Fréttablaðið - 20.07.2004, Side 21
Í grein sem Ottó Sverrisson skrifar
í blaðið þann 14. júlí sl. kemur fram
að ekki sé tekið á máli þeirra barna
sem ekki njóta nægilegrar sam-
vista við báða foreldra. Ég tek heils
hugar undir skrif Ottós og undra
það að ekki skuli koma víðtækari
þrýstingur frá þjóðfélaginu, börn-
um til hjálpar. Hér er að sjálfsögðu
átt við þegar báðir aðilar eru hæfir
til að hugsa um börn sín.
Á þingi Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja var fyrir sjö árum
samþykkt ályktun um forsjár- og
umgengismál og hefur tvívegis
verið hnykkt á henni. Ályktunin
sem samþykkt var á 40. þingi
bandalagsins árið 2003 hljóðar svo:
„Fertugasta þing BSRB hvetur
yfirvöld til þess að hraða af-
greiðslu í forsjár- og umgengnis-
réttarmálum og hafa ætíð hags-
muni barnanna í fyrirrúmi. Börn-
um skal tryggður réttur sam-
kvæmt íslenskum barnalögum,
lögum um vernd barna og ung-
menna og Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna um samvistir við
báða foreldra“.
Hér er um að ræða nauðsynleg-
an gjörning, en galli er á gjöf
Njarðar. Þessari ályktun hefur á
engan hátt verið fylgt eftir hvorki
fyrr né nú. Það er mín skoðun að
hafi svo stór samtök virkilegan
áhuga á því sem ályktunin fjallar
um væru íslensk börn kannski farin
að sjá fram á að samneyti við báða
foreldra yrðu raunveruleg. Í það
minnsta gætu slík samtök komið
málinu á hreyfingu.
Það er deginum ljósara að börn
geta ekki barist óstudd við þau öfl
sem hamla þeim að umgangast báða
foreldra eins og lög kveða á um eða
mannsæmandi þykir. Við erum
aftarlega á merinni hvað þetta
varðar og eigum langt í land með að
geta sagt að slíkt bjóða Íslendingar
ekki börnum sínum. Innan þingsins
hefur það verið Samfylkingin sem
hefur tekið á málinu, en að mínu viti
ekki af nægilegum sannfæringar-
krafti. Það er tími til kominn að
þjóðfélagið í heild mótmæli þessari
meðferð á saklausum börnum sem
óvart hafa lent í deilu foreldra og
eru aðalskotmark reiðinnar.
Leyfum hamingjusömum börnum
að vaxa úr grasi og njóta beggja
foreldra þar sem þess er kostur,
nóg er af hinu. ■
ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2004
800 7000 - siminn.is
með Símanum í sumar
Ótrúlega
gaman
* Gildir eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum. ** 500 kr. á mánuði í 6 mánuði innan kerfis Símans, inneign flyst ekki á milli mánaða.
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I
Y
D
D
A
/
s
ia
.is
/
N
M
12
68
3
500 kr.
SMS inneign
ef þú fyllir rafrænt á Frelsið
Fylltu rafrænt á Frelsið fyrir 2.000 kr.
eða meira og þú færð 500 kr. SMS
inneign innan kerfis Símans.
Tilboðið gildir til 31. ágúst.
Með GSM símum*
í sumar fylgir:
3.000 kr.
SMS inneign**
3.000 kr.
inneign í Retro
Léttkaups-
útborgun
og 600 kr. á mánuði
í 12 mánuði
Verð aðeins 7.980 kr.
Eingöngu fyrir kort frá Símanum.
Sony Ericsson T230
780
Ótrúlegt verð
Það er tími til
kominn að þjóðfé-
lagið í heild mótmæli þess-
ari meðferð á saklausum
börnum sem óvart hafa lent
í deilu foreldra og eru aðal-
skotmark reiðinnar.
HELGA DÖGG SVERRISDÓTTIR
SJÚKRALIÐI
UMRÆÐAN
FORSJÁ BARNA
,,
Að umgangast
báða foreldra