Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
80%veðsetningarhlutfall
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við
skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur
fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
H
im
in
n
o
g
h
a
f-
90
40
44
2 5,40% 5,95% 6,50% 7,50%
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580
2 4.500 4.960 5.420 6.250Afborgunar-laust *
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði
af 1.000.000 kr.*
Vextir %
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Í heila
eða hálfa
Undarlegustu farartæki bruna útúr ferjunni á Seyðisfirði, sum út-
búin líkt og trukkar í eyðimerkur-
hernaði sem geyma allan búnað fyrir
farþega sína og gera ráð fyrir lág-
marks viðskiptum við innfædda. Fáir
staldra við í firðinum fríða, en silast
óþreyjufullir í lestinni upp brekkurn-
ar á vit íslenskra ævintýra. Eftir þjóð-
veginum þjóta risavaxin fellihýsi með
ofurlítil bílkríli á undan sér. Dregur
bíllinn húsið eða ýtir húsið bílnum?
How do we get to Myvatn? spyr ferju-
farþeginn þegar hann kemur í
þjónustumiðstöðina, en landinn vill
skoða vörubíla, jarðýtur og skurð-
gröfur á öræfum.
ÞÓ LEYNAST sumarævintýrin víðar.
Í Viðfjörð liggur lygilegur vegur sem
hangir af gömlum vana utan í snar-
brattri hlíð og vísar leiðina ofan í eyði-
fjörð sem geymir draugasögur og
dularfulla þoku. Þar liggur kannski
draugsi í leyni og fylgist með heilluðum
ferðalöngum um stund. Í Vöðlavík æðir
aldan á land og reynir að grípa litla
fætur sem sprikla í sandinum. Í Borg-
arfirði þar eystra vaka álfar yfir eðal-
steinum og fylgjast argir með litlum
fingrum sem safna dýrgripum í vasa.
MANNLAUSAR paradísir, furðu-
legt land, skrifar Hollendingur í
gestabók í eyðilegum víkum. Oj, nú
vil ég bara veiða sæta fiska, segir
stubba á bryggju með hryllingi og
horfist í augu við marhnút á öngli.
Áfram veginn og inn með Jöklu sem
einn góðan eða slæman veðurdag
verður ofurlítil lækjarspræna. Nú
ygglir hún brún, hnykklar vöðva, stát-
ar af krafti sínum í þröngum gljúfrum
efst á Jökuldal. Þar gerir listfeng hús-
freyja dýrgripi úr skinni og hornum
hreindýra. Þar leika sér yrðlingar á
hlaði og hreindýrskálfar búa þar sam-
lyndir um stund í blómum prýddu
torfhúsi. Í garðskála efst í Jökuldal
vaxa epli og vínber. Gestir valhoppa
glaðir niður heimreiðina með minn-
ingu í leðuról um hálsinn – brot úr
hreindýrshorni frá Klausturseli.
GULLÆÐI! segir í fyrirsögn í hér-
aðsblaði þar sem menn velta fyrir sér
himinháu fasteignaverði og leigu-
prísum á Egilsstöðum. Það er flaggað
í hálfa stöng á fjöllum. Óbyggðirnar
kalla og ferðamaðurinn gegnir. Hann
er mættur til að skoða stórvirkar
vinnuvélar. Í byggð er flaggað í heila
þar sem vonin ein ríkir um betri tíð
og blóm í haga. ■
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR