Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 16

Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 16
EVRÓPUMÁL Denis McShane, ráð- herra Evrópumála í bresku ríkis- stjórninni, segir að Ísland sé evrópskt land með evrópska menningu og tungu og því eigi landið heima í samfélagi Evrópu- þjóða. Hann segir það hins vegar ekki sitt hlutverk að ráðleggja Íslendingum hvort sækja eigi um aðild. „Saga Íslands og viðskipta- hagsmunir auk menningar benda ótvírætt til þess að Ísland eigi heima í Evrópu,“ segir McShane. Hann er í nokkurra daga heim- sókn á Íslandi. Í gær átti hann fund með Valgerði Sverrisdóttur iðnað- ar- og viðskiptaráðherra og í dag er ráðgerður fundur hans og Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra. Á þeim fundi er gert ráð fyrir að rætt verði um framtíð og framkvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Hægt að finna lausnir McShane telur að unnt sé að finna lausnir í samningum um mikilvæg hagsmunamál ef aðildar- viðræður fara fram um aðild Íslands. „Við vitum það í bresku utanríkisþjónustunni að þorskur- inn er mikilvægasti fiskur í heimi og vanmetum ekki mikilvægi hans,“ segir McShane. Hann bætir því við að miklar breytingar hafi orðið í efnahags- málum í heiminum og margir aðrir möguleikar í stöðunni. Hann segir til að mynda að Ísland geti orðið helsti áfangastaður ferðamanna í Norður-Evrópu. Evrópufjölskyldan ekki full- komnuð Hann segist hafa orðið var við það í viðræðum sínum við Sviss- lendinga og Norðmenn að þar sé skilningur á því að óheppilegt sé fyrir ríki að þurfa að lúta reglum Evrópusambandsins án þess að eiga aðkomu að setningu þeirra. „Evrópa er ekki fullmótuð fyrr en öll fjölskylda Evrópuþjóða er hluti af Evrópusambandinu. Það verður þó að gerast á þeim tíma og samkvæmt þeim skilmálum sem hentar viðkomandi þjóðum og Evrópusambandinu,“ segir hann. MacShane segir mikla gerjun í Evrópusambandinu nú eftir stækkunina 1. maí. Þá séu ýmsar þjóðir í Austur-Evrópu á barmi að- ildar, svo sem Króatía, Serbía og Búlgaría auk þess sem umræða sé mikil um hugsanlega aðild Tyrk- lands að bandalaginu. Hann segist ekki telja að erfiðara verði fyrir Ísland að sækja um inngöngu eftir nokkur ár jafnvel þótt búið verði að samþykkja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Bretland áfram í Evrópusam- bandinu Á undanförnum vikum og mán- uðum hefur sú skoðun orðið sífellt háværari í Bretlandi að ekki sé útilokað að landið dragi sig úr Evrópusambandinu. Tímaritið Economist hefur meðal annars sagt að þessi möguleiki sé fyrir hendi. Aðspurður um þetta segir MacShane að slíkt hefði alvarleg- ar afleiðingar í för með sér fyrir Bretland. „Ég held að það yrði mikið áfall ef Bretland einangraði sig frá Evrópu, eins og sumir hægrimenn leggja til. Það hefði mjög vond áhrif á stöðu Bretlands í alþjóðasamfélaginu bæði gagn- vart Bandaríkjunum, Samveldis- ríkjunum, í Asíu og öllum um- heiminum,“ segir hann. Hann segir Bretland hafa hlut- verk sem nokkurs konar gluggi að Evópumarkaði, sérstaklega í fjár- málaheiminum og það hlutverk sé mikilvægt. Þá telur hann að náið samstarf við Evrópu hafi farnast Bretum betur en hið gagnstæða. „Ætíð þegar Bretland hefur snúið baki við Evrópu og einangrað sig hefur það haft hörmulegar, póli- tískar og efnahagslegar afleiðing- ar,“ segir MacShane. Líst vel á nýjan framkvæmda- stjóra Nokkur styr stóð um útnefn- ingu nýs formanns framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins. Denis MacShane hafði gagnrýnt Romano Prodi, fráfarandi fram- kvæmdastjóra, opinberlega og sagt hann huga um of af stjórn- málaástandinu í Ítalíu en þar er hann áhrifamikill innan stjórnar- andstöðunnar. MacShane er bjartsýnn á að Portúgalinn Duaro Barroso takist vel upp í starfi formanns fram- kvæmdastjórnarinnar. „Við munum sjá nýtt upphaf hjá Evrópu. Ný stjórnarskrá, nýtt Evrópuþing, ný framkvæmda- stjórn með 25 meðlimum og nýjan forseta. Ég var í Portúgal árin 1974 til 1975 þar sem ég ásamt herra Barroso studdum lýðræðis- byltinguna í Portúgal og ég tel að hann verði mjög góður forseti framkvæmdastjórnarinnar,“ segir MacShane. Að hans mati mun útnefning Barroso fela í sér aukið vægi smærri ríkja innan Evrópusam- bandsins og að sambandið muni njóta góðs af því að Barroso sé lipur samningamaður og eigi gott með að sameina fólk sem hefur ólíka pólitíska afstöðu. Engar töfralausnir frá Brussel Þótt MacShane lítist vel á Durao Barroso telur hann að framtíð Evrópu ráðist fremur af frammistöðu aðildarríkjanna hvers fyrir sig heldur en ákvörð- unum sem teknar eru í Brussel. „Helstu vandamál Evrópu verða ekki leyst með töfra- formúlu í Brussel heldur með því að aðildarríkin 25 endurlífgi efna- hagslíf sitt og séu reiðubúin að gera umbætur og hugsa um nýjar hugmyndir og forgangsröðun í Evrópu – og taki mið af viðfangs- efnum 21. aldarinnar en ekki fimmtíu ára gömlum viðfangs- efnum,“ segir hann. Tengslin við Bandaríkin mikilvæg MacShane segir það skipta miklu að næsti formaður fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins sé stuðningsmaður góðra samskipta við Bandaríkin. „Ég hef ætíð haft þá trú að Evrópa megi aldrei skilgreina sjálfa sig sem andstæðing Ameríku. Við þurfum að vera hlynnt Evrópu en ekki gegn Bandaríkjunum,“ segir MacShane. ■ 16 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR KLERKUR Í ELDGÖNGU Hindúaprestur á Indónesíu gengur hér yfir brennandi heit kol í trúarathöfn sem köll- uð er eldganga. Athöfnin er til heiðurs gyðjunni Draupadi. Blendnar kenndir á Kýpur: 30 ár frá innrás Tyrkja KÝPUR, AP Talsverður munur var á því hvernig Kýpurbúar minntust þess að þrjátíu ár eru liðin frá innrás Tyrkja á eyjuna fyrir þrjátíu árum. Á tyrkneska hluta eyjunnar var tímamótunum fagn- að en á gríska hlutanum voru þeir sem féllu í árásinni syrgðir. Tilefni innrásar Tyrkja fyrir þremur áratugum var ótti við að eyjan yrði sameinuð Grikklandi. Tyrknesk yfirvöld viðurkenna að- eins stjórnvöld norðurhlutans og hafa 40 þúsund manna herlið í landinu. Kýpverjar eru uggandi yfir framtíð landsins þar sem gríski hlutinn hafnaði sameiningartillögu Sameinuðu þjóðanna í vor, en sá tyrkneski samþykkti þær. Evrópu- sambandið og Bandaríkin styðja sameiningartillöguna. Grískir Kýpverjar segjast ekki geta fallist á sameiningu fyrr en brotthvarf tyrkneska hersins sé tryggt og að grískir Kýpverjar geti endurheimt lendur sína sem þeir flúðu í innrásinni. Gríski hluti Kýpur flaug inn í Evrópusambandið 1. maí en sá tyrkneski fær ekki aðgang að sam- bandinu fyrr en eyjan hefur verið sameinuð. ■ ■ VIÐSKIPTAFRÉTTIR BELKA OG KARZAI Leiðtogar Póllands og Afganistans hittust í gær og ræddu öryggismál landsins. Forsætisráðherra Póllands í Afganistan: Hyggst bæta við heraflann KABÚL, AP Pólverjar íhuga að fjölga í mannafla sínum í Afganistan en draga úr herliði sínu í Írak, að sögn Marek Belka, forsætisráðherra Póllands en hann var í opinberri heimsókn í Afganistan í gær. Um 2.400 pólskir hermenn eru við störf í Írak um þessar mundir en þeim verður fækkað niður í 1000 til 1500 í janúar næstkomandi. Belka segist íhuga að auka í liði Pólverja í Afganistan í kjölfar samtals sem hann átti við Hamid Karzai, forseta landsins. NATO- ríkin munu fjölga í mannafla sín- um eftir því sem nær dregur for- setakosningunum í október. Nú eru um 6.400 hermenn í landinu en þeir verða 8.700. Þorri heraflans verður þó áfram í Kabúl. ■ VÍSITALA BYGGINGARVERÐS HÆKKAR Vísitala byggingaverðs hækkaði um 0,3 prósent og er nú 301,7 stig. Á síðustu tólf mánuð- um er hækkunin 5,2 prósent. Hækkun þessarar vísitölu hefur ekki verið skarpari síðan í lok árs 2002. 3M OLLI VONBRIGÐUM Hagnaður bandaríska stórfyrirtækisins 3M var minni á öðrum ársfjórðungi en ráð hafði verið fyrir gert. Hlutabréf í félaginu lækkuðu um ríflega fimm prósent við tíðindin. Annað þekkt fyrirtæki, Black & Decker, kom hins vegar á óvart með því að skila betri hagnaði en búist var við og ruku hlutabréf félagsins upp við tíðindin. ■ EVRÓPA BBC EKKI PENINGANNA VIRÐI Nær helmingur Breta, 46 prósent, telur BBC ekki peninganna virði. Lögum samkvæmt verður hver eigandi sjónvarpstækis að greiða andvirði um 16.000 króna í afnota- gjald til BBC árlega. Áhorfendur voru almennt ánægðir með stöðina en töldu gæði efnis hennar hafa farið hrakandi. UPPSKERAN EYÐILÖGÐ Andstæðingar erfðabættra mat- væla segjast hafa staðið á bak við skemmdarverk sem voru unnin á akri í Hollandi þar sem voru rækt- aðar erfðabættar kartöflur. FRÁ KÝPUR Í tyrkneska hlutanum var fagnað í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá innrásinni. RÁÐHERRA EVRÓPUMÁLA Í BRETLANDI Á FUNDI MEÐ IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA Denis McShane átti fund með Valgerði Sverrisdóttur í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. Í dag hittir hann Halldór Ásgrímsson. ÞÓRLINDUR KJARTANSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTAVIÐTAL RÆTT VIÐ DENIS MACSHANE EVRÓPUMÁLARÁÐHERRA BRETLANDS UNDIR FÁNA EVRÓPUSAMBANDSINS Nú eru 25 ríki í Evrópusambandinu og enn útlit fyrir fjölgun. McShane telur ekki að erfiðara verði fyrir Ísland og Noreg að kom- ast í Evrópusambandið þrátt fyrir fjölgunina hafi þjóðirnar á annað borð hug á því. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Ísland á heima í Evrópu Ráðherra Evrópumála í Bretlandi telur að unnt verði að finna lausn sem henti Íslandi ef sótt yrði um aðild. Hann segir það þó ekki sitt hlutverk að ráðleggja Íslendingum að sækja um aðild eða ekki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.