Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 30
Geimstrákurinn Bárður og jarðar-
stúlkan Birta hafa skemmt íslensk-
um krökkum í Stundinni okkar und-
anfarna vetur. Á sumrin eru þau í
fríi frá sjónvarpinu en halda þó
áfram að skemmta börnum því
Birta og Bárður hafa nú sent frá
sér nýjan geisladisk sem tilvalið er
að taka með í sumarfríið.
Diskurinn ber heitið Birta og
Bárður í sjaggadúi og þar er bæði
að finna lög og leikin atriði sem þau
Jóhann G. Jóhannsson og Þóra Sig-
urðardóttir flytja í hlutverkum
Birtu og Bárðar.
Meðal lagahöfunda á plötunni
eru Jakob Frímann Magnússon,
Magnús Kjartansson og Michael
Jackson en þó lögin séu ýmist göm-
ul eða ný, innlend eða erlend, eiga
þau öll sameiginlegt að vera sungin
með íslenskum texta. Fyrsta lagið á
geisladisknum Birta og Bárður í
sjaggadúi heitir einfaldlega Birta
og Bárður og er nýtt lag eftir Óskar
Einarsson með texta eftir Jóhann
G. Jóhannsson. ■
Birta og Bárður gefa út disk
Stuðmenn hafa
ekkert þroskast
Bandaríski leikstjórinn Seth Sharp
stefnir á að setja upp söngleikinn
Harlem Sophisticate í Loftkastalan-
um í ágúst. Seth Sharp er þekktur
víða um heim fyrir að vera söngvari
og hefur hann meðal annars hlotið
framúrskarandi dóma í New York
Times og L.A. Times fyrir söngafrek
sín. Óhætt er að segja að Seth komi
með nýja orku inn í íslenskt leikhús-
líf en hann hefur áður sett hér upp
söngleikinn Ain’t misbehaven í
tengslum við Hinsegin daga.
Harlem Sophisticate er djass-
söngleikur sem byggir á lögum
Duke Ellington en djassgeggjarinn
Sigurður Flosason er tónlistar-
stjóri uppfærslunnar. Bandarískir
söngvarar og leikarar koma frá
sínum heimahögum til að leika í
uppfærslunni hérlendis en í verk-
inu mætir íslenskt leikarapar til
New York til að reyna fyrir sér í
leikhúsum borgarinnar. Björgvin
Franz Gíslason var ráðinn til
verksins fyrir nokkru en í síðustu
viku voru haldnar prufur þar sem
leitað var að íslenskri leikkonu.
Það var dansarinn María Þórðar-
dóttir, sem fer nú með hlutverk í
söngleiknum Fame í Smáralind,
sem hreppti hlutverkið og slæst
því í hóp hæfileikafólks sem frum-
sýnir Harlem Sophisticate þann 13.
ágúst. Aðeins verða haldnar fjórar
sýningar á verkinu. ■
María verður í Harlem
í Loftkastalanum
MARÍA ÞÓRÐARDÓTTIR
Stóðst prufur fyrir söngleik sem verður
sýndur í Loftkastalanum í ágúst.
22 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Stuðmenn eru nú á lokasprettinum
við upptökur myndarinnar Í takt
við tímann, sem unnið hefur verið
að lengi og er sjálfstætt framhald
hinnar sígildu Með allt á hreinu.
Ágúst Guðmundsson leikstýrir
báðum myndum en segir að þó að
tuttugu ár hafi liðið séu Stuðmenn
alltaf eins. „Þeir hafa lítið
þroskast og lítið breyst, ég aftur á
móti hef bæði þroskast og breyst.“
Á Keldum er búið að koma
fyrir stóru tjaldi þar sem þau
Ragnhildur og Egill snúast um
uppstoppaða sauðkind og hnakk-
rífast í splunkunýju lagi.
Framleiðandinn Jakob Frímann
fylgist með en gefur ekkert upp
um þróun mála hjá þeim Hörpu
Sjöfn og Stinna stuð sem aldrei
var lognmolla í kringum í Með allt
á hreinu. „Það mun kosta 800 krón-
ur að upplýsa og verður aðeins
gert í sjálfu kvikmyndahúsinu.
Þangað til ríkir full leynd um hvað
kraumar undir í því flókna, marg-
litaða og skrýtna sambandi.“ Hann
segist þó geta uppljóstrað að í
myndinni leiðist Stuðmenn inn í
vægast sagt mjög spaugilegar að-
stæður. Eins og öllum er vel kunn-
ugt um hefur sú breyting orðið á
mannaskipan hljómsveitarinnar
að Valgeir Guðjónsson sagði skilið
við félagsskapinn. „Hann er ekki
með í myndinni og við höfum ekki
lagt okkur fram við að útskýra það
frekar. Ýmislegt hefur gerst síðan
Með allt á hreinu kom út og fólk
hefur marga fjöruna sopið eins og
fram kemur í upphafi nýju mynd-
arinnar.“ Að öðru leyti eru helstu
fylgifiskar Stuðmanna viðstaddir
upptökurnar, Eggert Þorleifsson
hefur komið sér makindalega
fyrir í sólstól og raular frjálslega
með lagi Egils og Röggu sem ómar
frá sviðsmyndinni.
Tökum mun ljúka á Rússlands-
för í september þar sem Stuðmenn
dvelja í fimm daga og halda eina
tónleika. „Við erum enn sem komið
er á undan upptökuáætlun og erum
himinlifandi með afraksturinn.
Okkur hefur tekist að standast
kostnaðaráætlun sem er á áttunda
tug milljóna og krefst góðrar bú-
mennsku að halda utan um,“ segir
Jakob Frímann. Stuðmenn hafa
notið sín við upptökurnar og sótt
mikinn innblástur svo Í takt við
tímann verður örugglega ekki
síðasti söngur sveitarinnar. Marg-
ar hugmyndir hafa fæðst í ferlinu
en að sögn Jakobs er ekki útilokað
að ráðist verði í gerð tveggja til
þriggja kvikmynda til viðbótar um
Stuðmenn. „Það tekur eitt til tvö ár
að koma hverri mynd á laggirnar
og ég myndi helst vilja hrinda því í
framkvæmd á næstu fimm árum.
Eftir því sem liðið hefur á tökur
þessarar myndar hefur löngunin
til að gera enn fleiri myndir farið
vaxandi. Ég væri tilbúinn til að
leggja mig fram við að fjármagna
og framleiða nýjar myndir í sam-
starfi við félaga mína því þetta er
skapandi og gefandi vinna og eng-
in ástæða til annars en að láta eftir
sér og þeim sem vilja njóta.“
Frumsýning Í takt við tímann
verður laugardaginn 18. desem-
ber. „Klukkan fimmtán núll núll,“
segir Jakob Frímann að lokum
áður en hann bregður sér í hlut-
verk félagshyggju- og fram-
kvæmdaforkálfsins. ■
LEIKLIST
HARLEM SOPHISTICATE
■ MARÍA ÞÓRÐARDÓTTIR HEFUR VERIÐ
RÁÐIN ÁSAMT BJÖRGVINI FRANZ GÍSLA-
SYNI TIL AÐ TAKA ÞÁTT Í UPPFÆRSLU Á
SÖNGLEIKNUM HARLEM SOPHISTICATE.
KVIKMYNDIR
STUÐMENN
■ ERU AÐ LJÚKA TÖKUM Á
FRAMHALDSMYND MEÐ ALLT Á HREINU.
ÞEIR HAFA EKKERT ÞROSKAST SÍÐAN
ÞEIR FLIPPUÐU Í ÞEIRRI MYND.
STUÐMENN
Egill ólafsson og Ragga Gísla takast á að Keldum við upptökur á Í takt við tímann.
FRÉTTIR AF FÓLKI
í dag
Nylonstúlka
Í öngvit eftir
hjartatruflanir
Justin
Timberlake
hélt framhjá
Cameron Diaz
Hnífakonan í
Hlíðunum
Réðst á leigu-
bílstjóra í gær
Ferðaklúbbur
eldri borgara
Dagsferð 21. júlí
Landmannalaugar - Fjalla-
baksleið nyrðri - Eldgjá -
Skaftártungur.
Verð kr. 5.700
Dagsferð 23. júlí
Fjallabaksleið syðri -
Álftavatn - Emstrur -
Fljótshlíð.
Verð kr. 4.400
Nokkur sæti laus.
Upplýsingar og skráning hjá
Hannesi Hákonarsyni í
síma 892 3011
Lárétt:
1 teygjanleg, 5 ungviði, 6 leyfist, 7 varð-
andi, 8 eins um e, 9 drykkjartegund,
10 lést, 12 sagt á spáni, 13 reyfi,
15 rykkorn, 16 not, 18 rólyndi.
Lóðrétt:
1 á eftir að greiða, 2 gufu, 3 hreyfingu,
4 framferði, 6 skækja, 8 spekingur,
11 belta, 14 mjólkurafurð, 17 næli í.
LAUSN: ■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Í Sorrento á Ítalíu
Brettlingur.
4,60 metra.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
Lárétt:
1seig,5kið,6má,7um,8tet,9malt,
10dó,12ole,13ull,15ar, 16gagn,
18gæfi.
Lóðrétt:
1skuldugt, 2eim,3ið,4hátterni,
6mella,8tao,11óla,14lgg,17næ.
BIRTA OG BÁRÐUR
Eru í sjaggadúsveiflu á nýjum geisladisk
Hinn sautján ára Pétur Níelsson erbúsettur í Noregi þar sem hann hef-
ur komið sér vel fyrir á leikarakortinu.
Pétur hefur tekið þátt í ótal barnasýn-
ingum í leikhúsi þar
sem hann var upp-
götvaður af útsend-
urum norska ríkis-
sjónvarpsins. Þá fékk
hann aðalhlutverkið í
þáttaröðinni Fjortis
sem gerð var af NRK
fyrir nokkrum árum og sýnd var víða á
Norðurlöndunum. Fjortis var einnig sýnt
í ríkissjónvarpinu en þar lék Pétur Mons
sem lá lífið á að verða unglingur. Í vetur
hefur hann leikið í nýjum sjónvarpsþátt-
um sem nefnast Skólinn og aukahlut-
verk í bíómyndinni Hawaii Oslo sem
væntanleg er í kvikmyndahús í haust.