Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 26
Ef tölurnar á jakkanum þínum eru lausar en þú hefur ekki tíma
til að sauma þær betur á þá er upplagt að setja glært naglalakk
á töluna og þræðina til að festa þræðina við miðju tölunnar.
Tímabundin lausn sem virkar.
útsala
Viðótarafslátturi l
Opið mán-föst. 13-18
Fyrir herra:
Hattar og húfur
Fyrir dömur:
Derhúfur í úrvali
Alcatara hattar
Poplin hattar
Regn hattar
Hattar og húfur
Fyrir ferðalagið
Fyrir alla veðráttu
PHONCHO
Nýtt í Skarthúsinu – til í mörgum litum
NÝ TÖSKUSENDING
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
„Uppáhaldsflíkin mín er kúrekahatturinn minn,“
segir Valur Gunnarsson ritstjóri mánaðarritsins
Grapevine, söngvari hljómsveitarinnar Ríkisins og
rithöfundur og leikskáld með meiru.
„Ég keypti þennan kúrekahatt í Minneapolis í
Bandaríkjunum í febrúar árið 2001. Þar var ég að
spila á klúbb sem heitir First Avenue á Leonard
Cohen-hátíð. Tónleikahaldarinn hafði keypt plötuna
mína Reykjavíkurkvöld í gegnum netið og bað mig
um að koma á hátíðina. Ég spilaði á klúbbnum aleinn
með kassagítarinn og keypti hattinn minn góða,“
segir Valur en mikið flakk hefur verið á þessum
blessaða hatti. „Frá Minneapolis fór ég síðan til
Finnlands og þar gleymdi ég hattinum þegar ég fór
aftur heim. Ég ferðaðist aftur til Finnlands um
haustið þar sem verið var að frumsýna leikrit eftir
mig sem heitir Tricks. Þar fékk ég hattinn minn
aftur,“ segir Valur en Tricks var frumsýnt í stærsta
og eina enskumælandi leikhúsinu í Helsinki, höfuð-
borg Finnlands.
Ekki var ferðalagið á kúrekahattinum búið og
týndist hann aftur nokkru seinna. „Á útgáfutónleik-
um Ríkisins í desember í fyrra týndist hann aftur og
þá var hann týndur í um það bil þrjá mánuði. Síðan
rakst gítarleikari hljómsveitarinnar á hann í Mos-
fellsbæ og ég hef svo sem aldrei fengið skýringu á
því af hverju hann var þar niðurkominn,“ segir Valur
en honum finnst þetta ferðalag á hattinum þó ekkert
leiðinlegt í sjálfu sér. „Hatturinn hefur verið á vísum
stað síðan hann fannst aftur. Mér finnst nú bara frek-
ar spennandi ef hann týnist aftur að sjá hvar hann
birtist,“ segir Valur sem á svo sannarlega hatt sem
kemur alltaf á óvart.
lilja@frettabladid.is
Kúrekahattur á faraldsfæti:
Kemur alltaf á óvart
Valur Gunnarsson á sérstakan kúrekahatt sem birtist á ótrúlegustu stöðum.
Thomas Burberry opnaði fyrstu búðina sína árið
1856 í Hampshire á Englandi. Viðskiptin urðu fljót-
lega blómleg og hann var duglegur að prófa sig
áfram í textílnum og lagði sig fram við að þróa efni
sem yrði vatnshelt.
Um aldamótin hannaði hann einkennisbúninga á
breska herinn og fyrsti suðurpólsfarinn var klæddur
í Burberry-fatnað frá toppi til táar.
Burberry-munstrið, svarthvítu köflurnar á húðlit-
um grunni og rauðar línur yfir, kom fram 1924 og
hefur verið vörumerki Burberrys síðan.
Rykfrakkinn eins og við þekkjum hann er hug-
mynd Burberrys og í fyrstu var köflótta efnið bara
notað í fóður í frakkann en á sjöunda áratugnum var
munstrið sett á regnhlífar og töskur.
Í kringum 1980 var mikil þensla hjá fyrirtækinu
og fjölmargar búðir opnuðu í Bandaríkjunum, eftir
það hægði aðeins um og Burberry varð meiri klassík
heldur en tíska.
Það var svo í lok aldarinnar að inn í fyrirtækið
komu nýir stjórnendur, vörumerkið var sett í nýjan
búning og stórar auglýsingaherferðir fóru af stað.
Burberrry hóf flugið á ný og ekkert lát er á vinsæld-
um þessara vara í dag.
Hér á Íslandi fæst Burberry-fatnaður í GK á
Laugaveginum og einnig í versluninni CM.■
Burberry í eina öld:
Klassískar tískuflíkur
Burberry-taska
48.900 kr.
Seðlaveski 17.990 kr.
Svart pils 28.900 kr.
Gallapils 24.990 kr.
Hvítt pils 31.990 kr.
Svört taska 48.900 kr.