Fréttablaðið - 22.07.2004, Qupperneq 18
18 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
SAMKEPPNI Auglýsingar Hreyfingar
frá því í febrúar á Pilates-nám-
skeiðum gáfu neytendum villandi
upplýsingar samkvæmt ráðgjafa-
nefnd samkeppnisráðs. Í áliti Sam-
keppnisstofnunar segir að þar sem
á námskeiðunum hafi verið kennt
afbrigði af Pilates, svokallað Stott-
Pilates, hefði átt að geta þess.
Ágústa Johnson, eigandi Hreyf-
ingar, segir málið snúið og að svip-
að mál hafi komið upp í Bandaríkj-
unum fyrir fimm árum. „Þróunin
hefur orðið þannig að nafnið var
orðið almennt heiti á ákveðinni teg-
und líkamsræktar, svipað og jóga,
þannig að það var úrskurðað að þar
gæti enginn lengur átt einkarétt á
nafninu. Þá fóru menn að tryggja
sér einkarétt á því sem tengdist
þessu eins og Stott-Pilates, sem er
skráð vörumerki í Bandaríkjun-
um.“ Ágústa segir að í kjölfar álits
Samkeppnisstofnunar hafi Hreyf-
ing ákveðið að nota Stott-Pilates í
framtíðinni. Hún segir málið und-
arlegt en þegar Pilates verði þekkt-
ara á Íslandi eigi einkaréttur hugs-
anlega ekki lengur við.
Liisa S.T. Johanson, eigandi
Pilatos-studio og rétthafi heitisins
Pilates hérlendis, óskaði eftir áliti
Samkeppnisstofnunar þar sem hún
taldi notkun Hreyfingar á orðinu
villandi og var það staðfest. ■
Unga fólkið fer til Eyja
Straumurinn um verslunarmannahelgina virðist helst liggja til Eyja að sögn starfsmanns Flug-
félags Íslands. Einnig mikið bókað til Akureyrar og Egilsstaða. Undirbúningur fjölda útihátíða
um allt land stendur sem hæst. „Engin óveðurský sjáanleg,“ segir veðurfræðingur.
VERSLUNARMANNAHELGI Fjöldi útihá-
tíða verður að venju haldinn um
verslunarmannahelgina, dagana 31.
júlí til 2. ágúst.
„Forsala gengur vel og bókanir
eru mjög öflugar, bæði í flug og í
skipið,“ segir Páll Scheving, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, sem stendur að
skipulagningu Þjóðhátíðar í Vest-
mannaeyjum. „Við erum vissir um
fjölmennari hátíð en á síðasta ári. Þá
voru sjö til átta þúsund manns á
Þjóðhátíð.“
„Unga fólkið fer til Eyja og við
bókum langmest þangað,“ segir
Anna María Káradóttir, þjónustufull-
trúi hjá Flugfélagi Íslands. Að sögn
Önnu Maríu býður Flugfélag Íslands
í ár upp á pakkaferðir á Þjóðhátíð.
„Það þurfti að bæta við vélum vegna
mikillar aðsóknar,“ segir Anna Mar-
ía. „Í fyrra var ekki boðið upp á
pakkaferðir þannig að aðsóknin í
flug var ekki eins mikil.“
Anna María telur um 450 sæti í
boði til Eyja á föstudeginum og svip-
að heim á mánudag. Enn eru til laus
sæti. Þá er uppselt í allar ferðir með
Herjólfi til Eyja fimmtudag og föstu-
dag og til baka mánudag. Bætt hefur
verið við næturferð aðfaranótt
föstudags og eru ennþá til óseldir
miðar. Að sögn starfsmanns Land-
flutninga sem rætt var við í gær er
meiri skriður á miðasölunni nú en á
síðasta ári.
Anna María segir einnig nokkra
eftirspurn eftir flugmiðum til Akur-
eyrar og Egilsstaða um verslunar-
mannahelgina. „Þetta er ekkert áber-
andi mikið en samt eitthvað sem mað-
ur tekur eftir,“ segir Anna María.
„Þetta er fjórða árið í röð sem há-
tíðin er haldin og hún er komin í
mjög fastar og öruggar skorður,“
segir Bragi Bergmann, einn Vina
Akureyrar sem skipuleggja Eina
með öllu. „Það hjálpar hátíðum að
vera fastir liðir auk þess sem hátíðin
hefur verið að hlaða utan á sig ár frá
ári. Það er ekkert sem bendir til ann-
ars en að það haldi áfram.“
Tólf til fjórtán þúsund manns eru
taldir hafa sótt viðburði Einnar með
öllu í fyrrasumar. Aðstandendur
hátíðarinnar vonast að minnsta kosti
eftir öðru eins í ár.
Um hundrað miðar höfðu verið
seldir í forsölu á Bindindismótið í
Galtalækjarskógi í gær og fer salan
hraðar af stað en í fyrra að sögn
Aðalsteins Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar. Á átt-
unda þúsund gestir voru í Galtalæk á
síðasta ári og á Aðalsteinn von á
svipuðum fjölda í ár.
„Tilgangur hátíðarinnar er að
gefa fólki tækifæri til þess að
skemmta sér saman í vímulausu um-
hverfi,“ segir Aðalsteinn en um
fimmhundruð sjálfboðaliðar munu
vinna við hátíðina.
„Það er aldrei á vísan að róa,“
segir Theódór Júlíusson, fram-
kvæmdastjóri Síldarævintýris á
Siglufirði, sem segir erfitt að spá
fyrir um gestafjölda á hátíðinni.
„Þetta fer alltaf mjög mikið eftir
veðri,“ segir Theódór. „Það er ákveð-
ið fólk sem kemur alltaf en við get-
um aldrei vitað hversu margir koma.
Það er hlutur sem verður að koma í
ljós þegar helgin rennur upp.“
„Það er ekki að sjá nein óveður-
ský í kortunum og gildir þar einu
hvert litið er á landinu,“ segir Sig-
urður Þ. Ragnarsson veðurfræðing-
ur. Hann telur að öðru leyti ekki
tímabært að slá neinu föstu um
verslunarmannahelgarveðrið þar til
spárnar skýrast frekar.
helgat@frettabladid.is
ÆFA VIÐBRÖGÐ
Grískar öryggissveitir æfa nú af kappi við-
brögð við hugsanlegum hryðjuverkum á
ólympíuleikunum sem hefjast þar í landi 13.
ágúst næstkomandi. Öryggisviðbúnaður hef-
ur aldrei verið meiri í sögu ólympíuleikana.
Gert að gefa líkamsræktarnámskeiði nýtt nafn:
Villandi upplýsingar í auglýsingu Hreyfingar
PILATES-ÆFINGAR
Ýmis afbrigði eru til og ber Hreyfingu að aðgreina sín námskeið með öðru heiti en
Pilates, þar sem Pilates Studio hefur einkarétt á nafninu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Forsvarsmenn CBS:
Vilja ekki
greiða sekt
VIÐSKIPTI Forstjóri sjónvarpsstöðvar-
innar CBS lýsti því yfir á fundi með
sjónvarpsstjórum að stöðin myndi
ekki sætta sig við það að greiða sekt
vegna umdeildrar og óvæntrar
brjóstaberunar Janetar Jackson í leik-
hléi á úrslitaleiknum í ameríska fót-
boltanum í febrúar.
Forstjórinn segir að viðbrögðin við
atvikinu hafi komið „hættulega ná-
lægt því að brjóta á tjáningarfrelsi“.
Samtök lista- og fjölmiðlafólks í
Bandaríkjunum hafa einnig goldið
varhuga við því að atvikið hafi í för
með sér skerðingu á tjáningarfrelsi. ■
FÓR FYRIR BRJÓSTIÐ Á MÖRGUM
Ekki sættu sig allir við að Janet Jackson
beraði brjóst sitt í beinni útsendingu í
febrúar. Viðbrögðin hafa verið harkaleg.
VILJA KIRKJURNAR AFTUR Rúss-
neska kirkjan hefur höfðað mál á
hendur stjórnvöldum. Kirkjunnar
menn vilja fá aftur í sínar hendur
kirkjur sem kommúnistar þjóð-
nýttu eftir að þeir komust til
valda og breyttu meðal annars í
skemmur og verksmiðjur. Þá
voru munir og landareignir tekin
eignarnámi. ■
NOKKRAR HÁTÍÐIR UM
VERSLUNARMANNAHELGINA
Þjóðhátíð í Eyjum
Bindindismótið í Galtalæk
Ein með öllu á Akureyri
Síldarævintýri á Siglufirði
Neistaflug í Neskaupstað
Kántrýhátíð á Skagaströnd
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Aðstandendur eru vissir um fleiri gesti en á síðasta ári þegar á áttunda þúsund fóru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
GALTALÆKUR
Tilgangur Bindindishátíðar í Galtalæk er að gefa fólki tækifæri til að skemmta sér saman í
vímulausu umhverfi að sögn framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
STOKROTKA
Pólsk matvöruverslun
Hvaleyrarbraut 35, Hafnarfirði • sími 517 1585
Pólsku
pylsurnar
komnar
Opið virka daga frá 12.00 til 19.00,
laugardaga frá 12.00 til 18.00
og sunnudaga frá 12.00 til 16.00.
■ EVRÓPA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I