðkvæmir
fyrir hitastigi og raka, meðan
aðrir brugðust við breyttum
loftþrýstingi. Vísindamenn-
irnir telja að veðurspár geti í
framtíðinni hjálpað fólki til
að bregðast tímanlega við
höfuðverkjaköstum og ekki
síst hjálpað mígrenisjúkling-
um í baráttunni við sjúkdóm-
inn. „Veðrið getur allt eins og
kaffi og breytingar á svefni
haft áhrif á mígrenisjúk-
linga,“ segir í tímaritinu.
62% þeirra sem tóku þátt
töldu að veðrið hefði áhrif á
verkjaköstin. Það kom þó í
ljós að einungis 51% var
raunverulega viðkvæmt
fyrir veðrinu. Aldur og kyn
virtust ekki skipta neinu máli
fyrir niðurstöðurnar. ■
Nýjar rannsóknir:
Veður hefur áhrif á mígreni
María Heba Þorkelsdóttir heillaðist af flamengó
og langar til Spánar til að læra meira.