Fréttablaðið - 22.07.2004, Side 35
Morgunblaðið greinir frá því á for-
síðu sinni á laugardaginn að finnsk-
ir hagfræðingar haldi því fram að
vægi símafyrirtækisins Nokia sé
orðið of mikið í finnsku efnahags-
lífi. Haft var eftir hagfræðingunum
að gengi þessa eina fyrirtækis væri
farið að ráða miklu um hvort hag-
vöxtur eða stöðnun ríkti í Finn-
landi. Fram kom í fréttinni að á
undanförnum árum hefði Nokia
staðið fyrir um fimm prósentum af
vergri þjóðarframleiðslu Finna og
að rekja mætti 0,4 hagvaxtarpró-
sentustig árin 2001 og 2002 til geng-
is fyrirtækisins. „Á síðasta ári sló
hins vegar í bakseglin hjá því
[Nokia] og þá var hagvöxturinn í
Finnlandi 2% en ekki 2,2% eins og
ella hefði orðið. Síðan hefur staðan
versnað enn,“ segir í frétt Morgun-
blaðsins. Í leiðara blaðsins er fjall-
að um forsíðufréttina. Þar er varað
við því að Íslendingar setji öll egg-
in í sömu körfuna með tilvísun til
efnahagslegra áhrifa Nokia í Finn-
landi. „Vitaskuld verður aldrei
hægt að bólusetja hagkerfi fyrir
skakkaföllum, en staðan má heldur
ekki vera þannig að fái eitt fyrir-
tæki kvef byrji allt hagkerfið að
hósta,“ segir í leiðaranum.
Það er vandlifað í þessum heimi.
Nokia hefur verið vítamínsprauta
efnahagslífs Finnlands og reif land-
ið með sér úr djúpri efnahagslægð í
byrjun tíunda áratugarins. Ein-
hverjir myndu vafalaust draga þá
ályktun að umsvif og velgengni
Nokia hafi verið sannkölluð þjóðar-
gæfa Finnlands. Ef finnsku fyrir-
tæki gengur svo vel að það stendur
undir stórum hluta af hagvexti
þjóðarinnar þá hlýtur það að vera
gott en ekki slæmt.
Ef við hugsum þá hugsun til
enda hvernig koma hefði mátt í veg
fyrir að finnska hagkerfið fengi
hósta undan kvefi Nokia þá er erfitt
að sjá hvernig lækningin hefði mátt
stuðla að meiri almennri efnahags-
legri hreysti í Finnlandi. Ef það eitt
hefði verið markmið finnskra
stjórnvalda að draga úr vægi Nokia
hefði miklu verið fórnað. Til dæmis
hefði þessi staða ekki komið upp ef
Nokia hefði verið skipt upp áður en
það varð svona stórt eða það hefði
verið neytt til þess að flytja starf-
semi sína til útlanda eða draga al-
mennt úr umsvifum sínum.
Ef Nokia hefði hætt við þetta ný-
tæknibrölt sitt og haldið sig í stíg-
vélunum er náttúrlega vitað mál að
misfellur í gengi félagsins hefðu
ekki þau voveiflegu áhrif á finnskt
efnahagslíf sem Morgunblaðið
horfir nú fram á. Hefði Nokia hald-
ið sig í stígvélunum hefði „Nokia
eggið“ vitaskuld ekki vegið svo
þungt í efnahagskörfu Finnlands.
Hverjum slíkar aðgerðir hefðu
gagnast er erfitt að segja til um –
nema ef vera skyldi Sony - Ericsson
og öðrum samkeppnisfyrirtækjum.
Ef kaupa þarf hugarró nokkurra
finnskra hagfræðinga og ritstjórn-
ar Morgunblaðsins með því að
fórna 0,4 prósentustigum af hag-
vexti á ári undanfarin ár í Finnlandi
verður það að teljast býsna dýrt.
Í stjórnmálum vegast gjarnan á
öfl íhaldsemi og frjálslyndis. Íhald-
semin byggist á því að stöðugleiki,
eða óbreytt ástand, séu meðal verð-
mætustu lífsgæða. Þetta er sjónar-
mið sem er hægt að skilja og virða
- og vafalítið aðhyllast menn það í
auknum mæli eftir því sem þeir
eldast og eiga erfiðara með að
sætta sig við breytingar. En það er
engu að síður staðreynd að slík aft-
urhaldssemi og fortíðarþrá er eitur
í beinum efnhagslífsins og mun
fyrr eða síðar koma niður á almenn-
um lífsgæðum.
Það hefur vitaskuld áhrif þegar
efnahagslífið fer úr stígvélunum í
hlaupaskó. Það er ef til vill meiri
hætta á því að hagkerfi á hlaupum
misstigi sig stöku sinnum. En það
er engin spurning um að það kemst
hraðar. Það að lengja eftir stígvéla-
hagkerfinu getur verið skiljanlegt á
umrótatímum - en það er hættulegt
ef taugaveiklun út af breyttu lands-
lagi í efnahagslífinu dregur mátt-
inn úr þeim spretthörðustu. Það er
uppskrift að stöðnun.
Grein þessi birtist upphaflega á vefrit-
inu Deiglunni.com.
Hömlum verði aflétt
Önnur leið til að auka frjálsræði og þar
með lífsgæði okkar sem búa á Íslandi er
að aflétta hömlum af utanríkisviðskipt-
um á landbúnaðarvörum. Hið opinbera
hefur of lengi haldið matarverði á Íslandi
háu með ómarkvissum afskiptum af
landbúnaði. Hvorki bændur né neytend-
ur eru að njóta góðs af þessum afskipt-
um, t.d. eru sauðfjárbændur ein fátæk-
asta stétt landsins þrátt fyrir hátt verð á
afurðum. Aðgerðir í þessa átt eru öllum
til góðs. Hinir venjulegu borgarar þessa
lands hafa meira milli handanna og um
leið verður landið að álitlegri fjárfesting-
arkosti erlendis.
Hinrik Már Ásgeirsson á politik.is
Samfelldur áróður
Frá fyrsta degi hefur verið rekinn sam-
felldur áróður gegn frumvarpinu og
Fréttablaðið, sem dreift er ókeypis í hvert
hús, hvort sem húsráðendum er það að
skapi eða ekki, er eins og hvert annað
áróðursblað. Enginn stjórnmálaflokkur
hefur rekið jafn umfangsmikinn og
kostnaðarsaman áróður fyrir þröng
stefnumið sín og Fréttablaðið hefur gert
fyrir hagsmuni eigenda sinna. Tengslin
milli Sigurðar G. Guðjónssonar, forystu-
manns eigendanna, og Ólafs Ragnars
Grímssonar eru augljós og skýr, fögnuð-
urinn í DV,Ý annexíu Fréttablaðsins, yfir
því, að Ólafur Ragnar hætti við að fara í
brúðkaup danska krónprinsins sýndi, að
þar á bæ töldu menn sig eiga góðan
bandamann í Ólafi Ragnari og vildu hafa
hann við höndina.
Björn Bjarnason á bjorn.is
Ofbeldi sem einkamál
Því miður virðist enn eima eftir af þeim
þankagangi að sumt ofbeldi flokkist sem
einkamál og að heimilisofbeldi geti
flokkast til prívatsamskipta sem samfé-
lagið, og þar á meðal lögreglan, geti ekki
skipt sér af. Þessa skoðun má greina hjá
Karli Steinari Valssyni, aðstoðaryfirlög-
regluþjóni í Reykjavík, en í Morgunblað-
inu er haft eftir honum sl. sunnudag að
vissulega hafi lögreglan takmarkaðan
rétt til að hafa afskipti af fólki í heima-
húsum. Undir það er hægt að taka. En
þegar Karl Steinar nefnir heimilisofbeldi
sem dæmi um takmarkaðan rétt lögregl-
unnar til afskipta af fólki í heimahúsum
hlýtur maður að staldra við og spyrja
hvers vegna í ósköpunum unnt er að líta
svo á.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir á
deiglan.com
AF NETINU
23FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004
Ef Nokia hefði hætt
við þetta nýtækni-
brölt sitt og haldið sig í stíg-
vélunum er náttúrlega vitað
mál að misfellur í gengi fé-
lagsins hefðu ekki þau vo-
veiflegu áhrif á finnskt
efnahagslíf sem Morgun-
blaðið horfir nú fram á.
Hefði Nokia haldið sig í
stígvélunum hefði „Nokia
eggið“ vitaskuld ekki vegið
svo þungt í efnahagskörfu
Finnlands.
Aftur í stígvélin?
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
UMRÆÐAN
NOKIA OG FINNSKT
EFNAHAGSLÍF
,,
OD
DI
H
ÖN
N
UN
L
21
03
Hér er farsími handa þér!
C60
SMS, EMS og MMS
Fullkominn litaskjár
Upptökumöguleiki
Útskiptanlegar hliðar
„Tri-band“ virkni
Þyngd 85 g
12.900 kr. stgr.
Líttu á verðið!
CF62
Smekklegur samlokusími
Hringiljós
Tveir skjáir
SMS, EMS og MMS
„Tri-band“ virkni
Þyngd 85 g
19.900 kr. stgr.