Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 12
MENNTAMÁL Rúmlega eitt hundrað
nemendur hafa sótt um skólavist
í nýjum fjölbrautaskóla Snæfell-
inga í Grundarfirði. Mikil ásókn
kom á óvart en
nýtt húsnæði
fyrir tvö hundruð
nemendur er í
b y g g i n g u .
B æ j a r s t j ó r i
Grundarfjarðar-
bæjar segir skól-
ann mikinn efna-
hagslegan ávinn-
ing fyrir bæjar-
félög á Snæfells-
nesi.
Björg Ágústs-
dóttir, bæjar-
stjóri í Grundar-
firði og formaður
u n d i r b ú n i n g -
nefndar fjölbrautaskólans, segir
skólann fyrst og fremst koma
fjölskyldufólki vel því nú þurfi
ekki að senda börnin í burtu.
„Bæði eru það félagslega
meiri gæði að geta haldið fjöl-
skyldunum saman og svo efna-
hagslega mikil spurning að geta
haldið aðeins eitt heimili.“
Björg segir skólann skapa
fleiri störf og hluta þeirra fyrir
háskólamenntaða.
„Slík störf eru alltaf vel þegin
þar sem þau eru ekki mörg á
svona svæði og mikil þjónusta
sem svona nemendahópur þarf.“
Guðbjörg Aðalbergsdóttir,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Snæfellinga, segir ekki hafa ver-
ið vitað hver ásóknin að skólan-
um yrði en skólinn taki við öllum
nemendum sem sótt hafi um.
„Það verður auðvitað svolítið
þröngt á haustönninni, en það er
sama, húsnæðið er byggt fyrir
um 200 manns þannig að þetta
ætti að bjargast,“ segir Guð-
björg.
Hún segir upp undir 90 pró-
sent þeirra sem sótt hafi um
skólavist séu krakkar fæddir
árin 1987 og 1988.
„Við tókum þá ákvörðun strax
í byrjun að tryggja það að geta
boðið bæði fyrsta árs nemum og
annað árs nemum fullt nám,“
segir Guðbjörg. Einnig hafi lítill
hópur nemenda sem komnir séu
lengra sótt um sem og lítill hóp-
ur eldra fólks sem ætli sér að
vera í hlutanámi.
Ingibjörg Eyrún Bergvins-
dóttir hefur stundað fjarnám í
Grundarfirði síðasta vetur og
fer nú á annað ár fjölbrautaskól-
ans. „Persónulega finnst mér
mjög gott að vera heima. Þeir
sem ætluðu sér að fara eitthvert
annað, þeir fara annað,“ segir
Ingibjörg. „Ég held að það verði
voða stemning. Ég held að það
verði mjög gott félagslíf í skól-
anum.“
gag@frettabladid.is
12 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
BUSH LAUG
George W. Bush laug að þjóðinni þegar
hann sagði að verkefninu væri lokið í Írak
fyrir rúmu ári síðan. Það eru skilaboðin
sem Ben Cohen, annar upphafsmannanna
að Ben & Jerry ísnum, vill koma á fram-
færi. Því lét hann útbúa líkneski af Bush
þar sem buxurnar loga. Þar er lagt út af
orðatiltæki um lygara í logandi buxum.
FERÐAMÁL „Áhuginn er sýnu
minni en í fyrra en umferð
einkabíla er með mesta móti,“
segir Sveinn Pálmar Einarsson,
sem rekur ferðaskrifstofuna
Tanni Travel á Austurlandi.
Fyrirtæki hans hefur í sam-
vinnu við Flugfélag Íslands
boðið upp á dagsferðir frá
Reykjavík í framkvæmda-
skoðun að Kárahnjúkum í
sumar.
„Áhuginn er sannarlega
fyrir hendi eins og sannast best
á þeim fjölda sem heimsækir
Kárahnjúka á einkabílum. Það
er á stundum erfitt að finna
stæði þegar sem mest umferð
er. Hins vegar hefur ekki verið
mikill straumur ferðamanna
hér fyrir austan það sem af er
sumri og það hefur áhrif líka.“
Sveinn áætlar að um hundr-
að manns hafi nýtt sér tilboðið
en dagsferðin með leiðsögn og
stoppi á forvitnilegum stöðum
kostar tæpar 20 þúsund krónur
og er flogið alla miðvikudaga
og laugardaga í sumar. ■
Mikil ásókn í fyrsta
framhaldsskólann
Nýr fjölbrautaskóli rís fyrir haustið í Grundarfirði. Fyrsti framhaldsskólinn á Snæfellsnesi. Hann
er mikill efnahagslegur ávinningur fyrir bæjarfélög Snæfellsness. Fjölskyldur þurfa ekki lengur
að senda börnin burt í framhaldsnám.
BRYGGJUHÁTÍÐ Á DRANGSNESI
Hátíðin var haldin um helgina í blíðskaparveðri. Margt var brallað eins og undanfarin ár
og voru gestirnir fjölmargir. Handverksmarkaðir, grásleppusýning og leiktæki fyrir börnin
eru fastir liðir hátíðarinnar sem og sjávarréttahlaðborð þar sem gestum er boðið að
smakka framandi rétti. Seinni part dags var söngvarakeppni fyrir börn og gestum boðið í
grill. Hátíðinni lauk með dansleik í félagsheimilinu. Á fyrri myndinni má sjá nokkurn fjölda
gesta fylgjast með fótboltaleik heimamanna í Neista og helstu keppinautanna í Geisla frá
Hólmavík. Leikurinn fór 2-1 fyrir heimamenn sem mörðu sigur á síðustu mínútunni. Á
þeirri síðari eru menn að njóta veðurblíðunnar fyrir framan handverksmarkað.
FRAMHALDSSKÓLI Í BYGGINGU
Skólinn býður upp á stúdentsbrautirnar, al-
menna braut og fjórar starfsnámsbrautir,
s.s viðskiptabraut. Daglegar rútuferðir
verða frá Stykkishólmi, Ólafsvík, Hellissandi
og Rifi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EL
G
A
,,Þetta
hefur fyrst
og fremst
þýðingu
fyrir fjöl-
skyldurnar
í bæjunum;
að þurfa
ekki að
senda
börnin sín í
burtu.
Á GANGI Á FLÓÐASVÆÐUNUM
Milljónir hafa neyðst til að flýja heimili sín
vegna mikilla vatnavaxta.
Flóð og eldingar:
Fleiri en
500 látnir
ASÍA, AP Náttúruhamfarirnar í Suð-
ur-Asíu halda áfram að kosta
fjölda manns lífið. Sautján létust
af völdum eldinga í Bangladess og
49 Indverjar drukknuðu þegar
þeir lentu í hringiðu í miklum
vatnavöxtum í Assam-héraði í
norðausturhluta Indlands.
Tala látinna er komin yfir 500
manns. Flestir hafa látist í Ind-
landi, nær 300. 125 hafa látist í
Bangladess, 80 í Nepal og fimm í
Pakistan. Í fyrra létust um 1.500
manns í óveðrum sem gengu yfir
á regntímabilinu, frá miðjum júní
fram í miðjan október. ■
AÐALBÚÐIR VIÐ KÁRAHNJÚKA
Mikill fjöldi ferðamanna og forvitinna
heimamanna ekur að Kárahnjúkum dag
hvern til að skoða þessa stærstu fram-
kvæmd Íslandssögunnar.
Kárahnjúkar:
Mikil umferð ferðalanga
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
AG