Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 19
7 TILKYNNINGARATVINNA Auglýsing um inntöku nýnema í Lögregluskóla ríkisins 2005 Ákveðið hefur verið að taka inn a.m.k. 20 nýnema í almennt lögreglunám í Lögregluskóla ríkisins árið 2005. Námið hefst í byrjun janúar og lýkur með lokaprófum um miðjan desember. UM NÁMIÐ: Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun sem starfar samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um Lögregluskóla ríkisins nr. 490/1997. Grunnnám miðar að því að veita haldgóða fræðslu í almennu lögreglustarfi. Námið skiptist í þrjár annir. Skólagjöld eru engin. Fyrsta önnin (GD I), sem er ekki launuð en lánshæf námsönn, sten- dur fram í maímánuð. Nemarnir teljast ekki til lögreglumanna en þeir sem standast kröfur á önninni fara í launaða starfsþjálfun (GD II) í lögregluliði á höfuðborgarsvæðinu í fjóra mánuði. Að lokinni starfsþjálfuninni tekur við launuð þriðja önn (GD III) í Lögregluskólanum sem lýkur með lokaprófum um miðjan desember. Lögreglunemar klæðast búningi almennra lögreglumanna, sem þeir fá án endurgjalds. Á fyrstu námsönn er búningurinn án lögreglueinkenna. Lögreglunemar í starfsþjálfun (GD II) stunda vaktavinnu og þá og einnig á þriðju námsönn í skólanum (GD III) teljast þeir til lögreglumanna og fá greidd laun skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármálaráðherra. ALMENN SKILYRÐI: Sérstök valnefnd velur nema í Lögregluskólann úr hópi umsækjenda. Henni ber að velja hæfustu umsækjendurna til náms og eru ákvarðanir hennar endanlegar. Í samræmi við það sem fyrir er mælt í lögreglulögum þarf umsækjandi að uppfylla eftirtalin skilyrði: a) vera íslenskur ríkisborgari, 20-35 ára. Valnefnd getur vikið frá aldurshámarkinu við sérstakar aðstæður, b) ekki hafa gerst brotlegur við refsilög. Valnefndin getur þó vikið frá þessu ef til álita kemur smávægilegt brot sem umsækjandi kann að hafa framið eða ef langt er um liðið frá því að það var framið, c) vera andlega og líkamlega heilbrigður. Umsækjandi þarf að staðfesta það með vottorði læknis síns. Trúnaðarlæknir skólans leggur sjálfstætt mat á vottorðið og skilar valnefnd áliti sínu, d) hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms, e) hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli auk ensku eða þýsku, f) hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs, g) vera syndur, h) standast inntökupróf í íslensku og þreki og önnur próf sem valnefnd ákveður, s.s persónuleikapróf eða sálfræðipróf. SÉRSTÖK SKILYRÐI i) Auk ofangreindra almennra hæfisskilyrða, sem mælt er fyrir um í lögreglulögum hefur valnefndin sett fram ákveðin viðmið til að starfa eftir og birtast þau í sérstökum verklags- og vinnureglum sem nefndin styðst við til að tryggja að samræmis gæti við mat á hæfi umsækjenda en markmið nefndarinnar, samkvæmt lögreglulögum, er að velja til náms þá sem hún telur vera hæfasta. SKIL UMSÓKNA OG ÚRVINNSLA: Þeir sem uppfylla framangreind skilyrði og ætla að sækja um skólavist við Lögregluskólann, fyrir skólaárið 2005, skulu skila rétt útfylltum umsóknareyðublöðum ásamt staðfestum afritum af gögnum frá menntastofnun um að þeir hafi lokið tilskildu framhaldsnámi. Umsóknargögnum, sem verður ekki skilað aftur, skal komið til valnefndar Lögregluskólans fyrir 1. ágúst 2004, merkt: Valnefnd Lögregluskóla ríkisins Krókhálsi 5b 110 Reykjavík. Læknisvottorð (sérstakt form) verða afhent þegar viðtal við umsækjendur fer fram. Ekki dugar að skila öðrum vottorðum. Sérstaklega skal tekið fram að ekki er hægt að senda umsóknir vélrænt enda verða staðfest afrit skólaskírteina að fylgja. Reynt verður að svara öllum umsóknum fyrir 20. ágúst. Konur sem uppfylla skilyrðin, og áhuga hafa á lögreglunámi, eru sérstaklega hvattar til að sækja um inngöngu í skólann. Þegar umsóknir liggja fyrir fer valnefndin yfir þær. Þeir umsækjendur sem taldir eru hæfir, samkvæmt umsókn og skila nauðsynlegum fylgiskjölum, verða boðaðir í inntökupróf sem fara fram í Lögregluskólanum dagana 30. ágúst – 3. september. Sjúkrapróf verður aðeins haldið einu sinni og fer fram 13. september. Skilyrði fyrir að mega þreyta það próf er að umsækjandi skili sérstöku læknisvottorði. Öðrum gefst ekki kostur á að þreyta sjúkraprófið. Þeir umsækjendur sem standast inntökupróf verða, að þeim loknum, boðaðir í viðtal við valnefnd. Viðtölin fara fram í skólanum frá 27. september til og með 1. október 2004. Stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir í fyrrihluta október. Nánari upplýsingar um námið, inntökuprófin, umsóknareyðublöð og handbók valnefndar, er hægt að nál- gast á lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir Lögregluskóli ríkisins / inntaka nýnema. Reykjavík 8. júní 2004 RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN                                             !    !"#     $ !   !! %   !&    '         !    !!  !&   !              !" !! !$ ! ( !! !"  !  ! ! )                 !"#   $    %&#      $'(      )   )   * ) +  $ * )   , '-      ()  ./0   '   1    1   $2  '3$      * 4&& ' (  & !       *              5 1   ' 67                        $   $              6                     $ '7                                       $  * !! !   8         *             '9              ') * *   9  $  :+.;<=   >   6   $  +   !   )                   $  ?&6%&$                     $ '(          $ '@ $   , !  & !  )       $AB&&64CB4%'(         $4!B&&6??B!&$$  6 6  '@        '2          '(   D $       -.-/000'   )  !     . 1 2003 4!"  5 Aðstoðarforstöðumaður í félagsmiðstöð. Félagsmiðstöðin Ból, Mosfellsbæ, leitar eftir umsóknum í stöðu aðstoðarforstöðumanns vegna ársleyfis núverandi starfsmanns. Hæfniskröfur: Uppeldismenntun og/eða, reynsla af starfi með ungu fólki, Starfið gerir miklar kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, töku ákvarðana og skipulagningu. Frumkvæði er því mikilvægt. Umsækjandi þarf að geta hafið vinnu sem allra fyrst. Laun greidd skv. kjarasamningum Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Launanefndar Mosfellsbæjar. Umsóknum má skila í Þjónustuver Mosfells- bæjar, 1.hæð. Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig er hægt að senda inn umsóknir á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Helgadóttir aðstoðarforstöðumaður í síma 566 6058 á milli 10:00 - 12:00 einnig er hægt að senda fyrirspurnir á e-mail bolid@mos.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.