Fréttablaðið - 22.07.2004, Side 24

Fréttablaðið - 22.07.2004, Side 24
Þó að sumarfríið þitt sé búið þá þýðir það ekki að þú þurfir að hanga í bænum. Reyndu að vinna vel yfir vikuna og fara fyrr á föstudögum. Þá geturðu farið í góða útilegu og komið aftur heim á sunnudags- kvöldi. - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Bændaferðir kynna: Síðustu sætin í ferðir okkar í sumar Sumar 8 ÍTALÍA OG FRAKKLAND 16.-30. ágúst Flogið er til Milano og ekið til Verona þar sem gist er í 2 nætur. Næst er það borgin Rapallo, þar er gist í 5 nætur á glæsihótelinu Europa. Skoðunarferðir t.d. til Pisa, Riamaggiaore, Vernazza og Monterosso. Ekið til San Remo og gist í 5 nætur á Hótel Nazionale. Þaðan eru ferðir til Frakklands og Monaco. Að lokum er haldið til Como vatns og gist á Hotel Continental í tvær nætur áður en haldið er heim á leið. Innifalið: Flug og skattar, gisting í 2ja manna herbergi (aukagjald fyrir eins manns herbergi), allur akstur erlendis, skoðunarferðir flesta daga, morgun- og kvöldverður alla daga. Íslenskur fararstjóri með hópnum. Verð 144.400 kr. Sími: 555 3565 • www.elding.is M IX A • f ít • 0 2 1 2 4 á sjó Ævintýri Reykjavík v/ Ægisgarð Hvalaskoðun Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun fyrir fjölskylduna! Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og laugardaga kl. 13:30. Einnig sérferðir fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi. Sjóstangaveiði Helga Soffía sneri aftur til Afríku með íslenskt regn í farteskinu. Heimsóttu fornar slóðir í Afríku: Regngyðjurnar snúa aftur Helga Soffía Einarsdóttir er þýð- andi og þýddi meðal annars hina geysivinsælu bók um Kvenspæj- ara númer eitt. Helga Soffía á ekki langt að sækja Afríkuáhug- ann því hún bjó í Tansaníu með fjölskyldu sinni þegar hún var lítil. Fyrir nokkrum árum fór hún ásamt vinkonu sinni á fornar slóð- ir. „Það var mjög skrýtið að koma aftur til Tansaníu því að þegar við fórum var allt frekar aftarlega á merinni og landið algjört þriðja- heims land. Þegar við komum aftur voru internetkaffi á hverju götuhorni og allir með gemsa. „ Þær vinkonurnar gerðu víðreist í þessari ferð. „Hildur vinkona mín bjó í Kenýa og ég í Tansaníu svo við heimsóttum bæði löndin, fórum fyrst til Tansaníu og Zansi- bar og tókum svo rútu til Kenýa og enduðum í tveggja daga brúð- kaupsveislu hjá vinkonu hennar. Eitt af því fjölmarga sem hafði áhrif á mig í heimsókninni var að þegar við bjuggum þarna var Tansanía fátæka landið og maður fór til Kenýa til að fá smá sið- menningu, íspinna, bíó og þess- háttar. Nú hefur dæmið snúist við og við fórum úr gemsavæddri malbikaðri Tansaníu yfir á holótta vegi í vatns- og rafmagnslausu Kenýa. Þetta má kenna spilling- unni sem því miður þrífst of vel í mörgum Afríkulöndum.“ En ferðin var skemmtileg og þær stöllur náðu að leggja sitt af mörkum til Afríku. „ Þegar við komum til Kenýa hafði ekki rignt þar í tvö ar. Við sögðum fólki að örvænta ekki því við kæmum frá regnlandinu mikla og værum regngyðjur. Og viti menn, daginn eftir fór að rigna. Góða veðrið núna stafar væntanlega af því að vinkona mín frá Chile er í heim- sókn og hún er örugglega sólgyðja frá sólarlöndum...“ brynhildurb@frettabladid.is Hátíðir helgarinnar: Hátíðarstemning á landsbyggðinni Hin árlega fjölskylduhátið, Á góðri stund í Grundarfirði, verður haldin þar í bæ um helgina. Dag- skráin byrjar með grillveislu við veitingastaðinn Kaffi 59 á morgun þar sem Kalli Bjarni heimsækir gömlu æskuslóðirnar og skemmt- ir og gefur áritanir. Á laugardeg- inum verða sölutjöld á bryggjunni þar sem seldur verður ýmis konar varningur auk þess sem þar verða ýmis leiktæki eins og hoppukast- alar, rafmagnsbílar og fleira. Bryggjuskemmtun verður haldin þar sem söngelskir grundfirskir krakkar syngja, Kaffibrúsa- kallarnir koma í heimsókn ásamt fleirum. Um kvöldið verður síðan slegið upp hverfahátíð og bryggjuballi með hinni grund- firsku hljómsveit FEIK. Góð skemmtun í Grundarfirði um helgina sem enginn má missa af ! Sjá nánar á grundarfjordur.is Hátíðarhöld vegna 100 ára af- mælis síldarævintýris Íslendinga verða haldin á Siglufirði um helgina þar sem Síldarminjasafnið verður með síldarsöltun, bryggjuball og harmónikuleik. Á laugardeginum munu Siglfirðingar og hátíðargestir taka á móti heiðursgestum og öðr- um opinberum gestum með stuttri móttökudagskrá með tónlistaratrið- um þar sem Karlakór Siglufjarðar syngur og fleira. Á torginu verður spiluð tónlist í anda síldaráranna og haldin verður útidansleikur á Ráð- hústorginu. Þetta og margt fleira á Siglufirði um helgina. Sjá dagskrá á siglo.is Franskir dagar á Fáskrúðsfirði verða haldnir um helgina en það er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá þar sem undirstrikuð eru tengsl Fáskrúðsfjarðar og Frakk- lands. Á dagskránni verður meðal annars franska óperan Le Pays (Föðurlandið) eftir Ropartz frum- flutt á Íslandi og einnig verður sýning sem byggð er á þjóðsögum sem gerst hafa á Fáskrúðsfirði. Hátíðin Vopnaskak á Vopnafirði verður formlega sett á morgun með hátíðardagskrá við Vopna- fjarðarskóla þar sem verða leik- tæki, mini golf, kassabílarall og fleira. Þá sýnir Pétur Pókus töfra- brögð og hljómsveitin Mannakorn leika nokkur lög ásamt mörgu fleiru. Á laugardeginum verður sandkastalakeppni og knattspyrnu- mót ásamt skipulagðri dagskrá á hátíðarsvæðinu sem stendur á milli 15:00-17:30. Um kvöldið verða haldnir fjölskyldutónleikar í fé- lagsheimilinu Miklagarði. Á sunnu- deginum verður Vesturfaradagur- inn í Kaupvangi þar sem verður opið hús með veitingum, fyrirlestr- um og vesturfarsmálefnum. Nánari dagskrá er hægt að nálg- ast á vopnafjordur.is ■ Í Grundarfirði verður fjölskylduhátíð um helgina þar sem ef- laust margt verður um manninn. Idol stjarnan Kalli Bjarni er á meðal þeirra sem ætla að skemmta hátíðargestum. Á Siglufirði fagna menn hundrað ára afmælis síldarævintýris Íslendinga. Þar verður bryggjuball, síldarsöltun og harmóniku- leikur allsráðandi um helgina.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.