Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 36
„Við erum með fjölbreytta dag- skrá í ár sem við byggjum upp með svipuðum hætti og áður. Tónleik- arnir eru helgaðir Mozart í þetta skipti, þrátt fyrir að hann eigi ekki dánarafmæli fyrr en eftir 2 ár. Við tökum því smá forskot á sæluna enda er svo mikið til af fallegri tónlist eftir hann að einir tónleikar duga einfaldlega ekki,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, stjórnandi Reykholtshátíðar. Hátíðin, sem nú er haldin í átt- unda sinn, er að sögn Steinunnar gerð þannig að allir geti notið tón- listarinnar. „Þú þarf ekki að vera sérmenntaður í tónlist til að hafa gaman af tónleikunum. Það má segja að hver og einn geti fundið eitthvað við sitt hæfi svo lengi sem hann hefur gaman af klass- ískri tónlist.“ Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni er Trio Polskie. Tríóið var stofnað árið 1999 og hefur síðan þá tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og hátíð- um. Það vann meðal annars fyrstu verðlaun í Pierre Lantier- keppninni í París auk þess sem það komst á verðlaunapall í al- þjóðlegu Johannes Brahms- keppninni. Tríóið mun halda tón- leika á laugardagskvöldið og leik- ur á þeim þekkt verk eftir Haydn, Beethoven og Schubert. „Við erum mikið með samstarf innlendra og erlendra tónlistar- manna í tengslum við hátíðina enda er það alveg nauðsynlegt fyr- ir okkur hér á þessu litla landi. Það færist líka í vöxt að erlendir hópar komi gagngert til að vera á hátíð- inni og það er draumurinn að tengja þetta menningartengdri ferðaþjónustu. Það er nefnilega auðvelt að útvíkka hugmyndina án þess að breyta henni í grunninum.“ Steinunn segir ótrúlega gef- andi að halda tónleika í jafn fal- legu umhverfi og er við Reyk- holtskirkju. „Maður er ekki alltaf í svona gefandi starfsumhvefi í þessari grein. Fólk losnar líka úr einhverjum viðjum þegar það kemur út í sveit og það á bæði við um tónlistarflytjendur og áheyr- endurna sem virðast vera opnari í þessu umhverfi.“ Hátíðin hefst með opnunartón- leikum föstudag klukkan 20.00. Á laugardag verða tvennir tónleikar, annar vegar klukkan 15 með Elínu Ósk Óskarsdóttur sópran og Stein- unni Birnu og hins vegar klukkan 20 með Trio Polskie. Lokatónleik- arnir verða á sunnudag klukkan 16. Nánari upplýsingar um hátíð- ina má finna á reykholt.is. ■ 24 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR RHYS IFANS Velski leikarinn sem á það til að stela senunni þegar hann mætir á svæðið er 37 ára í dag. AFMÆLI Steindór Hjörleifsson leikari er 78 ára. Guðmundur Heiðar Frímannsson lektor er 52 ára. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson tón- listarmaður er 49 ára. Sævar Jónsson, fyrrum knattspyrnu- maður og verslunareigandi, er 46 ára. BRÚÐKAUP GUÐNÝ BERGLIND GARÐARSDÓTTIR OG INGÓLFUR JÓHANN- ESSON Guðný Berglind og Ingólfur voru gefin saman í Akureyrarkirju þann 26. júní af séra Pétri Þórarinssyni. Heim- ili þeirra er á Akureyri. ANDLÁT Einar Ólafsson húsasmíðameistari, Dverghömrum 30, Reykjavík, lést þriðju- daginn 20. júlí. Guðlaugur Elís Guðjónsson, Nordeide- stölen, Bergen, Noregi, lést þriðjudaginn 20. júlí. Gústaf Ófeigsson, Ársölum 6, Reykjavík, lést mánudaginn 19. júlí. Halldóra Magnúsdóttir frá Hólmavík, lést sunnudaginn 18. júlí. Jensína Waage andaðist mánudaginn 19. júlí. Marteinn Sigurðsson, Gilsbakkavegi 7, Akureyri, lést laugardaginn 17. júlí. Sigurveig Oddsdóttir frá Mörtutungu, lést mánudaginn 19. júlí. JARÐARFARIR 13.30 Borghildur Kristín Magnúsdóttir, Aflagranda 40, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju. 13.30 Guðbjörg Gunnarsdóttir, Lyngási 2, Garðabæ, verður jarðsungin frá Garðakirkju. 14.00 Ísak Elías Jónsson, tónlistar- kennari frá Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju. Bandaríski flugmaðurinn Wiley Post lenti á Floyd Bennett-vellinum í New York á þessum degi árið 1933, eftir að hafa flogið einsamall í kringum jörðina. Flugið tók sjö daga, 18 klukkutíma og 49 mínútur. Hann var fyrsti flugmaðurinn til að takast þetta afrek. Post, sem allir þekktu á leppnum sem hann bar fyrir öðru auganu, hóf ferðalag sitt þann 15. júlí með beinu flugi til Berlínar. Eftir stutt stopp flaug hann áfram til Sovét- ríkjanna, þar sem hann lenti á nokkrum stöðum áður en hann flaug áfram til Norður-Ameríku, þar sem hann lenti í Alaska og Kanada, áður en hann lenti loksins á þeim stað þar sem hann hóf flug sitt, í New York. Post varð þekktur tveimur árum áður þegar honum tókst að fljúga umhverfis norðurhvel jarðar með Harold Gatty. Þegar hann flaug einn árið 1933, ákvað hann að fljúga að- eins lengri vegalengd og gerði það á styttri tíma. Í báðum flugferðum sínum flaug hann á Winnie Mae, Lockheed Vega flugvél sem í var sperry-sjálfstýring fyrir flug hans. Í ágúst 1935 reyndi hann að fljúga yfir norðurpólinn til Sovét- ríkjanna, með bandaríska grín- istanum Will Rogers. Flugvélin hrapaði nærri Point Barrow í Alaska og báðir menn létust. ■ ÞETTA GERÐIST WILEY POST LENDIR EFTIR HNATTFLUG 21. júlí 1933 „Ég þekkti stelpu í skólanum sem hét Pandóra. Ég fékk samt aldrei að sjá öskjuna hennar.“ Rhys Ifans sem hinn ógleymanlegi Spike í kvikmyndinni Notting Hill. REYKHOLTSHÁTÍÐIN HEFST Á MORGUN Í ÁTTUNDA SINN WILEY POST Flaug einsamall í kringum hnöttinn. Umhverfis jörðina á sjö dögum Forskot á sæluna STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR Píanóleikarinn hefur stjórnað Reykholtshátíðinni frá upphafi. Ástkær eiginkonan mín Sigurlína Rut Ólafsdóttir Stekkjargerði 10, Akureyri lést föstudaginn 16.júlí í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin verður auglýst síðar. Stefán Bragi Bragason ÞETTA GERÐIST LÍKA 1376 Þjóðsagan um að rottufangarinn frá Hamel hafi rekið rotturnar úr bænum er sögð hafa gerst á þessum degi. 1946 90 manns láta lífið þegar öfga- hópur Gyðinga sprengja upp álmu af King David hótelinu í Jerúsalem. 1991 Desiree Washington, keppandi í Miss Black America, ásakaði Mike Tyson um að hafa nauðgað sér á hótelherbergi í Indianapolis. Tyson var síðar dæmdur í þriggja ára fangelsisvist fyrir nauðgun. 1992 Kólumbíski eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar flúði úr fangelsi nærri Medellin. Hann var drepinn af öryggisvörðum í desember 1993. 1994 O.J Simpson lýsir sig saklausan af því að myrða fyrrum eiginkonu sína, Nicole og vin hennar Ronald Goldman. 1998 Íranir gera tilraunir með meðal- drægar flaugar sem geta náð til Ísraels eða Saudi Arabíu. 2003 Synir Saddam Hussein, Odai og Quasi láta lífið í skotbardaga við bandaríska hermenn í norður- hluta Írak. 2003 Eldur brýst út nærri toppi Eiffel- turnsins í París. Um 4000 gestir voru fjarlægðir úr turninum og engin slys voru tilkynnt. Út er komin á frönsku bókin 25 íslensk skáld sem hefur að geyma ljóð eftir íslensk nútíma- skáld, elstur er Matthías Johannessen og yngstur er Sindri Freysson. Þór Stefáns- son, frönskukennari í MR, tekur bókina saman og þýðir ásamt Lucie Albertini. „Ég leitaðist við að hafa aðeins núlifandi höfunda í bókinni og því byrjaði ég um- fjöllunina á eftir kynslóð atóm- skáldanna. Eldri íslensk skáld hafa verið kynnt nokkuð á frönsku,“ segir þýðandinn Þór. Öll skáldin í bókinni eru á lífi utan Nína Björk Árnadóttir sem lést meðan á vinnslu bókarinnar stóð. Þór segist hafa farið að vinna að bókinni árið 1999. Á heimasíðu útgáfufélagsins sem gefur bókina út er tekið fram að reynt hafi verið að hafa bókina fjölbreytilega og að- gengilega lesendum sem búi ekki yfir grunnþekkingu á ís- lenskum bókmenntum og sögu. Í lok bókarinnar er farið yfir sögu íslenskrar ljóðlistar á tíma- bilinu sem bókin tekur fyrir. Ljóðabókin er 174 blaðsíður og í henni birtast um fimm til sex ljóð eftir hvert skáld. Henni mun aðallega vera dreift í hinum frönskumælandi heimi, Frakklandi og Kanada. Bókin mun verða kynnt sérstaklega á alþjóðlegri ljóðahátið sem hald- in verður í tuttugasta skipti í Quebec-fylki í Kanada í haust. ■ Íslensk ljóð á frönsku SÝNISBÓK Í bókinni eru þýdd ljóðeftir 25 íslensk nútímaskáld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.