Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 29
Heru Björk Þórhallsdóttur söng-
konu áskotnaðist uppáhaldsstellið
sitt á markaði í Kristjaníu. „Ég
var á gangi með Gísla vini mínum
um Kristjaníu og við vorum bara
að skoða hvað var á borðstólum.
Þá sá ég lítið mokkastell á einum
básnum, bara sá það og andaðist á
staðnum. Ég sagði við Gísla að ef
þetta kostaði innan við tíu þúsund-
kall þá myndi ég kaupa það, sama
hvað hver segði. Hann sagði að ég
væri geðveik en það er nú ekkert
nýtt. Svo spurði ég sölumanninn
með öndina í hálsinum hvað
stellið kostaði og þegar hann sagði
fimmhundruð danskar, sem er
eitthvað rúmlega fimmþúsund
kall varð ég svo glöð að ég prútt-
aði ekki neitt, heldur reiddi fram
féð umsvifalaust,“ segir Hera og
er ánægð með röggsemina. „Þetta
er lítið mokkastell, kaffikanna,
sykurkar og mjólkurkanna, og ör-
litlir bollar úr næfurþunnu postu-
líni. Það lítur út fyrir að vera frá
viktoríutímabilinu og er svo fínt
að ég tími aldrei að nota það. Ég
held að það hafði gerst tvisvar að
ég bauð upp á kaffi í þessu stelli
af alveg sérstöku tilefni og ég var
á taugum allan tímann. Þetta er
það eina sem ég á heima hjá mér
sem er bara upp á punt, annars er
ég mjög mikið fyrir nytjahluti,“
segir Hera og fellst náðarsam-
legast á að taka stellið fram fyrir
ljósmyndarann. ■
7FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004
ÚTIMÁLNING
OG
VIÐARVÖRN
Flestir kannast við að hafa bein-
línis grátið úr sorg þegar uppá-
haldsstyttan eða skálin fór í gólfið
og mölbrotnaði. Titrandi úr
gremju tínir fólk saman brotin og
ef styttan er ekki því verr farin er
límið sótt og hafist handa við að
klastra styttunni saman. Árangur-
in er dæmdur til að mislukkast.
Jón Vilhjálmsson, sem hefur
sérhæft sig í að gera við styttur,
segir að erfiðustu tilfellin séu
þegar fólk kemur með illa límda
styttu sem það vill láta gera við.
„Þá þarf ég að byrja á því að
brjóta allt upp og taka límið af,
sem er miklu verra. Það tekur oft
lengri tíma að hreinsa styttuna en
gera við hana.“
Jón hefur verið í styttu-
viðgerðum í mörg ár en byrjaði
smátt fyrir vini og kunningja.
„Þetta hófst eiginlega með
útskurðarnámskeiði og því að ég
gerði við heljarmikla ljósakrónu
sem var útskorin. Ég fór svo að
dútla við stytturnar og smám
saman vatt það upp á sig.“
En hversu illa brotnar mega
stytturnar vera til að Jón geti gert
þær eins og nýjar?
„Ja, þessi sem ég er að gera við
var til dæmis í 16 molum. Ég fylli
í hana, mála og lakka og set
glassúrinn yfir. Það er líka í lagi
þó brot vanti því ég steypi bara
ný. Ég held að ég geti nánast gert
við allar styttur hversu illa sem
þær eru brotnar,“ segir Jón og
brosir.
Jón hefur aðstöðu fyrir styttu-
viðgerðirnar í Klink og Bank í
Brautarholti 4, þar sem hann
dundar sér líka við að mála.
Síminn hjá honum er 690 8069. ■
Stellið mitt:
Mokkastell frá Kristjaníu
Hera féll fyrir mokkastellinu í Köben og prúttaði ekki neitt
Styttuviðgerðir:
Brotna styttan
verður sem ný
Jón Vilhjálmsson gerir við laskaðar styttur og skálar þannig að ekki er hægt að sjá
að þær hafi brotnað
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is