Fréttablaðið - 20.07.2004, Síða 15
3ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2004
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
Enginn vafi leikur á því að minnið er
okkur afar dýrmætt enda er það er hluti
af því hver við erum og okkur nauðsyn-
legt til að lifa eðlilegu lífi. Án þess er
enginn heill maður. Eðlilegt er með aldr-
inum að minnið fari að klikka og er
áberandi minnisleysi oft merki um öldr-
un. Minnisleysi getur samt sem áður
herjað á fólk á öllum aldri en í mis-
miklum mæli. Allir verða fyrir því að
gleyma hlutum og sumir eru þekktir fyrir
að vera utan við sig og muna ekki neitt.
Smávægilegt minnisleysi þarf hinsvegar
ekki að vera neitt áhyggjuefni enda get-
ur það stafað af þeirri einföldu ástæðu
að hugurinn dvelur við mikilvæg úr-
lausnarefni og í þeim efnum er oft talað
um fólk sem algera prófessora.
Þrátt fyrir að ellin sé alræmd fyrir að
ræna fólk minninu þá er hægt að skjóta
henni ref fyrir rass með því að halda
minninu og sjálfum sér í góðri þjálfun.
Líkamlegt heilbrigði skiptir öllu máli.
Helst eru það sjúkdómar eins og
alzheimer eða vandamál eins og svefn-
leysi, of hár blóðþrýstingur eða fall á
estrógenmagni líkamans sem geta haft
áhrif á minnið.
Vert er að fylgja eftirtöldum ráðum til að
viðhalda minninu og efla.
Stundaðu líkamsrækt. Líkamlegt heil-
brigði og andlegt heilbrigði haldast í
hendur.
Gefðu heilanum verkefni. Lestu bækur,
lærðu nýja hluti, leystu þrautir eða hvað
sem er sem heldur huganum sterkum.
Mundu hann er eins og vöðvi, því sterk-
ari því öflugri.
Lærðu utan að. Veldu uppáhaldsljóðið
þitt eða texta og lærðu hann utan að.
Farðu með textann reglulega í huganum.
Ekki reykja. Rannsóknir hafa sýnt að
reykingafólk gleyma andlitum og nöfn-
um hraðar en þeir sem reykja ekki.
Borðaðu vel. Með því að huga vel að
mataræðinu heldurðu heilsunni lengur
og getur komið í veg fyrir að fá sjúk-
dóma sem hafa slæm áhrif á minnið.
Fáðu nægan svefn. Reyndu að ná alla
vega átta tíma svefni á nóttu svo heilinn
fái nægan tíma til að vinna úr því sem
hann lærði yfir daginn.
Rifjaðu upp. Eftir að hafa horft á bíó-
mynd eða lesið bók skaltu rifja upp
söguþráðinn í huganum.
Treystu á sjálfan þig. Lærðu að muna
hluti eins og símanúmer, heimilisföng
og nöfn í stað þess að treysta bara á
minnið í símanum. Auðveldasta leiðin er
ekki alltaf sú besta.
kristineva@frettabladid.is
Minni:
Að muna betur
Gott er að byggja upp minni frá unga aldri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Heimspekingurinn Nietzsche
vildi meina að enginn yrði al-
gjörlega fullorðinn fyrr en
hann axlaði fullkomna ábyrgð
á eigin lífi. Fleiri hafa stutt
þessa yfirlýsingu með orðum
sínum og ritum. Heimspeking-
urinn þýski var hvorki fyrstur
né síðastur til þess að koma
henni á framfæri. En hvað felst
í því að axla fulla ábyrgð á eig-
in lífi? Hvað er það sem við
getum raunverulega ráðið
yfir? Á minni stuttu en við-
burðaríku ævi hef ég komist að
því að ábyrgir einstaklingar
axla fullkomna ábyrgð á því
sem þeir hugsa, segja og gera.
Þeir gera sér grein fyrir því að
þeir geta ekki borið ábyrgð á
öðrum nema að litlu leyti.
Barnauppeldi snýst meira að
segja um að stjórna sjálfum
sér frekar en börnunum vegna
þess að börn læra það sem fyr-
ir þeim er haft. Margir eru á sí-
felldum flótta með því að
skjóta ábyrgðinni yfir á for-
eldra, maka, börn, vinnuveit-
endur, stjórnmálamenn, lög-
regluyfirvöld og svo má lengi
telja. Ég ræði þetta oft við einn
félaga minn í lögreglunni í
Reykjavík og hann segir það
nánast undantekningarlaust
vera viðhorf síbrotamanna að
þeir beri ekki ábyrgð á eigin
gjörðum. Það er löggunni að
kenna þegar þeir náist! Hvert
er þitt viðhorf til ábyrgðar?
Axlar þú ábyrgð á öllu sem þú
hugsar, segir og gerir? ■
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
HEILSU LÍKAMA OG SÁLAR.
Að axla ábyrgð á sjálfum sér
gbergmann@gbergmann.is.
CHROM
dregur úr
sykurlöngun
og jafnar
blóðsykurinn
FÆST Í APÓTEKUM,
FJARÐARKAUP
OG HAGKAUP.
HEILSURÁÐ
Þó að það sé freistandi að leggjast í maraþonsólböð
þegar sólin loksins skín er varúðar þörf þegar sólin er
annars vegar. Geislar sólarinnar eru sterkastir milli klukk-
an 11 og 14 á daginn og fyrir þá sem eru óvanir sólinni
er mikilvægt að bera á sig vel af sterkri sólarvörn og vera
í ekki sólbaði lengur en 20–30 mínútur á dag. Tímann má svo smám saman
lengja en athugið að hægt er að brenna þó að ský sé fyrir sólu því 30–50%
útfjólublárra geisla sólar ná í gegnum skýin.
[ DANSKIR UNGLINGAR ]
Lifa ekki villtu kynlífi
Dönsk ungmenni eru alls ekki eins villt
og fjölmiðlar og fullorðið fólk hefur talið
– þegar kemur að kynlífi að minnsta
kosti. Ný rannsókn sýnir að fóstureyðing-
um hefur fækkað mjög undanfarið ár,
sem ber að mati sérfræðinga vott um að
kynlífið er ábyrgðarfyllra. Rannsóknin
sýnir einnig að unglingar byrja að meðal-
tali ekki að stunda kynlíf fyrr en um 17
ára aldur, sem er svipað og undanfarna
áratugi. Svæsnari kynlífsiðnaður og fá-
klæddar poppstjörnur hafa því ekki haft
þau áhrif í Danmörku að krakkar fari fyrr
að sofa hjá en áður. Charlotte Wilken-
Jensen læknir segir í samtali við
Berlingske tidene að sú ímynd að dansk-
ir unglingar séu óábyrgir sé algjörlega úr
lausu lofti gripin. „Langflestir unglingar
bíða með að stunda kynlíf þangað til þeir
eru alveg tilbúnir til þess og þeir gæta
þess að verða ekki þungaðir,“ segir
Charlotte sem bendir á að framúr-
skarandi kynlífsfræðsla í dönskum
skólum hafi sitt að segja.
1912 danskar stúlkur 19 ára og yngri fóru
í fóstureyðingu árið 2002 en 4.272 árið
1980. Það ár eignuðust líka mun fleiri
unglingsstúlkur börn eða 3.147. Árið
2002 hafði unglingsmæðrum fækkað í
854.
!