Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2004 15
„Við erum nú við strangar æf-
ingar fyrir tónleika vikunnar
enda kom Simon Jermyn gítar-
leikari til landsins aðeins fyrir
nokkrum dögum,“ segir Þor-
grímur Jónsson kontrabassa-
leikari, en hann kemur fram í
Sigurjónssafni í kvöld með
hljómsveitinni B-Sharp kvintett.
Hljómsveitin er ný af nálinni
en þeir Þorgrímur og Simon
stunda báðir nám við Konung-
lega tónlistarskólann í Haag í
Hollandi. „Þetta verða hefð-
bundnir djasstónleikar hjá
okkur. Við ætlum að spila nýja
tónlist bæði eftir hljómsveitar-
meðlimi og erlenda samtíma
djasstónlistarmenn.“
Tónleikar hljómsveitarinnar
í Sigurjónssafni eru liður í viku-
legum sumartónleikum í safn-
inu en hljómsveitin mun einnig
halda norður í landi og leika í
Deiglunni á Akureyri. „Við
verðum fyrir norðan á fimmtu-
daginn og verða tónleikarnir þar
með svipuðu sniði og í
Sigurjónssafni.“
Þorgrímur segir djass skipa
nokkuð veigamikinn sess í tónlist-
arlífi Íslendinga þessa dagana.
„Þetta kemur í bylgjum og tengist
þá oft hve stór djasshátíðin er. Ég
held til að mynda að koma Van
Morrison í haust hafi mjög já-
kvæð áhrif á djasslífið og laði að
fólk sem venjulega mætir ekki á
djasstónleika.“
Með Þorgrími og Simon í B-
Sharp kvintett eru þeir Jóel Páls-
son og Ólafur Jónsson á saxófón
og Erik Qvick á trommur.
Tónleikarnir í Sigurjónssafni
hefjast klukkan 20.30 í kvöld en í
Deiglunni á Akureyri á fimmtu-
dag klukkan 21.30. ■
Djassinn gengur í bylgjum
BJÖRN KARLSSON
Brunamálastjóri.
Hver?
Björn Karlsson og starfa sem forstöðu-
maður ríkisstofnunar sem heitir Bruna-
málastofnun. Ég ber því hinn virðulega
titil brunamálastjóri.
Hvar?
Staddur á heimili mínu í vesturbæ
Reykjavíkur og er til skiptis í bófahasar
og búðarleik með tæplega fimm ára
dóttur minni. Reyni þess á milli að próf-
arkalesa meistaraprófsritgerð Guðna I.
Pálssonar um áhættugreiningu í Hval-
fjarðargöngum.
Hvaðan?
Er fæddur í Reykjavík, flutti tvítugur til
Bretlands og bjó þar í fjögur ár. Flutti
svo til Suður Svíþjóðar og bjó þar í 17
ár, skrifaði doktorsritgerð og starfaði
sem háskólalektor og vísindamaður við
byggingaverkfræðideild Háskólans í
Lundi. Bjó einnig í Washington DC þar
sem ég var gestaprófessor við University
of Maryland. Flutti síðan til Íslands fyrir
rúmum þrem árum og vil helst ekki búa
annars staðar.
Hvað?
Er að skipuleggja ferð um landið til að
ræða við sveitarstjóra og slökkviliðs-
stjóra landsins um það hvernig hægt sé
að auka samvinnu sveitarfélaganna á
sviði brunamála og þannig efla slökkvi-
liðin.
Hvenær?
Í ágúst.
Hvers vegna?
Umgjörð þjóðfélagsins verður sífellt
flóknari og í lögum eru gerðar auknar
kröfur til slökkviliða landsins. Byggingar
verða stærri og eldvarnaeftirlit verður
flóknara. Útköll slökkviliðanna eru orðin
mjög margvísleg og kalla á aukinn bún-
að og þjálfun.
Hvernig?
Brunamálastofnun má veita fjárstyrk til
þeirra sveitarfélaga sem sameina
slökkvilið sín eða hefja umtalsverða
samvinnu. Ég ætla að hitta sveitarstjóra
og slökkviliðsstjóra á landinu og sjá
hvort við getum eflt slökkviliðin með
þeim hætti. Þannig getum við aukið
bæði öryggi þegnanna og atvinnulífsins.
PERSÓNAN
TÓNLEIKAR
DJASSHLJÓMSVEITIN
B-SHARP KVINTETT
■ heldur tvenna tónleika í vikunni. Í
kvöld koma þeir fram í Sigurjónssafni en
á fimmtudaginn í Deiglunni á Akureyri.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
1810 Kólombía lýsir yfir sjálfstæði sínu
frá Spáni.
1944 Franklin D. Roosevelt verður fyrsti
forseti Bandaríkjanna sem fær
útnefningu fyrir fjórða kjörtímabil
sitt.
1951 Abdullah Ibn Hussein Jórdaníu-
konungur er myrtur í Jerúsalem.
1969 Geimfararnir Neil Armstrong og
Buzz Aldrin verða fyrstu mennirnir
til þess að ganga á Tunglinu.
1973 Kvikmyndaleikarinn og bardaga-
íþróttamaðurinn Bruce Lee deyr í
íbúð sinni í Hong Kong.
1976 Geimfarið Viking One lendir á
Mars.
1983 Frank Reynolds, fréttaþulur ABC-
sjónvarpsstöðvarinnar fellur frá 59
ára að aldri. Peter Jennings fyllir
skarð hans.
SIMON OG ÞORGRÍMUR
Þeir koma fram í Sigurjónssafni í kvöld. Þeir leika nýjar lagasmíðar eftir hljómsveitarmeð-
limi á tónleikunum ásamt nokkrum samtímaverkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
Ó
LA
SO
N
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ka
na
rí
34.742 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára.*
47.430 kr. á mann ef 2 ferðast saman. Innifalið: Flug, gisting á Paraiso Maspalomas í 7 nætur 5. eða 12. janúar.
10.000 kr. bókunarafsláttur
í fyrstu 300 sætin. Gildir í ferðir 5. janúar - 7. apríl.
* Innifalinn 10.000 kr.
bókunarafsláttur af fyrstu
300 sætunum ef bókað er
og staðfest fyrir 10. ágúst.
Takmarkaður fjöldi sæta
í hverri ferð.
Netver› frá
Í boði eru okkar allra vinsælustu gististaðir:
Rouque Nublo, Las Orkideas og Hótel Neptuno.
Ennfremur glæsilegar nýjungar
á borð við Amazonas, Beverly Park og Paraiso
Maspalomas. Allt frábærir gistimöguleikar á
besta stað á Ensku ströndinni.
Bókaðu strax besta verðið!
Frá
bæ
r t
ilb
oð
í a
lla
n v
etu
r!